28.04.1977
Sameinað þing: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3933 í B-deild Alþingistíðinda. (2910)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Ekki mun lengur um það deilt, að sú stefna í efnahagsmálum, sem núv. ríkisstj. hefur fylgt, hefur haft í för með sér einhverja þá mestu kjaraskerðingu hjá launafólki sem um getur um langt árabil. Þessi kjaraskerðingarstefna hefur að sjálfsögðu bitnað hvað harðast á þeim hópi launþega sem hvað höllustum fæti hefur staðið og hefur haft hvað minnst úr að spila. Það er hin markvissa og þrautseiga stefna ríkisstj. í efnahagsmálum sem hæstv. forsrh. var að hæla hér áðan.
Á því rúmlega ári, sem liðið er síðan gengið var frá samningum milli aðila vinnumarkaðarins eftir eitt víðtækasta verkfall sem háð hefur verið hér á landi frá upphafi íslenskar verkalýðsbaráttu, hefur kaupmáttarrýrnun orðið meiri en dæmi eru um áður. Á fyrstu þrem mánuðunum eftir að samningar voru undirritaðir árið 1976 hafði allt verðlag í landinu hækkað um 7–8% að meðaltali. Þessi þróun verðlagsmála var runnin undan rifjum ríkisstj. og til þess gerð að reyna að telja fólki trú um að sú verðhækkanaskriða, sem yfir dundi, væri orsök og afleiðing þeirrar kjarabaráttu sem verkalýðshreyfingin háði, og það sé sönnun þess að kjarabaráttan sé einskis virði. Þessi var áróður ríkisstj. og Morgunblaðsins, þrátt fyrir þá staðreynd að sýnt var fram á að af þeirri 7–8% verðhækkun, sem varð á þessu þriggja mánaða tímabili, var aðeins rösklega 1% rakið til launahækkana, en 6% voru afleiðing beinna pólitískra ákvarðana ríkisstj. Þessi þróun átti sér stað aðeins á þrem fyrstu mánuðunum eftir að samningar voru undirritaðir.
En hin sama þróun hefur haldið áfram allt samningstímabilið. Kaupmáttur hefur stöðugt farið minnkandi, og nú stendur fyrir dyrum allsherjar launauppgjör í landinu, því að eftir aðeins tvo daga falla úr gildi samningar landverkafólks. Samningaumleitanir hafa staðið yfir nokkuð á, annan mánuð, en svo til ekkert hefur gerst sem bendir til að ríkisstj. eða atvinnurekendur ætli sér að fallast á þær grundvallarkröfur sem verkalýðshreyfingin hefur sett fram umbjóðendum sínum til handa. Dag eftir dag er setið á Loftleiðahótelinu og þess beðið að ríkisstj. eða atvinnurekendum þóknist að verða svo lítillát þó ekki væri nema að svara þeim réttmætu kröfum sem fram hafa verið settar. En hvorugt hefur gerst þar til í gær, aðeins örlaði á glætu af hálfu vinnuveitenda.
Hæstv. forsrh. sagði hér áðan: Ríkisstj. mun segja hver stefna hennar er í þessum efnum. –- En hvenær verður það sagt? Nú hefur verkalýðshreyfingin dregið verkfallsvopnið úr slíðrum og verkföll virðast ekki umflúin, nema þá því aðeins að bæði ríkisstj. og vinnuveitendur geri sér ljóst að ekki verður lengur undan því vikist að koma til móts við þær grundvallarkröfur sem verkalýðshreyfingin hefur sett fram, en þær eru krafan um lágmarkslaun og krafan um fullar verðlagsbætur á laun í krónutölu. Það eru þessar kröfur sem bæði Alþýðusambandsþing á s. l. hausti og kjaramálaráðstefna Alþýðusambandsins á s. l. vetri ákváðu að hafa sem algerar forgangskröfur í þeim samningum sem nú standa yfir, og frá því verður ekki vikið. Það er nauðsynlegt að bæði ríkisstj. og vinnuveitendur víti og geri sér ljóst í tæka tíð.
