27.04.1977
Neðri deild: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3844 í B-deild Alþingistíðinda. (2770)
101. mál, virkjun Hvítár í Borgarfirði
Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Út af þessari síðustu athugasemd vil ég geta þess, að hæstv. iðnrh. hefur það oft lýst afstöðu sinni í þessu máli, m. a. á fundum í Munaðarnesi, í Borgarnesi og víðar um Vesturland, að hann getur ekki snúið til baka. Og við nokkrir fulltrúar af Vesturlandi höfum gengið fyrir bæði hæstv. forsrh. og iðnrh. hér í Reykjavík og raunar ríkisstj., svo ég held að það sé ekki um að villast, allra síst afstöðu hæstv. iðnrh. Tel ég því ástæðulaust að fresta málinu þess vegna.