27.04.1977
Efri deild: 66. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3797 í B-deild Alþingistíðinda. (2734)
233. mál, ráðstafanir til að draga úr tóbaksreykingum
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það gleður mig sérstaklega að sjá það, að fram skuli vera komið frv. er gengur í þá átt að nú skuli auglýsingar á tóbaki verða bannaðar hér á landi algjörlega. Á sínum tíma flutti ég einn það frv. er varð að lögum árið 1971, í apríl, er hamlaði á móti auglýsingaflóðinu sem þá hafði geisað hér á Íslandi í alllangan tíma og var orðið með þeim hætti, að gjörsamlega var óviðunandi, t. d. í kvikmyndahúsunum, og var svo mikil blekking í þeim auglýsingum að mér fannst ég ekki geta setið aðgerðalaus og flutti frv. á sínum tíma einn.
Auðvitað mætti frv. gagnrýni hér á Alþ. og jafnvel nokkuð harðari mótspyrnu. En það átti einnig góða stuðningsmenn og það fékk framgöngu á síðustu dögum þingsins þá. Það, sem kannske var gleðilegasti votturinn við þann stuðning, var að almennt víða um land fékk það góðan stuðning og sérstaklega frá mörgum áhugamannahreyfingum, og þau gögn liggja hér öll fyrir. Og það er gleðilegt að sú þróun, sem kom fram þá og var staðfest, hefur haldið áfram í þá áttina að draga úr áhrifum tóbaksreykinga hér á landi.
Þetta frv., sem ég bar fram, gekk ekki nægilega langt miðað við reynslu. Ég vildi þá ekki eða taldi ekki mögulegt að fara inn á viss svið sem hefur sýnt sig nú, hér á landi og annars staðar, að er nauðsynlegt að gera, og því er mjög ánægjulegt að sjá að hæstv. ríkisstj. og heilbrrh. hafa tekið þetta skref. Á hann sérstakar þakkir fyrir það og verður minnst örugglega að verðleikum fyrir þetta skref.
Það er út af fyrir sig rétt, að það er leiðinlegt að þurfa að setja boð og bönn, hvar sem þau koma fram. En stundum komast menn ekki hjá því. Auglýsingarnar voru komnar á það stig, að fyrstu 10–15 mínúturnar í kvikmyndahúsi voru notaðar til að auglýsa ákveðna vöru. Þá var mjög gripið til þess að fá kunna íþróttamenn, — menn voru í siglingum á góðum bátum, menn voru á skíðum, menn voru á skautum og menn voru orðnir nokkuð þreyttir og þurftu að hvíla sig, og átti þá sígarettan að vera hjálparmeðalið. Þetta var komið út í öfgar bæði hér á landi og annars staðar, og við þessu var spornað.
Enn hefur það ekki verið gert erlendis að hamla á móti auglýsingum í vissum tímaritum, og þau tímarit koma til landsins og verða hér áfram til sölu. Þetta er út af fyrir sig ákveðið vandamál og á því er ekki tekið hér, kannske ekki hægt að taka á því hér miðað við aðra samninga sem við höfum gert um frjálst lesmál á milli þjóðanna. En þetta sama vandamál ríkir þá alls staðar. Hins vegar er mögulegt, eins og frv. gerir ráð fyrir, að banna allar auglýsingar aðrar — og það hefur verið gert í öðrum löndum — og einnig að taka það skref að tryggja mönnum a. m. k. varðandi opinbera staði og ákveðna staði, þar sem fólk kemur saman, og í flutningatækjum, að tryggja þeim, er ekki reykja og ekki eru vanir tóbaksreyk, frítt svigrúm. Það er mjög gott.
Ég þarf ekki að hafa langt mál um þetta þó að tilefni væri til þess — ærið tilefni. Svo víða hefur verið sannað að áhrif tóbaksreyksins eru neikvæð á heilsu manna, að það er ekkert einkamál viðkomandi aðila að hvetja aðra til þess að reykja, vegna þess að þjóðfélagið í heild, hvar sem það er, tekur á sig stórútgjöld vegna neyslu á þessari vöru. Um það þarf ekki að deila lengur. Það eru margfaldar sannanir í því efni gerðar af vísindamönnum um allan heim eftir áratuga rannsóknir, svo ekki þarf að deila um slíkt. Það eru staðreyndir.
Ég vil því aftur þakka frv. og vænti þess, eins og fleiri hv. þm. sem hér hafa talað, að frv. fái góðan byr í gegnum hv. Alþ. og geti orðið að lögum sem fyrst eða hinn 1. júní 1977, eins og 8. gr. þess gerir ráð fyrir.