27.04.1977
Neðri deild: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3813 í B-deild Alþingistíðinda. (2744)

16. mál, kaup og kjör sjómanna

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Því miður get ég ekki gerst dómari í deilumálum þeirra hv. þm. Karvels Pálmasonar og hæstv. ráðh. Matthíasar Bjarnasonar um hvor þeirra segi alveg satt frá orðaskiptum, jafnvel þó að ég hafi þekkt annan þeirra í áratugi og hinn í all­mörg ár. Ég vil þó gjarnan lýsa því yfir, að báðir þessir hv. þm. vilja gjarnan segja satt og eru reiðubúnir til þess þegar svo ber undir. En ekki veit ég hvað olli því, að þegar ég heyrði þá deila hér á sínum tíma, þá datt mér í hug teikn­ing sem ég sá fyrir mörgum árum. Það var teikn­ing sem kunnur breskur blaðateiknari af gyð­ingaættum, mig minnir að hann hafi heitið David Low eða David Lom eða eitthvað slíkt, gerði á stríðsárunum, en þá var hann einn kunn­asti „karikatúr“-teiknari í Bretlandi. Teikning þessi var af þeim fóstbræðrum Göring og Göbbels þar sem þeir stóðu með sannleiksgyðjuna á milli sín. Sannleiksgyðjan stóð á haus, þeir Göring og Göbbels héldu sinn í hvorn ökla á sannleiks­gyðjunni og undir myndinni stóð: „Die Wahrheit, nicht wahr?“ Sannleikurinn, ekki satt? — Ekki veit ég hvað olli því, að mér datt endilega þessi mynd í hug þegar þeir, mínir ágætu félagar af Vestfjörðum, voru að rífast um sannleikann. En jafnfús er ég til að trúa því, að annar þeirra segi satt, eins og ég er fús til að trúa því að báðir geri það að nokkru leyti.

Sjálfsagt er ekki ástæða til þess að efast um það, að hv. þm. Karvel Pálmason hefur e. t. v. haft einhver orð við hæstv. sjútvrh. um þessa sjómannasamninga, þó að ég hins vegar vilji draga mjög í efa að þau orð hafi verið á þá lund sem hæstv. sjútvrh. lýsir. E. t. v., hefur þetta verið eitthvað svipað og í sögu sem ég heyrði nú fyrir fáum dögum af ráði sem Kekkonen Finnlandsforseti gaf einhvern tíma Karjalainen. Sag­an segir frá því, að þá var Karjalainen nýkominn úr opinberri heimsókn til Afríkuríkja. Þar hafði hann fengið ýmsar gjafir, m. a. stóran apa. Sunnu­dagsmorgun einn, þegar Kekkonen er í heilsu­göngu í Helsinki mætir hann svo Karjalainen þar sem hann labbar með apann í bandi á eftir sér. Og Kekkonen fer til Karjalainens og segir við Karjalainen: „Ósköp er að sjá þetta. Hvað ert þú að þvælast með apann hér á götum Helsinki?“ Og aumingja Karjalainen hristir höfuðið og seg­ir: „Ja, ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við hann. Mér var gefið þetta í Afríku, og ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við apann, svo að ég tek hann venjulega með mér í morgungöng­ur.“ Þá segir Kekkonen við Karjalainen: „Ég skal gefa þér eitt gott ráð, Karjalainen minn. Farðu bara með apann í dýragarðinn. Þar er hans rétta umhverfi. Svo að ekki þurfi að vera að ráfa með hann hér um götur höfuðborgarinnar áttu að fara með hann í dýragarðinn.“ „Þetta skal ég svo sannarlega gera, Kekkonen minn,“ svaraði Karjalainen. Svo kveðjast þeir. Næsta sunnudags­morgun fer Kekkonen aftur í morgungöngu. Mætir hann þá ekki Karjalainen með apann. Hann víkur sér að Karjalainen og segir við hann: „Heyrðu, hvernig var þetta, þáðir þú ekki þessa ágætu ráðleggingu sem ég var að gefa þér s. l. sunnudag?“ „Jú, ég er nú hræddur um það,“ segir hinn. „Þetta var alveg dásamlegur dagur fyrir okkur báða. Nú er ég að fara með apann í þjóðminjasafnið.“

Ætli þær hafi ekki verið eitthvað svipaðar, ráðleggingarnar sem hv. þm. Karvel Pálmason gaf hæstv. sjútvrh. í sambandi við sjómannasamningana, að hæstv. sjútvrh. hafi misskilið ráð­leggingar hv. þm. Karvels Pálmasonar álíka og Karjalainen misskildi ráðleggingu Kekkonens um að fara með apann í dýragarðinn? En ég fer ekki fleiri orðum um deilu þeirra ágætu þingbræðra minna vestan af fjörðum.

