27.04.1977
Neðri deild: 76. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3860 í B-deild Alþingistíðinda. (2813)
124. mál, símaafnot aldraðs fólks og öryrkja
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Síðast hefði ég trúað því að hæstv. samgrh. brygðist við á þann hátt sem hann gerði áðan þó að einhverjir þm. deildu á hann, vildi ég heldur segja en að hér væri um að ræða persónulegar svívirðingar um hæstv. ráðh. Það er orðið vandlifað hér á hv. Alþ. ef einstökum þm. er í raun og veru meinað að gagnrýna hæstv. ráðh., hvort sem það er hæstv. samgrh. eða einhver annar, í tilfellum sem þeim þykja gagnrýnisverð og ástæða til að gagnrýna fyrir. Það er náttúrlega hægt, ef menn endilega vilja, að taka alla gagnrýni sem persónulegar árásir á viðkomandi, en þá er það einungis gert til þess að forðast gagnrýni. Hélt ég að hæstv. samgrh. væri ekki svo veikur fyrir því, hann þyldi gagnrýni úr ýmsum áttum og þó allharkaleg væri, hefur mér fundist. En menn eldast. Hér getur verið um að ræða að hæstv. ráðh. sé farinn frekar að kveinka sér vegna aldurs, en ég hef samt ekki orðið var við það fyrr en nú.
Þá sagði hæstv. ráðh. í sambandi við þetta, að í lögunum stæði að ráðh. mætti ákveða, en ekki væri um skyldu að ræða. Nú hef ég ekki lesið þessa lagagrein og ég efast ekki um að ráðh. fer með rétt mál þar. En þó að það sé aðeins um það að ræða að viðkomandi ráðh. megi gera þetta, þá hlýtur þó viðkomandi ráðh. að taka mark á viljayfirlýsingu Alþ. í tilteknu efni þó einungis sé um að ræða heimild eða að hæstv. ráðh. megi gera eitthvað. Ef hann hefur fyrir sér viljayfirlýsingu Alþ. ótvíræða, sem hér fer ekkert milli mála að var, þá hlýtur það að vera að hæstv. ráðh. líti svo á að Alþ. ætlist til að þetta sé gert eins og það var samþ. Ella, ef það væri ekki, ef viðkomandi ráðh. virti að vettugi viljayfirlýsingu þingsins, þá væri hér bara um það að ræða að hæstv. ráðh., hvort sem það er þessi eða annar, eða hæstv. ríkisstj. væri að leika sér með alþm., ef hún virðir að vettugi þær ákvarðanir sem þeir hafa tekið. Og í þessu máli skiptir heldur engu það sem hæstv. ráðh. var um að tala, hvort einhver ágreiningur hefur verið um þetta mál. Staðreyndin er sú, að þetta var samþ., og það er það sem hlýtur að verða að taka tillit til og fara eftir, hvort sem einhver andstaða, sem ég dreg nú mjög í efa, hefur verið við málið á þessum tíma. En þó að svo hafi verið, þá liggur það fyrir, að þetta var samþ. og það er ótvíræður vilji þingsins að þetta verði gert.
Hæstv. ráðh. sagði einnig að hann teldi í raun og veru ótækt að vísa þessu máli ekki til n. Ég er annarrar skoðunar. Ég tel að hér sé um svo sjálfsagt mál að ræða, bæði að því er varðar fyrra atriði till. og einnig hið síðara. A. m. k. treysti ég mér til þess og tel ekkert óeðlilegt við það, að till. væri borin hér upp án þess að hún færi til. N. og atkv. greidd um hana, eins og hún liggur fyrir, án þess að n. hafi um hana fjallað.
Ef það er svo í sambandi við að till. verði vísað til heilbr.- og trn., að þá telji hæstv. samgrh. sig þar með lausan allra mála, þá hef ég tilhneigingu til þess að gera till. um að málið færi frekar til samgn. (Gripið fram í.) Nei, það er varla ástæða til að ætla það, held ég. (Forseti: Ég vil vekja athygli á því, að sumir þm., sem tala í þessu máli, hafa ekki verið við allar umr. og samgrh. hefur sjálfur gert till. um samgn.) Ég þakka hæstv. forseta fyrir þessa ábendingu. Það verður þá væntanlega úr því skorið með atkvgr. í hvora n. till. fer, þ. e. a. s. ef annar hvor tillögumanna tekur ekki till. sína til baka.
En sem sagt, þetta mál var síðast hjá heilbr.- og trn. Hún var algjörlega sammála um þetta mál. Málið hefur verið samþ. í þinginu og ekkert hefði átt að vera því til fyrirstöðu a. m. k. að framkvæma fyrri hluta till. Um síðari hlutann gegnir kannske öðru máli, en að mínu viti er hann einnig svo sjálfsagður að það er ekkert því til fyrirstöðu, að ég held, að afgreiða það atriði einnig og að það ásamt hinum fyrri hluta — ítrekuðum með viljayfirlýsingu Alþ. — komi þá til framkvæmda hið allra fyrsta.