28.04.1977
Neðri deild: 78. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3907 í B-deild Alþingistíðinda. (2902)
158. mál, hundraðföldun verðgildis íslenskrar krónu
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft þessa þáltill. til meðferðar, till. til þál. um könnun á hundraðföldun verðgildis íslenskrar krónu. Álit n. er á þskj.
547. Þar kemur fram að n. hafi kynnt sér þetta mál á nokkrum fundum sínum. Einnig hefur n. kynnt sér umsögn Seðlabankans um málið og grg. bankans frá 1972 um gjaldmiðilsbreytingu, en sú grg. var gerð í tilefni þáltill. sem þá kom fram um tíföldun verðgildis íslenskrar krónu. Auk þess hefur n. kynnt sér álitsgerð aðalféhirðis Seðlabankans til bankastjórnar um endurskipulagningu seðla- og myntútgáfunnar, en sú álitsgerð er frá því í marsmánuði s. l.
Í umsögn Seðlabankans koma nokkur atriði fram, sem mér þykir rétt að nefna hér. Þar segir m. a. að á undanförnum árum hafi mál varðandi skipulag á útgáfu myntar og seðla verið til stöðugrar athugunar í Seðlabankanum og hafi verið gerðar í þessum efnum umtalsverðar breytingar til aukinnar hagræðingar og sparnaðar við sláttu á mynt og seðlaútgáfu. Í þessu sambandi hafi m. a. verið fjallað um kosti þess og galla að tekin yrði upp ný mynteining er hefði tíu- eða hundraðfalt verðgildi miðað við núverandi krónu.
Árið 1972, þegar þessi mál voru til umr. á Alþ., sendi bankinn frá sér grg., dags. 12. apríl 1972, þar sem gerð var grein fyrir þróun þessara mála og skoðanir bankans á þeim reifaðar. Og svo nýlega hefur aðalféhirðir Seðlabankans gengið frá grg. til bankastjórnarinnar og sú grg. fjallar um endurskipulagningu seðla- og myntútgáfu, þar sem m. a. er fjallað um hugsanlega gjaldmiðilsbreytingu.
Bankastjórnin tekur svo fram nokkur atriði í sinni umsögn sem ég skal aðeins drepa á:
Í fyrsta lagi að á undanförnum árum hafi verið að því stefnt að endurskoða mynt- og seðlastærðir í því skyni að draga úr kostnaði og auka hagkvæmni í notkun seðla og myntar í viðskiptalífinu. Mikilvægasti þátturinn í þessum breytingum hefur verið niðurfelling smámyntar, minni en einnar krónu, en með þeim hætti hafi í reynd verið strikaðir út tveir aukastafir í öllum fjárhæðum sem notaðar eru í bókhaldi og viðskiptum.
Í öðru lagi er það nefnt, að verði nú að því stefnt að taka upp nýja mynteiningu í stað núgildandi krónu komi ekki annað til greina en hún verði hundrað sinnum verðmætari en núgildandi króna.
Þá kemur hér fram, að eins og nú sé komið málum sé það skoðun bankastjórnar Seðlabankans að eina veigamikla röksemdin fyrir gjaldmiðilsbreytingu nú liggi í því að hún kunni að hafa hagstæð sálræn áhrif, draga úr verðbólguhugsunarhætti, vera tákn þess að nýtt líf væri hafið í efnahagsmálum. En það sé svo að sjálfsögðu að miklu leyti pólitískt mat, hver líkindi séu á því að þessi hagstæðu áhrif næðust. Það er minnst hér á reynslu annarra þjóða, og hún bendir til þess, að slíkt mundi því aðeins gerast að samtímis ætti sér stað veruleg stefnubreyting í meðferð efnahagsmála almennt. Besta dæmið um það sé gjaldmiðilsbreytingin sem átti sér stað í Frakklandi eftir að D'e Gaulle kom til valda og gerbylti stjórn efnahagsmála þar í landi. Er látinn í ljós í þessari umsögn vafi á því, hvort svo hagstæður árangur næðist hér á landi, sérstaklega vegna þess hve langan aðdraganda gjaldmiðilsbreytingin hlyti að hafa.