Hitt vil ég taka undir með hv. þm. Karvel Pálmasyni, að það segir að sjálfsögðu sína sögu um mál, sem er skráð sem 16. mál þingsins og er lagt fyrir þetta þing við upphaf þingstarfa s. l. haust, hvað því veldur að það er fyrst nú, örfáum dögum áður en þinglausnir eiga að fara fram og örfáum dögum áður en brbl., sem frv. er ætlað að staðfesta, falla úr gildi, sem leitað er eftir staðfestingu á þessum brbl. Ég vil taka það fram, að mér er jafnkunnugt um það og hv. þm. Karvel Pálmasyni að hér er ekki við hæstv. sjútvrh. að sakast. Hæstv. sjútvrh. hefði fyrir löngu viljað vera búinn að fá tækifæri til þess að bera þetta frv. endanlega undir þingheim. Hins vegar er mér jafnkunnugt um það og Kar­vel Pálmasyni, hv. þm., að það eru stuðnings­menn hæstv. sjútvrh. í stjórnarflokkunum sem hafa komið í veg fyrir að þetta frv. næði eðlileg­um framgangi hér í þingsölum, einfaldlega vegna þess að þessir hv. stjórnarþm., þ. á m. flokksbræð­ur hæstv. sjútvrh., eru á móti þeim afskiptum, sem þetta frv. gerir ráð fyrir og brbl. fólu í sér, og vilja reyna að forðast í lengstu lög að þurfa að taka þátt í afgreiðslu þessa frv. Þetta er ástæð­an fyrir því að mál, sem merkt er 16. mál þings­ins og var lagt fyrir þing strax í haust, er nú, mörgum mánuðum síðar, til endanlegrar afgreiðslu.

Aðeins þessi saga málsins hér í þinginu sýnir ljóslega fram á að það sætir ekki aðeins gagnrýni okkar stjórnarandstæðinga, heldur ekki síður að þetta mál á ekki upp á pallborðið hjá stuðningsmönnum ríkisstj., flokksbræðrum hæstv. sjútvrh. og samstarfsmönnum hans í Framsfl. Og e. t. v. verður það enn betur til þess að skýra þetta fyrir mönnum þegar það er haft í huga, að sú n. í hv. Ed., sem búin er að liggja á þessu frv. í allan vetur, er undir forsæti stjórnarþm. Stein­gríms Hermannssonar, hv. 2. þm. Vestf., og eins helsta samstarfsmanns hæstv. ráðh. í þinginu og innan stjórnarsamstarfsins, sem væntanlega má ætla. Þessi áhrifamikli þm. hefur sem sé látið það viðgangast, jafnvel átt meiri hlut að því en aðrir nm. í sjútvn. Ed. Alþ., að þetta frv. lá þar óafgreitt mánuðum saman, uns svo var komið að það voru aðeins örfáir dagar eftir af gildistíma brbl. sem þetta frv. á að staðfesta.

Ég get ósköp vel skilið sárindi hæstv. sjútvrh. út af þessu. Ég get ósköp vel skilið það, að hæstv. ráðh. uni hví ekki að þingið afgreiði ekki frá sér mál til þess að staðfesta aðgerðir sem hæstv. sjútvrh. hefur haft í frammi og þurft einn að bera ábyrgðina á mánuðum saman. Auðvitað er honum umhugað um það, hæstv. ráðh., að koma þeirri ábyrgð sem allra fyrst af herðum sér og yfir á herðar samþm. sinna úr stjórnarliðinu, þ. á m. yfir á herðar hv. þm. Steingríms Her­mannssonar. En það hefur ekki gengið björgu­legar en ég var hér að lýsa, að hv. flokksbræður ráðh. og þm. úr samstarfsflokki hans í ríkisstj. hafa nú mánuðum saman barist gegn því, að þetta frv. væri afgreitt, og því getað fengið sér nokkurn frest frá því að þurfa að axla þær þungu byrðar vegna þessa máls sem hæstv. sjútvrh. hefur einn þurft að bera um margra mánaða skeið og ekki unað sér ýkjavel undir. Afgreiðslan á þessu máli lýsir því betur en flest annað, að með aðgerðum sínum í septembermánuði á s. 1. hausti greip hæstv. ráðh. til örþrifaráða sem í raun og veru eiga sér andstæðinga ekki aðeins meðal stjórnarandstæðinga hér á þingi, heldur með stjórnarliðum líka. Þá er aðeins eftir að sjá hvort niðurstaðan verður sú sama hér í hv. Nd. Alþ. eins og hún reyndist vera í hv. Ed., að þeir stjórnarsinnar, m. a. af Vestfjörðum, sem stóðu gegn því að þetta mál yrði afgreitt í Ed. mánuðum saman, enduðu með því að láta hæstv. ráðh. beygja sig og ekki aðeins greiða atkv. með afgreiðslu þessa frv., heldur einnig mæla sérstak­lega með að það yrði samþykkt, eins og hv. þm. Steingrímur Hermannsson lét sig henda.

