28.04.1977
Efri deild: 73. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3879 í B-deild Alþingistíðinda. (2862)

213. mál, Skálholtsskóli

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. menntmn. á þskj. 571, mælir n. með samþykkt frv. með lítils háttar breyt­ingu sem flutt er á sérstöku þskj. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru þeir Ingi Tryggva­son og Þorv. Garðar Kristjánsson.

Ég vísa til þeirrar framsöguræðu sem hæstv. menntmrh. hélt hér í hv. d. fyrir skömmu, en vil segja það í sambandi við þær breytingar sem hér er lagt til að gerðar verði, að í frv. segir svo — með leyfi forseta — um 8. gr. varð­andi a-liðinn:

„Rekstrarkostnaður skólans skal greiddur að fullu annar en rekstrarkostnaður heimavistar, sem greiðist 80%. Framlag ríkissjóðs samkv. þessum staflið skal að hámarki miðað við kostn­að í ríkisskólum á framhaldsskólastigi.“

Menntmn. fannst eðlilegt að þetta ákvæði gilti um báða stafliðina, b-liðinn líka, þ. e. a. s. það sem tekur til stofnkostnaðarins, þannig að grein­in byrji þannig:

„Um fjárveitingar úr ríkissjóði til Skálholts­skóla gildir eftirfarandi:

a) Rekstrarkostnaður skólans skal greiddur að fullu annar en rekstrarkostnaður heimavistar, sem greiðist 80%.

b) Stofnkostnaður þess kennsluhúsnæðis, sem byggt verður eftir gildistöku þessara laga, skal greiddur úr ríkissjóði að 80% og skal hið sama gilda um heimavist.

Þó skal framlag ríkissjóðs samkv. þessum stafliðum miðast að hámarki við kostnað í ríkisskólum á framhaldsskólastigi.“

Með þessu vildi n. tryggja það bæði varðandi reksturinn og stofnkostnað, að um þátttöku ríkissjóðs giltu sömu reglur um þennan skóla og ríkisskóla á framhaldsskólastigi. Fyrir liggur nú frv. að rammalöggjöf um framhaldsskólana og þar er gert ráð fyrir að úr gildi falli lög um þá framhaldsskóla sem eru starfandi nú. En þau taka ekki til laga um þennan skóla. Ef þetta frv. verður samþykkt, þá falla þau lög ekki úr gildi þegar lög um framhaldsskóla verða sam­þykkt. N. fannst því eðlilegt að tryggja strax í upphafi að þarna yrði fyllsta samræmi á milli, bæði varðandi þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við rekstur og hvað stofnkostnað áhrærir.

Ég endurtek síðan, herra forseti, að menntmn. leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytnigum sem ég hef nú þegar lýst.