26.04.1977
Sameinað þing: 81. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3767 í B-deild Alþingistíðinda. (2679)
212. mál, lánareglur Lífeyrissjóðs sjómanna
Flm. (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Á þskj. 432 flyt ég till. til þál. um endurskoðun lánareglna Lífeyrissjóðs sjómanna. Till. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta.
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því að reglum um Lífeyrissjóð sjómanna um úthlutun íbúðarlána verði breytt á þann veg varðandi lánsupphæðir, veðtryggingar o. fl. að þær verði ekki óhagstæðari en um er að ræða hjá lífeyrissjóðum í sambandi almennra lífeyrissjóða.“
Að dómi sjómanna, sem ætla að njóta lánveitinga úr Lífeyrissjóði sjómanna til byggingar íbúða eða kaupa á íbúð, eru lánareglur sjóðsins að ýmsu leyti óhagkvæmari en þær reglur sem gilda um hliðstæðar lánveitingar í lífeyrissjóðum verkalýðsfélaga sem eru aðilar að sambandi almennra lífeyrissjóða. Þeir lífeyrissjóðir miða t. d. veðtryggingu við að trygging nemi 50% af matsverði eignar, brunabótamati eða sérstöku mati sem viðkomandi lífeyrissjóður lætur fara fram, en í Lífeyrissjóðum sjómanna er gerð krafa um 1. veðrétt í íbúð nema um ríkisábyrgð sé að ræða. Þó má húsnæðismálasjóðslán vera á 1. veðrétti, en ekki lán frá öðrum aðilum. Og sé um húsnæðismálasjóðslán að ræða, þá á 1. veðrétti, þá verður næsti veðréttur að koma til vegna láns úr Lífeyrissjóði sjómanna. Þessi regla þrengir aðstöðu sjómanna umfram það sem gerist í öðrum lífeyrissjóðum. Þá má nefna að hámarkslán í Lífeyrissjóði sjómanna eru lægri en í öðrum lífeyrissjóðum verkalýðsfélaga, eins og nánar er greint frá í grg með þáltill. Þá þykja sjómönnum óþarflega þröngar reglurnar um hverjir komi til greina um úthlutun íbúðarlána hjá Lífeyrissjóði sjómanna.
Ég held að óþarft sé að hafa öllu fleiri orð um þessa þáltill. Hún skýrir sig sjálf. Í henni og nánar í grg. felst hvaða atriði þyrfti að taka til endurskoðunar í lánareglum Lífeyrissjóðs sjómanna til að tryggja að reglur lífeyrissjóðsins verði ekki óhagstæðari en um er að ræða hjá hliðstæðum lífeyrissjóðum verkalýðsfélaga.
Kjararáðstefna Sjómannasambands Íslands, sem haldin var 3. apríl s. l., samþ. einróma að skora á Alþ. að samþ. þessa þáltill.
Vegna þess, hversu liðið er á þingið, tel ég fyrir mitt leyti að óþarft ætti að vera að vísa till. til n. Sá aðili, sem málið varðar mest, fulltrúar stærsta hluta sjómannastéttarinnar, hefur þegar lýst yfir stuðningi við till. og skorar á Alþ. að samþ. hana. Þar er um að ræða þann aðila sem till. yrði helst vísað til umsagnar. Ég geri því ekki till. um að þáltill. verði vísað til n. Ég held að heppilegt væri að hún yrði samþ. nú og legg til, herra forseti, að það verði gert.