Það vill nú svo vel til, að það eru fleiri vestfirðingar á Alþ. en þeir sem sitja í Ed., m. a. tveir hv. þm. hér, og það verður gaman að sjá hvort þeir hafa sömu afstöðu til þessa máls og flokksbræður þeirra í Ed., — máls sem hafði þau áhrif á kjör vestfirskra sjómanna sem hv. þm. Karvel Pálma­son var að lýsa hér áðan. Það á eftir að koma í ljós.

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þetta frv. hér að þessu sinni, enda mjög skammt sem eftir lifir af störfum Alþ., og ég vil alls ekki tefja það að þetta mál geti komið til afgreiðslu, vegna þess að ég er að sjálfsögðu hæstv. sjútvrh. fyllilega sammála um það, að Alþ. á jafnan að fjalla um og afgreiða staðfest­ingar í brbl. sem ráðh. gefa út. Það á ekki að koma fyrir að brbl. séu gefin út og gildistími þeirra sé látinn líða án þess að þau komi til Alþingis ­til umfjöllunar og úrskurðar. Sama á að gilda um þessi brbl., sem hér er flutt frv. til staðfestingar á, að það á að sjálfsögðu að vera búið að fjalla um það frv. áður en gildistími brbl. er liðinn. Um þetta er ég fyllilega sammála hæstv. sjútvrh. Hins vegar vil ég vekja athygli á því, að það er farið að gerast í nokkuð ríkum mæli að ríkisstj. eru farnar að nota brbl. sem aðferð til þess að stjórna með tilskipunum. Það er orðið þannig, að það líður vart svo sumar að ekki séu gefin út brbl., ekki aðeins ein brbl., heldur jafnvel svo mörg að nemi einum lögum á hvert em­bætti ráðh. Þetta eru að sjálfsögðu mjög óæski­legir stjórnarhættir, og mjög víða, t. d. í sumum nágrannalöndum okkar, er ekki unnt fyrir ríkis­stj. að stjórna landi með slíkum hætti. Þar er ekki unnt fyrir ríkisstj. að setja lög, sem hún setur til bráðabirgða, án þess að þingið hafi áður staðfest lagasetninguna og beri ábyrgð á henni. Þetta er ekki hægt að gera í mörgum nágranna­löndum okkar, og reynslan, sem við höfum haft á undanförnum árum af slíkum starfsaðferðum ríkisstj., bendir til þess, að við þurfum að end­urskoða ákvæði um brbl. — setningu í stjórnar­skrá lýðveldisins Íslands í þá átt að setja frekari hömlur við brbl.-setningu ríkisstj. en þar er gert, t. d. vegna þess að ríkisstj., m. a. sú ríkisstj. sem nú situr, og fyrst og fremst sú ríkisstj. hefur beinlínis litið fram hjá forsendum brbl.-setningar eins og þær eru orðaðar í stjórnarskrá lýðveldis­ins. Þær eru ekki lengur teknar til álita. Það er ekki einu sinni litið á lengur að þær forsendur fyrir brbl.-setningu verði að vera fyrir hendi sem stjórnarskráin þó mælir ótvírætt fyrir um að fyrir hendi skuli vera.

