28.04.1977
Efri deild: 67. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3865 í B-deild Alþingistíðinda. (2822)

208. mál, byggingarlög

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði í frv. sem ég vildi koma að nú þegar, og það var fyrst og fremst það sem hv. þm. Oddur Ólafsson ræddi um áðan, það sem lýtur að tilhögun bygginga á þá lund að fatlað fólk geti komist um þjónustubyggingar. Því er nátt­úrlega ekki að leyna, ég tek undir það með honum, að mér finnst vera til stórbóta að fá þetta inn í frv. En þetta eitt nægir náttúrlega ekki, og um það veit ég að hv. þm. Oddur Ólafs­son er mér sammála, að þetta er gott svo langt sem það nær, en við verðum að gera miklu betur. Við erum með í gangi fjölmargar opin­berar byggingar, bæði hér í Reykjavík á vegum ríkisins og á vegum opinberra aðila, þar sem fatlað fólk getur alls ekki borið sig um. Húsið, sem við störfum í, alþingishúsið, er e. t. v. gleggsta dæmið um þetta. Það er gersamlega ómögulegt fyrir fólk, sem bundið er við hjóla­stóla, að komast inn í þetta hús eða hér á milli hæða. Það getur ekki einu sinni komist upp á áheyrendapallana til þess að geta fylgst með hví álengdar sem rætt er um í þingsölum þessa húss. Slík hús eru ákaflega mörg hér í Reykja­vík á vegum hins opinbera þar sem fatlað fólk kemst alls ekki um.

Lausleg úttekt, sem gerð hefur verið á vegum landssamtaka fatlaðra, hefur leitt í ljós að hér í Reykjavík eru á vegum hins opinbera, að því er mig minnir, rétt 27 hús þannig úr garði gerð að fatlað fólk kemst alls ekki inn í þau, þ. e. a. s. af eigin rammleik, og misjafnlega að vísu ástatt um þau.

Ég tel sem sagt nauðsynlegt að við berum það í sinni, að hér er aðeins náð örlítið í áttina til þess sem þarf að ná með því að taka þetta ákvæði inn í byggingarlögin. Við þurfum að gera miklu betur, kveða á um það að opinber­um byggingum verði breytt, þeim sem fyrir eru, í það horf að fólk komist um þær í hjólastólum og sé þar sjálfbjarga.

Síðan er að minni hyggju alveg bráðnauðsyn­legt að kveða á um það í byggingarsamþykktum, að hús séu yfirleitt hönnuð þannig að þau séu veðhæf með tilliti til þarfa fatlaðs fólks. Það er óneitanlega mikils í misst fyrir þetta fólk með tilliti til hins almenna íbúðamarkaðar, hversu mörg af þeim húsum, sem eru til sölu á frjálsum markaði, margar íbúðir eru þannig, að þær koma ekki til greina fyrir fatlað fólk eða fólk í hjólastól, það getur ekki notað þær, ekki bara vegna stiganna, heldur vegna herbergja­skipunar og gáttastærðar eða dyrastærðar, t. d. inn á snyrtingu eða á milli stofa. Ég held að það kæmi mjög svo til greina að það yrði fært í lög, að til þess að íbúð sé veðhæf þurfi hún að uppfylla ákveðin lágmarksskilyrði til þess að fatlað fólk geti notað þær — geti búið í þeim.