27.04.1977
Neðri deild: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3837 í B-deild Alþingistíðinda. (2759)
209. mál, skipulagslög
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Ég vil þakka formanni og frsm. félmn. fyrir þá miklu vinnu sem hann hefur lagt í þetta mál. Ég held að hér sé um merkilegt mál að ræða. Það komu í fyrra fram úr ýmsum áttum ýmsar aths. sem formaður n. ásamt ráðuneytisstjóra félmrn. hefur rannsakað gaumgæfilega milli þinga, og ég ætla að sú athugun hafi leitt til góðrar niðurstöðu.
Varðandi ábendingar hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, þá verða þær að sjálfsögðu teknar til athugunar.