Í 28. gr. stjórnarskrárinnar, sem fjallar um brbl., segir þannig, að forseti geti gefið út brbl. milli þinga þegar brýna nauðsyn ber til. Þetta hefur jafnan verið skilið svo og á að skilja svo, að til þessa eigi ekki að grípa, að ríkisstj. setji lög án samþykkis þings, nema um þjóðarvoða sé að ræða og ekki sé unnt að kveðja Alþ. til. Ég tel að þessa 28. gr. stjórnarskrárinnar eigi tvímælalaust að skilja þannig, að ríkisstj. sé óheimilt að setja brbl. nema undir alveg sér­stökum kringumstæðum, þegar um þjóðarvoða er að ræða eða ástand svo alvarlegt, að það geti skapað stórkostlega erfiðleika fyrir þjóðarbúið í heild ef ekkert sé að gert, og tími svo knappur, að ekki sé ráðrúm til þess að kalla Alþ. saman. Þennan meginefnisþátt 28. gr. stjórnarskrárinnar hefur hæstv. sjútvrh. og hæstv. núv. ríkisstj. þverlega brotið í brbl. þeim sem sett voru 6. sept. 1976 um kaup og kjör sjómanna, vegna þess að þegar þessi brbl. voru sett, þá var ekkert alvar­legt þjóðarvandamál um að ræða í þessum mál­um. Það stóð ekki yfir neitt verkfall, flotinn lá ekki bundinn. Hér var ekki um það að ræða að fram undan væru ekki aðeins mikil átök milli útvegsmanna og sjómanna, sem þegar væri búið að stofna til, heldur einnig það, að í hreinan þjóðarvoða gæti verið stefnt með því að binda við bryggju stórvirkustu framleiðslutæki lands­manna. Ekkert slíkt lá fyrir. Skipin voru að veiðum, sjómenn voru að starfa, fiskverkunarstöðvarnar snerust á fullu, fólkið í landi var að vinna eins lengi og eins vel og það gat, og það hafði ekkert verkfall verið orðað hjá sjómönn­um. Það hafði ekki einu sinni verið rætt um það í þeirra hópi að boða til verkfalls. Það var ekki einu sinni búið af þeirra hálfu að setja í gang þau formsatriði sem fyrst þarf að ljúka til þess að til verkfalls geti komið. Aðstæðurnar í þjóðfélaginu voru sem sé aðstæður eins og við þekkj­um þær frá degi til dags, aðstæður nákvæmlega eins og þær eru t. d. í dag. Það var ekki þá sá bráði þjóðarvoði sem verður að vera forsenda þess að hægt sé að setja brbl., a. m. k. forsenda þess hjá mönnum sem vilja virða anda þing­ræðis og lýðræðis, þann anda sem stjórnarskrá okkar er samin í. Það hefði e. t. v. getað verið skiljanlegt ef hæstv. sjútvrh. hefði gripið til þess ráðs að setja brbl. í deilu sem hefði þegar verið búin að kosta það, að flotinn hefði t. d. legið dögum og jafnvel vikum saman bundinn við bryggju, fiskframleiðslan stöðvuð dögum eða vikum saman og jafnvel þjóðargjaldþrot blasti við. Þá hefði verið verjandi fyrir hæstv. sjútvrh. að grípa til valds síns eins og það getur orðið mest. Og ég veit ekki til þess, að nokkur ráðh. hafi nokkurn tíma gripið til þess valds nema við slíkar aðstæður. Slíkt hefur enginn ráðh. leyft sér fyrr en 6. sept. 1976, að hæstv. núv. sjútvrh. setti þau brbl. sem hér um ræðir án þess að svo mikið væri búið að boða til verkfalls eða væri farið að ræða um það í hópi sjómanna eða út­vegsmanna.