Af því, sem þarna hafi verið rakið, sé ljóst, að það sé skoðun Seðlabankans að færa megi rök bæði með og á móti þeirri skoðun að ráðist verði í gjaldmiðilsbreytingu hér á landi í náinni framtíð. Rökin fyrir gjaldmiðilsbreytingu séu fyrst og fremst af pólitískum og sálrænum toga spunnin og þau verði því ekki vegin til fulls nema fram fari um þessi mál almennari umr. á opinberum vettvangi en átt hafi sér stað til þessa. Ef tilgangur gjaldmiðilsbreytingar sé sá einn að auka traust á verðmæti gjaldmiðilsins og stuðla þannig að auknum sparnaði og heilbrigðara viðhorfi til peninga, þá hljóti það að vera forsenda góðs árangurs að ákvörðun um hana hljóti sem almennastan stuðning þjóðarinnar.
Ég hef nú rakið nokkur atriði úr umsögn Seðlabankans, en mér þykir rétt að nefna hér einnig nokkur atriði sem koma fram í álitsgerð aðalféhirðis Seðlabankans til bankastjórnarinnar frá því í marsmánuði s. l. Hann nefnir í álitsgerð sinni, að um sé að ræða tvo kosti: annars vegar að auka verðgildi krónunnar og svo hins vegar óbreytta stefnu. Um fyrri kostinn, að auka verðgildi krónunnar, segir hann svo m. a.:
„Á undanförnum árum hefur það álit iðulega verið rætt að auka ætti verðgildi krónunnar. Árið 1962 skipaði fjmrh. n. til að kanna m. a. hvort æskilegt væri að taka upp nýja og stærri mynteiningu. Komst n. þá að þeirri niðurstöðu að tífalda bæri verðgildi krónunnar, en till. hennar var hafnað af þáverandi stjórnvöldum. Tíu árum síðar kom fram þáltill. á Alþ. sama efnis, en þá taldi bankastjórn Seðlabankans að slík breyting væri ekki hagkvæm og tíföldun krónunnar væri um seinan. Rökstuddi bankastjórnin þá skoðun sína m. a. með því, að á undanförnum árum hefðu verið gerðar kostnaðarsamar breytingar á mynt- og seðlakerfinu. Hins vegar taldi bankastjórnin rétt að kanna, þegar krónan væri orðin minnsta mynteiningin, hvort æskilegt væri að hundraðfalda verðgildi krónunnar.“ — Og það er einmitt það sem þessi till., sem hér er til meðferðar, fjallar um.
Varðandi hinn kostinn, að hafa óbreytta stefnu, fer aðalféhirðirinn nokkrum orðum og ég sé ekki ástæðu til að vera að tíunda það sérstaklega. Hann segir þó hér, að ef halda eigi áfram á sömu braut verði fljótlega ekki hjá því komist að stíga næsta skref og það sé þríþætt: Í fyrsta lagi að gefa út nýja verðmeiri seðla, að verðgildi 10 þús. kr. og síðar 50 þús. kr. Hann nefnir hér að hlutdeild 5000 kr. seðla í seðlamagninu sé nú 79% eða svipuð og hlutdeild 1000 krónu seðla var þegar 5000 krónu seðlar komu fyrst í umferð í apríl 1971 og þetta hlutfall sé óeðlilega hátt. Í öðru lagi þurfi að slá 100 krónu mynt í stað 100 krónu seðils. Og í þriðja lagi þurfi að endurskipuleggja myntútgáfuna með tilliti til útlits, stærðar og þyngdar.
Þetta eru helstu atriðin sem ég vildi nefna og koma fram í umsögn Seðlabankans og þessari álitsgerð um endurskipulagningu seðla- og myntútgáfunnar.
Það er niðurstaða fjh.- og viðskn., að með hliðsjón af þessum athugunum sé réttmætt að sú athugun, sem þáltill. gerir ráð fyrir, fari fram, en þá sem liður í umfangsmeira verki sem miði að því að auka virðingu fyrir gjaldmiðlinum og styrkja hann á annan hátt. Því er það till. n. að með þessari umsögn verði málinu vísað til ríkisstj.