27.04.1977
Neðri deild: 76. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (2807)
4. mál, umboðsnefnd Alþingis
Frsm. (Ellert B. Schram):
Hæstv. forseti. Hér er um að ræða frv. til 1. um umboðsnefnd Alþingis, sem flutt er af hv. þm. Benedikt Gröndal. Þessu frv. var vísað til allshn. og hún leitaði umsagnar forseta Alþingis.
Umsögn forsetanna var efnislega á þá leið, að áður hafði verið flutt frv. um umboðsmann Alþ. nokkrum sinnum, bæði sem þmfrv. og stjfrv. Stjfrv. hafi verið flutt um málið á þinginu 1974–1975, en varð þá ekki útrætt, og það frv. mun nú vera í athugun í n. sem falið var að endurskoða það. Frv. það, sem hér um ræðir, felur í sér aðra lausn á sama máli. Eðlilegast virðist að ákvæði þess komi til athugunar hjá n. þeirri sem áður er um getið. Er því lagt til að frv. þessu verði vísað til ríkisstj. í því skyni að hún sendi það til umræddrar nefndar.
Undir þessa umsögn skrifa forsetar Alþingis: Ásgeir Bjarnason, Þorv. Garðar Kristjánsson og Ragnhildur Helgadóttir.
Með tilvísun til þessarar umsagnar hefur allshn. lagt til að frv. verði vísað til ríkisstj. Svava Jakobsdóttir, hv. 5. landsk. þm., var fjarverandi afgreiðslu þessa máls.