Það er við þessar aðstæður, yfirvofandi verkföll og algera óvissu á vinnumarkaðinum, sem ríkisstj. hefur tekið þá ákvörðun að senda Alþ. heim eftir 3–4 daga. Hæstv. ríkisstj. virðist telja henta nú að losa sig við þingið og hafa að því leyti frjálsar hendur. Hún virðist ekki telja hyggilegt að hafa yfir höfði sér þrýsting eða áhrif frá Alþ. til lausnar þeim aðkallandi vandamálum sem að steðja og eru bein afleiðing af stefnu ríkisstj. sjálfrar í efnahags- og launamálum. En þrátt fyrir þetta er rétt að ríkisstj. viti það, að sá eindregni vilji og sú eindregna réttlætistilfinning, sem að baki liggur kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar um að berjast nú til þrautar fyrir þeirri stefnu sem Alþýðusambandsþingið mótaði, lágmarkslaunum og fullri verðtryggingu, verður ekki brotin á bak aftur. Hvorki ríkisstj., atvinnurekendum né neinum öðrum mun verða liðið að koma í veg fyrir að sú stefna nái fram að ganga.
En það eru fleiri launþegar en landverkafólk sem nú hyggjast rétta hlut sinn gagnvart óvinveittri ríkisstj. og vinnuveitendum. Sjómenn undirbúa nú kjarabaráttu sína, en þeir eru ein þeirra stétta sem óréttlætishrammur ríkisstj. hefur seilst til og hefur með lagaboði skikkað sjómenn til að vinna við kjör sem þeir höfðu áður hafnað með frjálsum samningum. Enginn vafi er á því, að brbl.-setningin á sjómenn, sem ríkisstj. beitti sér fyrir, hefur þjappað sjómönnum saman og eflt stéttarvitund þeirra til þess að snúa bökum saman í baráttunni gegn óvinveittu ríkisvaldi. Þeir eru því í baráttuhug til að endurheimta það sem ranglega hefur verið af þeim tekið.
Á sama hátt undirbúa nú opinberir starfsmenn kjarabaráttu sína.
Af þessu er ljóst að öll samtök launafólks í landinu búast nú til baráttu gegn þeirri efnahagsstefnu og ranglátu tekjuskiptingu sem fylgt hefur verið í tíð núv. ríkisstj., — efnahagsstefnu sem leitt hefur til þess að Ísland er nú orðið láglaunaland. Það ætti að vera öllum ljóst, a. m. k. er það launafólki ljóst, að eitthvað er athugavert við þá efnahagsstefnu sem hefur það í för með sér, að á sama tíma og þjóðarframleiðsla vex rýrnar stöðugt kaupmáttur launafólks. Slíkri stefnu verður að sjálfsögðu ekki unað, og er því höfuðhlutverk verkalýðshreyfingar og launafólks að koma stjórnvöldum í skilning um að slíkt ranglæti er í algerri andstöðu við verkalýðshreyfinguna og launafólk í landinu.
Góðir hlustendur. Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um það sem verið hefur að gerast í launamálum að undanförnu, og er það ekki óeðlilegt, svo mjög sem þau mál eru nú í brennidepli í öllum þjóðmálaumræðum um þessar mundir. En það er á fleiri sviðum en í kjaramálum sem stjórnarstefna núv. ríkisstj. hefur markað spor til óréttlætis og ójafnaðar.
