03.11.1976
Efri deild: 8. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (274)

16. mál, kaup og kjör sjómanna

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér er flutt, er til staðfestingar brbl. um kaup og kjör sjómanna sem gefin voru út 6. sept. á þessu hausti.

Eins og þdm. er í fersku minni, fór fram endurskoðun á hinu svokallaða sjóðakerfi sjávarútvegsins. Til þeirrar endurskoðunar kom vegna beiðni fulltrúa sjómanna og útvegsmanna um að ríkisstj. skipaði n. til þess að láta fara fram ítarlega athugun á sjóðakerfinu og gera till. um breytingar á því. Ríkisstj. varð við þessar beiðni, og mér var falið að skipa þessa n. Í henni áttu sæti fulltrúar Sjómannasambands Íslands, fulltrúar Landssambands ísl. útvegsmanna, Félags íslenskra botnvörpuskipaeigenda, Alþýðusambands Austfjarða, Alþýðusambands Vestfjarða og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Þessi n. tók fljótlega til starfa undir forustu forstjóra Þjóðhagsstofnunarinnar, Jóns Sigurðssonar, sem var eini fulltrúi ríkisvaldsins í n., og hún vann mjög mikið og vandasamt starf. En forsendur þess, að undir það samkomulag væri ritað, voru þær, að ríkisvaldið tæki á sig ákveðnar skuldbindingar til lausnar þessu vandamáli og deilumáli sem búið var að vera um alllangt skeið.

Ég átti mjög marga fundi með formanni n., og sömuleiðis átti ég fund með n. allri og það oftar en einu sinni til þess að ná samkomulagi um tiltekin deiluatriði sem þar bar á milli. Annars vegar voru kröfur um algjört afnám velflestra sjóða, hins vegar voru aftur kröfur um takmarkaðar breytingar. Þó var sérstaklega viðkvæmt mál Stofnfjársjóður fiskiskipa, og gerðu útgerðarmenn þær kröfur að hann yrði óbreyttur frá því sem hann var í lögum. En samkomulag varð þar um nokkrar breytingar. Allt þetta leiddi af sér að samkomulag náðist eða í raun og veru samningur í þessari n., sem undirritaður var með yfirlýsingu þar sem aðilar lýsa því yfir að þeir eru samþykkir framlögðum drögum að kjarasamningum aðila og samningarnir verði undirritaðir þegar ákvörðun um fiskverð frá 15. febr. 1976 liggur fyrir í samræmi við forsendur samningsdraganna.

Breytingin á sjóðakerfinu gerði kleift að hækka almennt fiskverð mjög verulega, og er talið að dómi Þjóðhagsstofnunarinnar að hækkun fiskverðsins hafi verið að meðaltali um 33% vegna þessara kerfisbreytinga á sjóðunum.

N. sendi mér till. sínar um frv. til l. um útflutningsgjald og frv. til l. um Stofnfjársjóð fiskiskipa og lagði á það megináherslu, að hér væri um samningsatriði að ræða á milli aðila vinnumarkaðarins sem ekki mætti breyta af ríkisvaldinu, ekki á nokkurn hátt efnislega. Þessi frv. voru því lögð fram hér á hv. Alþ. efnislega óbreytt og í fullu samræmi við óskir og samþykktir þessarar n. Alþ. sýndi þessum málum mikinn áhuga og greiddi fyrir að málin næðu fram að ganga á mjög skömmum tíma. Og þessi frv. urðu að lögum. Þau voru forsenda fiskverðshækkunarinnar, og forsenda þeirra var að um kaup og kjarasamninga tæki gildi það samkomulag sem aðilar gerðu með sér.

