28.04.1977
Efri deild: 73. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3882 í B-deild Alþingistíðinda. (2868)

21. mál, leiklistarlög

Albert Guðmundsson:

Forseti. Ég er hræddur um að hv. formaður menntmn. hafi misskilið það sem ég er aðallega að benda á og gera aths. við. Það er það sem ég vil kalla öfugþróun, að ríkið skuli vera að blanda sér með laga­boðum og alls konar tilskipunum inn í sveitar­stjórnarmál almennt. Það er á fleiri sviðum en þessu sviði, en ég geri aths. við þetta frv., sem hér liggur fyrir til leiklistarlaga, vegna þess að sams konar hugsun kemur þar fram í þeim hluta 2. gr. sem ég las upp áðan. Þetta er miklu stærra mál en bara það sem stendur hér.

Í sambandi við tónlistarskólana vil ég leið­rétta, að Reykjavíkurborg og sveitarfélög almennt ber að styrkja tónlistarskóla fullnægi þeir ákveðnum skilyrðum. Við getum ekki neitað að styrkja þá fullnægi þeir húsnæðisskilyrðum og fullnægi þeir kennaraskilyrðum, þ. e. a. s. skil­yrðum um hæfa kennara o. s. frv. Við getum ekki neitað að viðurkenna skóla ef þeir fullnægja þeim skilyrðum sem lög segja til um.

En ég vil ítreka það, að það er þessi tilhneig­ing ríkisvaldsins til þess að ráða sveitarstjórnar­málum með lagaboðum og tilskipunum sem ég er að mótmæla.