28.04.1977
Efri deild: 71. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3874 í B-deild Alþingistíðinda. (2846)

198. mál, tímabundið vörugjald

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Eins og fram kom í máli formanns hv. fjh.- og viðskn. hef ég ritað undir nál. með fyrirvara. Það geri ég ein­faldlega vegna þess, að ég er andvígur vöru­gjaldinu. Ég tel að eigi að leggja það niður og og skattlagning ríkisins hafi verið og sé úr hófi fram, sérstaklega hvað snertir neysluskatta eins og vörugjaldið er. Hitt er allt annað mál, að hér er bara um samræmingu að ræða, nánar til tekið leiðréttingu á áður settum lögum vegna mistaka eða misskilnings, og ég hef að sjálf­sögðu ekkert við það að athuga að þess háttar samræming eigi sér stað. Þess vegna mun ég ekki greiða atkv. á móti frv., enda þótt ég sé hins vegar andvígur vörugjaldinu sem slíku.