28.04.1977
Neðri deild: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3885 í B-deild Alþingistíðinda. (2883)

104. mál, sauðfjárbaðanir

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég vil taka það fram, að það voru gerðar tvær smábreytingar á þessu frv. í hv. Ed. Þær voru bornar undir mig áður en þær voru gerðar og þær spilla málinu á engan hátt, nema síður sé. Ég hef því ekki aðra ósk fram að bera en að málið verði afgreitt hér óbreytt.