Mér var á það bent af fleiri en einum að rétt væri að setja inn í lög um útflutningsgjald og lög um Stofnfjársjóð fiskiskipa að þessi lög tækju ekki gildi fyrr en kjarasamningar væru undirritaðir og tækju gildi. Ég vissi alveg hvernig þessi mál stóðu. Ég vissi að sumir aðilar vildu ekki breytingar á sjóðakerfinu, og ég vissi enn fremur að innan sjómannasamtakanna var mikill klofningur um hversu langt skyldi ganga og jafnframt var stórágreiningur um hvaða aðferð ætti að beita í samningsgerðinni. Þar komu til greina tvær leiðir. Önnur leiðin var lækkun skiptaprósentunnar frá gildandi samningum að þessum hluta sem fulltrúar sjómanna í n. höfðu fallist á. Hins vegar var uppi till. um að taka upp svokallaða aðfangaprósentu sérstaklega vegna þeirrar miklu breytingar sem afnám sjóðakerfisins leiddi af sér, að útgerðin yrði að taka á sig alla olíuverðshækkunina við niðurlagningu Olíusjóðsins. Það voru einkum yfirmennirnir — eða Farmanna- og fiskimannasamband Íslands — sem héldu fram að þessi leið væri miklu eðlilegri að fara í þessum breytingum. En fulltrúar undirmanna í stéttarfélögum sjómanna, sem tóku þátt í samningsgerðinni, töldu að það væri betri aðferð að breyta skiptaprósentunni, það hefði fyrir allmörgum árum áunnist að olíufrádráttur var lagður niður með öllu og hann lagður á útgerðarmennina. Rök hinna voru þau, að þetta háa verð á olíunni hlyti að vera tímabundið og því væri rétt að líta til þess eins og á stæði, en halda sér að öðru leyti við óbreytta skiptaprósentu. Í þessu stappi var staðið þó nokkra stund, og það varð svo að lokum ofan á að skiptaprósentuleiðin varð fyrir valinu, því að ekki var hægt að hafa aðra aðferð fyrir yfirmenn og aðra fyrir undirmenn. Þetta skapaði strax allmikla óánægju hjá mönnum.

Ég sagði áðan að mér hefði verið í lófa lagið og sömuleiðis hverjum þm. að setja ákvæði um að lögin tækju ekki gildi fyrr en allt lægi fyrir. En þá væru ekki heldur í dag orðnar neinar breytingar á sjóðakerfinu. Ég treysti á undirskriftir og drengskap manna að standa við sínar undirskriftir. Það leyfði ég mér að gera. Það var alls ekki ætlun nokkurs manns að sjómenn fengju 33% fiskverðshækkun út á þessa grundvallarbreytingu og tækju ekkert tillit til þess í sínum kjarasamningum.

Síðan voru þessir samningar lagðir undir atkvæði í stéttarfélögunum, og þá gerist það, að þeir eru samþ. í nokkrum félögum, en felldir í öðrum, og það kemst á þvílík ringulreið í samtökum sjómanna að það fær enginn við neitt ráðið. Þessir félagsfundir voru mjög fámennir víðast hvar, ef ekki alls staðar, og í atkvgr. voru samningar ýmist felldir eða samþ. með örfárra atkvæða mun. Allt niður í 5 félagsmenn í einstöku félagi tóku á félagsfundi þátt í afgreiðslu þessara mála. (Gripið fram í: Af hvað mörgum félögum í allt?) Það var auðvitað misjafnt. En það hafa verið vafalaust 60, 70, 80, 100 félagar og nokkur hundruð félaga þar sem atkv. greiddu kannske 12, 15. Í sannleika sagt var þessi þátttaka alveg hörmuleg, og ég skal koma betur inn á það síðar.

En í stað þess að halda verkfalli áfram, eins og búið var að tilkynna og verkfall var hafið, þá leystist verkfallið upp án þess að því væri aflýst og hefur ekki verið aflýst enn. Menn, sem greiddu atkv. á móti samningnum í sínu stéttarfélagi, fóru í aðra verstöð og réðu sig þar á báta, þar sem höfðu verið samþ. samningar. Svona var ringulreiðin orðin á öllum sviðum, því miður.