Þess vegna hefur það verið skoðun okkar alþfl.­manna frá upphafi að þessi brbl. stæðust ekki, og það er skoðun mín að forseti Íslands hefði ekki átt að samþykkja þessa brbl.-setningu með undirskrift sinni, eins og hann þó því miður gerði. Ég tel að átt hefði að reyna á það með einhverjum hætti hvort hér væri löglega að farið af ríkisstj., vegna þess að ef ekki reynir á það, t. d. fyrir dómstólum, þá er hér verið að setja svo hættulegt fordæmi að ráðh. geta í raun réttri farið að leika sér sjálfir með það löggjafarvald sem samkv. stjórnarskrá lýðveldis okkar er í höndum 60 þjóðkjörinna manna hér á Alþ. Ef þetta fordæmi á að notast sem hér er sett, þá getur það gerst í sumar, næsta sumar og hvaða sumar sem er, að hvaða ráðh. sem er í hvaða ríkisstj. sem er geti leikið sér að því að nota það vald, sem er í höndum okkar 60 þjóðkjör­inna manna, til þess að setja lög um hvað sem er, yfir hvern sem er hjá þessari þjóð. Þetta er það fordæmi sem gefið var með brbl.-setning­unni 6. sept. í haust. Og þetta mál ber okkur þm. skylda til þess að líta á sem þm., en ekki sem stjórnarsinnar eða stjórnaranástæðingar. Þeir, sem nú eru stjórnarandstæðingar, eiga einhvern tíma eftir að verða stjórnarsinnar, skyldi maður ætla, og þeir, sem nú eru stjórnar­sinnar, eiga einhvern tíma eftir að verða stjórn­arandstæðingar. Og ég vil biðja hv. þm. ríkis­stj. að hugleiða það mjög vel og vandlega, hvaða fordæmi þeir eru að skapa hér í þingsal með því að afgreiða slíka bráðabirgðalagasetningu jákvætt, hvaða vanda þeir kunna með slíkri afgreiðslu að vera að skapa sér og flokkum sínum og þeim sem eiga eftir að taka við þingstarfi af þeim einhvern tíma síðar, þegar í ráðherrastól eru sestir menn sem hv. stjórnarsinnar treysta e. t. v. ekki jafnvel og þeir treysta þeim mönnum sem nú fara með ráðherravaldið.

Ég held að það sé vissulega kominn tími til þess fyrir okkur þm., alveg sama hvort við erum stjórnarsinnar eða stjórnarandstæðingar, að hugleiða mál eins og þessi vel og vandlega. Við megum ekki meta öll mál út frá því, hvort við sitjum á þeirri stundu, sem þau eru borin upp til atkv., í stjórn eða í stjórnarandstöðu. Við eigum að líta á málin einnig með tilliti til þess, hvaða fordæmi þau kunni að gefa. Og vilja alþm. virkilega taka þátt í því að setja það fordæmi, að ráðh. geti að eigin geðþótta og án þess að nokkur brýn þjóðarnauðsyn krefji leikið sér einn og óstuddur með það vald sem 60 þjóðkjörnum þm. er falið og er æðsta valdið með þessari þjóð? Vilja þm. taka þá áhættu, að einn og sami einstaklingurinn geti ekki aðeins einn og ó­studdur farið frjáls og óháður með framkvæmda­vald sem ráðh., heldur einnig löggjafarvald sem 60 þm. er ætlað með að fara.

Ef menn samþykkja þetta frv. eða mæla með því, eins og ýmsir óbreyttir hv. þm. í Ed. hafa gert, þá eru þeir að setja slíkt fordæmi, og ís­lenskir alþm., Alþingi íslendinga og þjóðin öll eru kannske ekki búin að bíta úr nálinni með hvað slíkt fordæmi kann að hafa í för með sér á næstu árum og áratugum. Þetta tel ég vera meginatriðið við þetta frv., sem gerir það að verkum að ég er andvígur því. Hér fyrr í vetur, í haust, var það raunar, talaði ég um önnur atriði frv., sjálf efnisatriðin, sem ég tel minna máli skipta. Ég ætla því ekki að endurtaka þau ummæli mín hér, en vísa í þingtíðindi þar sem þau eru prentuð og röksemdirnar gegn efnis­atriðum frv. koma fram.

