27.04.1977
Neðri deild: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3837 í B-deild Alþingistíðinda. (2758)
209. mál, skipulagslög
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég er alveg sammála því, sem kom fram hjá hv. frsm., að þarna er verkefni sem auðvitað verður að leysa. En spurningin er bara hvernig hægt er að leysa það á þann hátt að það verði ekki tilfinnanlega dýrt. Og ég er ákaflega hræddur um það, að ef á að fara alveg eftir bókstaf frv., þá verði það miklu dýrara en annars þyrfti að vera. Ég held að þau tímamörk, sem sett eru, þ. e. a. s. líklega í árslok 1980, það sé allt of skammur tími til að leysa þetta verkefni af hendi.
Ég held að það verði að gera þetta á skipulegan hátt. En eins og frv. er, þá á að fylgja leyfisumsókn afstöðuuppdráttur þar sem sýndar eru þær byggingar sem eru fyrir og sótt er um leyfi til að byggja, og á afstöðuuppdrættinum skal enn fremur sýna veg að býlinu, tengingu hans við þjóðveg og vatnslagnir og holræsalagnir að og frá býli. Þetta þýðir það, að ekki dugir að hafa þetta riss sem sýni afstöðuna, heldur á þetta að vera fullkominn uppdráttur sem á að vera hjá byggingarfulltrúa og á að halda við og setja inn á jafnóðum og að framkvæmdum er unnið á hverju býli. Á þessu þyrfti að verða sú breyting, að hægt sé að framkvæma þetta á skipulegan hátt og það sé til þess mannafli, því að þetta er mikil vinna. Ég hef rætt þetta við menn sem hafa gert þetta og gera sér grein fyrir hvað þetta er mikil vinna. Þeir telja að kosta mundi a. m. k. allt að 40 millj. að gera slíka uppdrætti fyrir sveitabýli í landinu. Það sýnir að þetta er verk sem verður ekki gert í skyndingu, og ef hver og einn ætti að panta þessa menn eða fá þá áður en sótt er um leyfi, þá er ég hræddur um að þessi upphæð mundi margfaldast. Þess vegna verður á þeim tíma þar til lögin koma til framkvæmda jafnvel að breyta þessari grein á þann veg, að það sé hægt að vinna að þessu á skipulagðan hátt. Og í trausti þess, að hæstv. félmrh. og hæstv. landbrh. athugi þetta mál betur, þá stend ég að því að samþykkja bæði þessi frv., vegna þess að það þarf að semja reglugerðir sem mundi taka mikinn tíma. Ég vil ekki setja fótinn fyrir þetta, en treysti því, að þetta verði endurskoðað og annaðhvort framkvæmt eða breytt, ef þarf að breyta greininni, á þann veg að það sé hægt að gera þetta á skipulagðan hátt og kostnaður verði ekki margfaldur við að gera slíka uppdrætti miðað við það sem þyrfti að vera ef hæfilegur tími væri til.