Tvö sambönd, Alþýðusamband Austurlands og Alþýðusamband Vestfjarða, skrifuðu undir yfirlýsinguna um skuldbindingu að ganga til samninga með fyrirvara um sérsamninga, um sérkröfur í sínum byggðarlögum. Alþýðusamband Austurlands fylgdi þessum fyrirvara sínum eftir með viðræðum við sína viðsemjendur um sérsamninga og náðist samkomulag þar um sem var undirritað af trúnaðarmönnum beggja. Aftur fóru samningar þar undir atkv, og voru felldir. En Alþýðusamband Vestfjarða hafði nokkuð annan hátt á. Það undirritaði þetta skýlausa samkomulag, en fór aldrei, ekki af neinni alvöru, í neinar samningaviðræður við sína viðsemjendur og lét þetta lönd og leið. Mér finnst rétt að lesa hér upp það samkomulag sem þessir aðilar allir gerðu og undirritað er 8. febr, á þessu ári, en þar segir:

„Sjómannasamband Íslands, Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðusamband Austurlands og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, fyrir hönd sjómanna, og Landssamband íslenskra útvegsmanna og Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda, fyrir hönd útvegsmanna, gera með sér samkomulag um eftirgreind atriði:

1. Þar sem ríkisstj. hefur lýst því yfir að hún hún muni beita sér fyrir setningu laga og reglugerða í samræmi við tillögur og ábendingar tillögunefndar um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti, lýsa aðilar því yfir, að þeir muni gera þá samninga sin á milli, sem nú eru lausir, um kjör sjómanna á grundvelli tillagna og ábendinga sem fram koma í skýrslu n., dagsettri 19. janúar 1976.

2. Aðilar lýsa því enn fremur yfir, að þeir muni beita sér fyrir því, að heimildir verði veittar til þess að taka þegar upp samninga á þessum grundvelli um breytingar á þeim kjarasamningum aðila, sem ekki hefur verið sagt upp, með sama hætti og væru þeir lausir.

3. Aðilar þessa samkomulags gera ráð fyrir að ríkisstj. láti fara fram sérstaka athugun á kjörum áhafna og afkomu útgerðar á stærri togurum (þ.e. 500 brúttólestir og yfir) við þessar breytingar. Athugun þessi verði gerð í samráði við samtök sjómanna og útvegsmanna og fulltrúa þeirra byggðarlaga, sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta, með það fyrir augum að tryggja atvinnu sjómanna og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á þessum stöðum, sbr, bréf sjútvrn. til Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, dags. 3. júlí 1975.“

Og undir þetta rita f.h. Sjómannasambands Íslands Jón Sigurðsson, f.h. Farmanna- og fiskimannasambandsins Ingólfur Stefánsson, f.h. Alþýðusambands Austurlands Sigfinnur Karlsson, f.h. Alþýðusambands Vestfjarða Pétur Sigurðsson og f.h. Landssambands ísl. útvegsmanna Kristján Ragnarsson og f.h. Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda Ingimar Einarsson.

Samkvæmt þessu og því öðru, sem ég hef sagt hér áður um þessi mál, hangir þetta allt saman: kerfisbreytingin á sjóðunum, fiskverðshækkunin og samningar um kaup og kjör sjómanna, miðað við þessar breytingar eins og samninganefndin lagði fyrir.

Hitt er aftur rétt, að vitaskuld eru allir samningar háðir því að félagsmenn samþ. þá. En þegar samningar eru felldir, þá er um leið verið að fella þessa kerfisbreytingu og þá má því segja að þeir, sem ekki vilji semja upp á þessi býti, hafi hafnað kerfisbreytingunni, hafi hafnað því að leggja niður sjóðakerfið í þessari mynd og hafnað því að fá þá fiskverðshækkun sem leiddi af sjóðakerfisbreytingunni. Hinir, sem sömdu, áttu fullan rétt á því að fá þetta, því þeir höfðu staðið við þessa samninga. Útvegsmenn og aðrir, sem skrifuðu undir samkomulagið, skrifa undir það á sömu forsendu og fulltrúar sjómanna, að þetta hangi allt saman, þetta sé allt í einum pakka til þess að það nái fram að ganga.