En ég vil aðeins að lokum benda á eitt atriði í ræðu hæstv. ráðh. áðan. Hann færði fram m. a. sem afsökun fyrir aðgerðum sínum, að í atkvgr. um samningana á sínum tíma, lýðræðislegri atkvgr., hefðu svo fáir þátttakendur verið. Skiptir það þá máli fyrir grundvallarreglur lýðræðisins hversu margir þeir eru sem taka þátt í kosning­um? Er þá t. d. auðveldara, ef við höldum þess­ari hugsun áfram, er þá t. d. minna lýðræði og auðveldara og sjálfsagðara að hafa lýðræðisleg­ar ákvarðanir að engu ef lítil þjóð tekur ákvörð­unina, en ekki stór, og þeir, sem taka þátt í kosningunum, eru fáir, en ekki margir? Eru t. d. ákvarðanir, sem teknar eru af 200 þús. íslend­ingum, minna virði en ákvarðanir sem teknar eru af 200 millj. bandaríkjamönnum — sem lýð­ræðisákvarðanir á ég við, — bara vegna þess að lýðræðið á Íslandi hlýtur að vera verra en lýðræðið í Bandaríkjunum af því að það eru færri sem taka þátt í því. Í þessum atkvgr., sem fóru fram um sjómannasamningana á sínum tíma, var öllum sjómönnum heimilt að taka þátt, að nýta sinn atkvæðisrétt. Þeir gerðu það hins vegar ekki. Menn ráða því í lýðræðisríkjum hvort þeir kjósa eða kjósa ekki. Menn eru ekki neyddir til að taka þátt í kosningu frekar en þeir vilja. Ein af réttindum lýðræðisins eru þau að sitja heima, fá að láta ákvörðunina afskiptalausa, ef menn svo vilja. Hér höfum við ekki 99.98% þátttöku í kosningum eins og hjá Kim II-Sung í Norður-Kóreu eða hjá Stalín og síðan öðrum stjórnarherrum í Rússlandi. Hér höfum við leyfi til þess að sitja heima og taka ekki þátt í atkv­gr. Og ég spyr einfaldlega: Ef svo hefði verið í síðustu alþingiskosningum í Vestfjarðakjördæmi, að aðeins 28% kjósenda hefðu tekið þátt í atkvgr., í valinu á þm. Vestf., en úrslitin að öðru leyti hefðu verið óbreytt, þannig að t. d. hæstv. ráðh. hefði verið kjörinn 1. þm. Vestf. og hefði náð þeim úrslitum með 28% kjörsókn., væri hans kjör þá eitthvað minna virði, væri hann réttminni sem alþm., bara út af þeirri staðreynd að aðeins 28% kosningabærra manna á Vestfjörðum hefðu tekið þátt í atkvgr., heldur en hann er nú? Mundi t. d. hæstv. dómsmrh. geta á þeirri forsendu sett brbl. um það að svipta hv. 1. þm. Vestf. þingsæti sínu, vegna þess að svo fáir vestfirskir kjósendur hafi tekið þátt í að kjósa hann af þeim sem atkvæðis­rétt höfðu? Þetta eru sömu röksemdirnar og not­aðar eru gegn afgreiðslu sjómannafélaganna á kjarasamningunum. Og þessar röksemdir geri ég ekki nokkurn skapaðan hlut með.

Ég vil enn fremur benda á það, sem hæstv. ráðh. er mætavel kunnugt, hver var ástæðan fyrir því, var og er, að kjörsókn meðal sjómanna, þegar greidd eru atkv. um sjómannasamninga, er lítil. Hún var ekki bara lítil þegar atkv. voru greidd í þetta sinn, heldur er það venjan að þátttaka er frekar lítil hjá sjómönnum. Ég skal skýra út hvers vegna. Hæstv. ráðh. veit það raunar miklu betur en ég.

Hér er um það að ræða að hver sjómaður hefur kosningarrétt hjá sínu félagi, en yfirleitt er það þannig, að sjómenn, jafnvel þó að þeir séu skráðir í félag, t. d. Sjómannafélag Reykjavíkur, þá stunda þeir sjómennsku á bátum eða skipum frá öðrum verstöðvum. Þegar skip kemur að landi og skipsmenn ætla að taka þátt í atkvgr. í við­komandi verstöð, þá er kannski ekki nema lítill hluti af skipsmönnum, kannske enginn, sem get­ur greitt atkv. á viðkomandi stað, vegna þess að þetta eru menn sem eiga atkvæðisrétt í öðru sjó­mannafélagi. Þetta vita menn, þetta veit hæstv. sjútvrh., og þetta er ástæðan fyrir því að þátt­taka sjómanna í atkvgr. um kaup og kjör er yfir­leitt lítil ef miðað er við fjölda félagsmanna í félögum þeirra. Fjöldinn allur af t. d. sjómönn­um á Suðurnesjum svo og fjöldinn allur af sjó­mönnum á Vestfjörðum er á skipum sem róa frá öðrum verstöðvum en þeir eru skráðir til heim­ilis á. Þessir fjölmörgu sjómenn geta alls ekki tekið þátt í atkvgr. á þeim stað þar sem skip þeirra leggja upp þó þeir fegnir vildu. Þetta er skýringin á því, að t. d. eins og í Grindavík, Sandgerði eða Keflavík eru þetta og þetta margir sjómenn, en aðeins lítill hluti þeirra tekur þátt í atkvgr. Þetta er hin einfalda skýring. Þetta vita allir. Og hæstv. sjútvrh., sem sjálfur hefur tals­vert mikla reynslu sem útgerðarmaður og af fisk­verkun og fiskvinnslu og útgerð fiskiskipa, veit þetta sem sagt miklu betur en ég, þótt hann telji ekki ástæðu til þess að hafa orð á því hér.