27.04.1977
Efri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2704)

172. mál, umferðarlög

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr. og flutt er af hv. 12. þm. Reykv., hefur verið tekið fyrir á þremur fundum í allshn., og eins og fram kemur á þskj. 535 mælir n. einróma með samþykkt frv. með tveimur brtt. sem hún gerir nánast til árétting­ar og nánari skýringa á meginefni þess.

Ég tel ekki þörf á að efni þess sé rakið ítar­legar en gert var við 1. umr. málsins. Það er afar einfalt að auðkenni á bifreiðum, sem frv. fjallar um, verði gerð svo glögg og skýr að ekki þurfi að fara á milli mála að þar sé um almenn­ingsvagna að ræða, sem eru háðir tímasetningu um viðkomustaði, en oft fer sú áætlun úr skorð­um af þeim sökum sem frá hefur verið skýrt við 1. umr. málsins, að einkabifreiðar virða ekki þá nauðsyn að vagnarnir fylgi áætlun.

Þær breytingar, sem n. leggur til á þskj. 536, voru einnig, eins og efni frv. í heild, samþykkt­ar einróma af allshn. sem leggur til að frv. verði samþ. með breytingum þeim sem ég áður greindi.