Sáttanefnd ríkisins hélt, þrátt fyrir þessa afgreiðslu á samningunum áfram sínum störfum, að vísu með mjög löngum hléum, — það má segja að þar hafi átt sér stað löng hlé, af þeirri einu ástæðu að menn töldu rétt að bíða um sinn, sjá hvort eitthvað rættist úr. Svo er í júlímánuði, — ég held að það hafi verið 28. júlí, — borin fram till. sáttanefndar sem felur í sér nokkra breytingu til hins betra fyrir sjómenn. Sú till. var til lítillar gleði útvegsmönnum. Ég átti margar viðræður við þessa aðila alla og m.a. reyndi ég eins og ég mögulega gat að hafa þau áhrif á útgerðarmenn, að þeir samþykktu þessa sáttatillögu, og sömuleiðis á forvígismenn sjómannasamtakanna, að þeir skýrðu þessa sáttatill. og samningsgerð alla miklu betur fyrir sínum félagsmönnum en gert var í febr. og siðar á þeim fámennu fundum sem voru haldnir. Ég þori að fullyrða að það hafi verið mikill misbrestur á því að leiðtogar sjómanna hafi fylgt þessum málum eftir. Það var ákveðið að hafa almenna atkvgr. í félögum þeirra, og hún fór á þann veg að það tóku 274 þátt í atkvgr. og miðlunartillaga sáttanefndar var felld með 140 atkv. gegn 122, 7 seðlar voru auðir og 5 ógildir. Til marks um þátttöku í atkvgr., sem stóð í heilan mánuð, þykir mér rétt að upplýsa hvernig þátttakan var í hinum einstöku félögum:

Sjómannafélag Reykjavíkur, þar greiddu 18 atkv., í Aftureldingu, Hellissandi, 12, Jökli á Ólafsvík 9, Stjörnunni á Grundarfirði 25, Verkalýðsfélagi Stykkishólms 26, Fram á Sauðárkróki 17, Ársæl á Hofsósi 4, Vöku á Siglufirði 11 Sjómannafélagi Eyjafjarðar 46, Jökli, Hornafirði, 13 og Verkalýðs- og sjómannafélögum Miðneshrepps 6, Gerðahrepps 5, Keflavíkur 19, í Vélstjórafélagi Suðurnesja 36 og í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar 21.

Þetta er dapurleg útkoma á atkvgr. við þriðju gerð til sátta í þessari deilu í jafnfjölmennum samtökum og sjómannasamtökin eru. Það má segja að í aðildarfélögum Farmanna- og fiskimannasambands Íslands hafi atkvgr. þó verið nokkru betur sótt, en þar fór fram landsatkvgr. um alla samninga í einu lagi og voru atkv. talin þar 16. mars. Þar voru samningarnir felldir með 198:135 atkv., svo að þrátt fyrir þessi úrslit voru auðvitað skoðanir þeirra, sem þátt tóku í atkvgr. mjög skiptar um samningana. Hins vegar var hinn aðilinn, vinnuveitendur. Þeir samþykktu þessa samninga, bæði þessa og sáttatillöguna frá 28. júlí.

Þessi brbl., sem út voru gefin 6. sept., kveða á um það, að samningar þeir, sem samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna undirrituðu 29. febr. á þessu ári, 1. og 27, mars, 14. maí og 28. júlí, en það var sáttatillaga sáttanefndarinnar, og eru prentaðir sem fskj, með þessu frv., þeir skuli gilda um kaup og kjör sjómanna um land allt, eftir því sem við á fyrir hvert félag sem aðild átti að þeim og fyrir það tímabil sem samningarnir kveða á um. Fyrir þau félög sjómanna, sem ekki áttu neina aðild að samningum þessum, skulu þeir einnig ákveða kaup og kjör, eftir því sem við getur átt og með þeim hætti sem tíðkast hefur. Með því orðalagi er því náð, að þar sem hlutfallið var annað á skiptaprósentu, þar sem það var hlutfallslega hærra en á þeim stöðum þar sem samningarnir voru samþykktir, þá ætti það skiptahlutfall að haldast. Samningurinn frá 28. júlí á einnig að gilda, eftir því sem við á, fyrir þau félög sjómanna sem ekki áttu aðild að honum.

