27.04.1977
Efri deild: 66. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3788 í B-deild Alþingistíðinda. (2728)

233. mál, ráðstafanir til að draga úr tóbaksreykingum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar um ráðstafanir til þess að draga úr tóbaksreykingum. Ég vil aðeins minna á það, að í lögum um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins eru ákvæði um að 0.2% af brúttósölu tóbaksvara skuli varið til þess að gera ráðstafanir til að draga úr tóbaksreykingum. Samkv. því hefur verið starfandi 3 manna n. sem í hafa átt sæti fulltrúi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, fulltrúi Krabbameinsfélags Íslands og fulltrúi Hjartaverndar sem hafa ráðið starfsmann til þess að hefja auglýsingaherferð gegn tóbaksreykingum. Það framlag hefur verið mjög lágt, sem hér er um að ræða, og reyndist, eftir því sem ég best man, 8 millj. kr. á s. l. ári.

Alþ. samþ. á s. 1. ári þáltill. um aðgerðir til þess að draga úr tóbaksreykingum, og samkv. því átti að skipa n., sem ekki hefur verið gert, til þess að hafa með höndum upplýsingastarfsemi um skaðsemi tóbaksreykinga og gera till. um skipulag námskeiðahalds á vegum hins opinbera eða með þátttöku þess fyrir tóbaksneytendur er vilja hætta eða draga úr tóbaksneyslu sinni.

Ég fyrir mitt leyti tel það ekki vel farið að Áfengis- og tóbaksverslunin standi undir kostnaði við þessa starfsemi og það sé bundið í lögum. Sá aðili, sem selur tóbak og leggur auðvitað áherslu á að selja sem mest tóbak, er ekki eðlilegt að eigi aðild að slíkri nefnd.

Í þessu frv. eru heimildir til þess að stemma mjög stigu við því, hvar reykingar eru leyfðar, og jafnframt er samkv. 5. gr. frv. heimilt að skipa n. sem fær það hlutverk að annast fram­kvæmd þessara laga svo og aðrar aðgerðir til þess að hamla gegn tóbaksreykingum. Nú eru það æðimörg samtök sem gjarnan vilja eiga fulltrúa í slíkri n. sem þessari, en ég held að það fari best á að það sé fámenn n. sem hafi stjórn á þessum málum með höndum og að kostnaðurinn sé ákveðinn á fjárlögum ár hvert, framlag úr ríkissjóði til reykingavarna.

Í þessu sambandi vil ég upplýsa að það hefur orðið að samkomulagi á milli mín og hæstv. fjmrh., að hann taki inn í fjárlagafrv. fyrir næsta ár 20 millj. kr. í þessu skyni, og það ætti að vera nokkur trygging fyrir því að hægt sé að auka verulega fræðslu um skaðsemi tóbaks­reykinga. Mér finnst það líka vera mikils virði, sérstaklega gagnvart ungu fólki sem nú hefur tekið sig fram um það að berjast gegn tóbaks­reykingum og gera allt sem í þess valdi stendur til þess að hafa áhrif á jafnaldra sína. Það, sem er nauðsynlegast að gera af öllu, er að börn og unglingar byrji ekki að reykja, og því finnst mér rétt að löggjafinn setji slíkar reglur og komi á þann hátt til móts við það starf sem þetta unga fólk er að vinna.

Nú er einnig hafin töluverð vakning fyrir því meðal fullorðinna, og sjónvarpið hefur komið þar mjög til liðs, að draga úr tóbaksreykingum. Þeir, sem hafa einu sinni reykt, þekkja af eigin raun hversu óhollt það er, og ég tel að með þessu frv. sé stefnt í rétta átt. Hins vegar má auðvitað alltaf um það deila, hvort rétt sé að breyta einhverju orðalagi í frv. En þetta frv. er, eins og menn sjá, að verulegu leyti sniðið í anda hinna finnsku og norsku laga í þessum efn­um.

Mér er ljóst að þetta frv. er flutt mjög seint og allsendis óvíst hvort það fer hér í gegnum báðar deildir nema með samstöðu þm. Annað er ekki hægt. En ég teldi það vera til þess betra ef þm. sæju sér fært að afgreiða frv. Það er þá um leið trygging fyrir því, að þetta framlag verði tekið upp sem ég hef hér skýrt frá, og jafnframt er það hvatning sérstaklega til unga fólksins, sem hefur lagt sig fram í þessum efnum, að halda áfram á þessari sömu braut.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, en legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til heilbr.- og trn.