Í 2. gr. þessara brbl. segir, að „verkbönn og verkföll, þ. á m. samúðarverkföll eða aðrar aðgerðir í því skyni að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða, eru óheimil, sbr. II. gr. l. nr. 88 frá 1938, um stéttarfélög og vinnudeilur. Þó er samningsaðilum, sbr. 1. gr., heimilt að koma sér saman um breytingar á þar greindum samningum, en eigi má knýja þær breytingar fram með vinnustöðvun.“ Varðandi það, sem hefur verið sagt allvíða og síðast í gær í „prologus“ fyrir þessari umr. um lagafrv. í víðkomandi deild, að það hafi ekkert verkfall verið og því ástæðulaust að banna verkföll og verkbönn, þá hefur verkföllum ekki, eins og ég sagði áðan, verið aflýst. Verkföllin gufuðu upp vegna þess að félögin réðu ekki við sína meðlími. Þess vegna var hægt að fara í þetta verkfall hvenær sem var. En það, sem máli skiptir, og það, sem er kjarni þessa máls frá byrjun og til þessa dags, er að það sé staðið við það sem um var samið og allt hékk saman og allir treystu að mundi ganga fram. Það var ekki verið að knýja þessa samninga fram á nokkrum dögum eða víkum. Það er búið að vera í 7 mánuði að basla með þetta fram og til baka með þessum líka glæsilega árangri, eins og síðasta atkvgr. segir til um. Það er ekki verið að binda hér hendur samningsaðila eða launþega langt fram í tímann. Það er verið að binda stóru samningana við stærri gerðir togara til áramóta, en þá renna þeir út samkv. ákvæðum þeirra samninga og þá geta auðvitað aðilar hafið sínar samningaumleitanir, en aðrir samningar renna út 15. maí og þá liggur auðvitað það sama fyrir og áður. Það er ekki hægt að lifa í sambúð á milli sjómanna og útgerðarmanna með þeim hætti sem hafði skapast, og það er raunasaga út af fyrir sig hvernig sumir menn hafa tekið þessu, tekið því með miklu upphlaupi og brambolti, en létu sér fátt um finnast, þegar verið var að leita sátta og láta fara fram atkvgr. með þeim hætti sem ég hef þegar lýst. Þá var enginn áhugi á því að hvetja sjómenn eða meðlimi sjómannafélaganna til þess að neyta síns atkvæðisréttar og sýna það svart á hvítu hver var vilji félagsmanna almennt. Þá var enginn hvattur til neins og menn héldu að sér höndum í þessum efnum. En þegar á að skera á og ganga eftir því að haldið sé við það samkomulag sem gert var og ég lýsti hér í upphafi, þá er genginn berserksgangur með lista, sem er hér afhentur í gær, búið að panta ræðumann sérstaklega til þess að tala utan dagskrár og undirbúa hann undir það. Eitthvað hafði þó skolast til í því hlutverki öllu, því að hann byrjaði á því að tilkynna að mér hefðu verið afhentir þessir listar, en það var þá þegar til kom að forseta Sþ. voru auðvitað afhentir listarnir, sendir niður í Alþingi. Eitthvað hafði það nú farið forgörðum.

Ég lít á þetta mál — og bið engan afsökunar á því — ég lít á þetta frumhlaup allt sem ósköp lítilfjörlegan skrípaleik í einu orði sagt. Hér er ekkert verið að koma inn á kjaramál sjómanna að öðru leyti en því, að það er verið að lögfesta að þeir, sem njóta hækkaðs fiskverðs vegna kerfisbreytingarinnar, verði allir að taka þátt í því sama. Annað væri mismunun, að ætla að láta þá, sem höfðu samið, taka það á sig, hina, sem neita að semja, vilja ekki einu sinni ræða samninga af neinni alvöru, fá 33% fiskverðshækkun og ekki taka tillit til neins sem var að gerast í kringum þá. Þeir hefðu þá átt að segja strax: Við viljum þetta ekki. — Þá var það ákveðið að sjóðakerfisbreytingin ætti sér ekki stað.

Ég get ekki látið svo hjá líða að fylgja þessu máli úr hlaði að ég nefni ekki þær breytingar sem orðið hafa á fiskverði, á skiptaverði, á árunum 1974–1976. Samkv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar var vísitala skiptaverðmætis botnfiskafla 51% hærri í ársbyrjun 1976 en tveimur árum fyrr, humarafla 43% hærri, hörpudisksafla 113% hærri, en hins vegar lækkaði vísitala skiptaverðmætis rækjuafla um 4% og loðnuafla um 16% á þessu tímabili vegna verðlækkana á erlendum mörkuðum. Þegar gert er ráð fyrir því að veitt hafi verið hlutfallslega jafnmikið af einstökum fisktegundum á tímabilinu frá 1. jan. til 15. febr. 1976 og á sama tíma á árinu 1975, þá hefur vísitala skiptaverðmætis alls afla verið að meðaltali 45% hærri í ársbyrjun 1976 en tveimur árum fyrr. Almennt fiskverð var óbreytt frá janúarbyrjun til ágústloka á árinu 1974, en hefur síðan hækkað nokkuð, bæði 1. jan., 1. júní og 1. okt. ár hvert. Við sjóðakerfisbreytinguna 16. febr. hækkar fiskverð verulega, og ef gert er ráð fyrir sömu samsetningu á botnfiskafla 1976 og var 1975, þá hefur skiptaverðmæti þess afla hækkað um 33% við sjóðakerfisbreytinguna samkv. útreikningum Þjóðhagsstofnunar. Humarverðið hækkaði um 67%, rækjuverð um 38% og verð á hörpudiski um 35%. Eftir sjóðakerfisbreytinguna hefur almennt fiskverð hækkað tvívegis: 1. júlí og 1. okt. Auk þess hækkaði verð á karfa um 46% frá 8. júní og til áramóta. Það var í og með gert til þess að auka sóknina í karfann og þar með að minnka sóknina í þorskinn að taka þetta stóra stökk. Það fékkst ekki allt með verðbreytingum erlendis á þeim tíma, en hluti af því, en ríkissjóður tók ábyrgð á viðmiðunarverði Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins.

Samtals hefur almennt fiskverð hækkað um 63% frá því fyrir sjóðakerfisbreytingu, miðað við sömu aflasamsetningu og 1975, og um 146% frá ársbyrjun 1974 eða réttara sagt frá ágústlokum 1974, því að verðið var óhreytt það ár til 1. sept. Humarverðið hefur hækkað um 37% frá sjóðakerfisbreytingu, en um 167% frá ágúst 1974. Rækjuverð hefur hækkað um 90% frá 15. febr., en ekki nema um 82% frá árinu 1974 vegna lækkunar á rækjuverði á tímabilinu. Verð á hörpudiski hefur hækkað um 19% frá því fyrir sjóðabreytingu, en það hefur nú lækkað seinni hluta þessa árs, en hækkað þrátt fyrir það um 154% frá 1. sept. 1974. Miðað við að hlutfallsleg skipting verðmætis milli fisktegunda hafi veríð sú sama á árinu 1976 og var 1975, þá hefur skiptaverðmæti alls afla hækkað að meðaltali um 32% við sjóðakerfisbreytinguna, 33% hið almenna fiskverð, en minna aftur verð á öðrum tegundum, þannig að Þjóðhagsstofnun telur að meðaltalsverðhækkunin sé 32%, og um 61% frá því sem var fyrir hana og um 133% frá 1. sept. 1974.

Ég held, að ég þurfi ekki að hafa þessi orð miklu fleiri. Ég hef skýrt aðdragandann og ég undirstrika það, að þessi brbl, eru ekki sett til þess að blanda sér almennt í kjaradeilu á milli sjómanna og útvegsmanna, heldur fyrst og fremst til þess að samræmis sé gætt í þeim samningum sem fóru fram á þessu tímabili og voru forsenda þess að þessi kerfisbreyting gæti átt sér stað, að fiskverð hækkaði og samkomulag næðist um kaup og kjör.

Herra forseti. Ég vil að lokinni þessari umr. leggja til að frv. verði vísað til hv. sjútvn.