Í s. 1. viku urðu hér á Alþ. umr. um stefnuna í orkumálum. Í þeim umr. var sýnt fram á hvernig sú stóriðjustefna í orkumálum, sem núv. ríkisstj. hefur að leiðarljósi, hefur haft í för með sér byggðaröskun og ójöfnuð meðal landsmanna. Sú stefna í orkumálum að láta orkuöflun til stóriðju njóta forgangs hér á Suðvesturlandi hefur haft það í för með sér að heilir landshlutar eru í orkusvelti og íbúum þeirra svo herfilega mismunað samanborið við það, sem gerist hér á þessu svæði, að engu tali tekur. Það verður aldrei nógsamlega undirstrikað, hversu gífurlegar byrðar hafa verið lagðar á það fólk úti á landsbyggðinni sem býr við það að þurfa að hita híbýli sín upp með olíu, en það þýðir um 30 þús. kr. kostnað á hverja einustu fjölskyldu á hverjum einasta mánuði og það eingöngu vegna hitunar. Á sama tíma og þetta er staðreynd beinist stefna ríkisstj. í orkumálum að því að sjá stóriðju hér á Suðvesturlandi fyrir nægri orku á verði sem er undir kostnaðarverði, en ekkert gert til þess að létta byrðar fólks, t. d. á Vestfjörðum og Austurlandi, sem býr við óheyrilegan kostnað vegna þess orkuskorts sem hrjáir þessa landshluta.
Og ranglætið blasir við á fleiri sviðum en þessu. Hæstv. forsrh. hefur í hverri einustu stefnuræðu, sem hann hefur flutt fyrir hönd núv. ríkisstj., boðað stóraukna og eflda byggðastefnu. Á þessum yfirlýsingum forsrh. hafa þeir stjórnarliðar tönnlast, og ekki verður annað séð en þeir séu sjálfir farnir að trúa því, að svo hafi þetta í raun og veru orðið. Og nú er svo komið að svartasta Reykjavíkuríhaldið innan Sjálfstfl. geysist dag hvern fram á síðum Morgunblaðsins með slagorð eins og þau, að byggðajafnvægi sé að raskast á hinn veginn og nú sé nóg komið af því að skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu standi undir kostnaði við byggðastefnuna. Hér sýna íhaldsöflin sitt rétta andlit því fólki sem byggir þá hluta landsins sem sjá þjóðarbúinu að langsamlega mestum hluta fyrir þeirri verðmætasköpun sem þarf til að íslendingar geti lifað sjálfstæðu menningarlífi, þ. e. því fólki til sjávar og sveita úti á landsbyggðinni sem á undanförnum árum hefur með óhóflega mikilli vinnu og álagi séð höfuðborgarsvæðinu fyrir stórum hluta þess fjármagns sem það hefur haft handa á milli til þeirra stórframkvæmda og þeirrar uppbyggingar sem átt hefur sér stað hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu undanfarandi áratugi á kostnað landsbyggðarinnar. Þetta ættu þessir postular svartasta íhaldsins innan Sjálfstfl. að gera sér ljóst áður en þeir ráðast af miklu offorsi gegn því fólki sem hefur fyrst og fremst séð fyrir því fjármagni sem til ráðstöfunar hefur verið til uppbyggingar þessa svæðis.
Það er athyglisvert, að nú telja þessi öfl innan Sjálfstfl. sér óhætt að ryðjast út úr fylgsninu og sýna sitt rétta andlit. Líklega er ástæðan sú, að þau þykjast nú hafa náð svo vel saman við sams konar öfl innan Framsfl. í núv. stjórnarsamstarfi að óhætt sé að fella grímuna. En það ættu þessi óheillaöfl innan stjórnarflokkanna að hafa í huga, að kjósendur þessara flokka úti á landsbyggðinni taka eftir þessu og eru annarrar skoðunar í þessum efnum og munu áreiðanlega sýna það í verki.
Það er rétt, til þess að hressa upp á minni þessara skriffinna Morgunblaðsins sem halda því fram að landsbyggðin lifi á Reykjavík, að vekja athygli þeirra á að 84% af öllum starfsmönnum ríkisins eru búsettir á Reykjavíkursvæðinu. Tekjur Reykjavíkurborgar af útsvörum starfsmanna ríkisins munu vera 500–600 millj. kr. á ári. Hér er aðeins um að ræða einn lið af mörgum sem Reykjavíkursvæðið nýtur á kostnað bæjar- og sveitarfélaga annars staðar á landinu.
En hver hefur hún þá verið, þessi byggðastefna í tíð núv. ríkisstj.? Við skulum líta á einn þáttinn sem er hvað mikilvægastur í því að stuðla að jafnvægi í byggð landsins og að stöðugu jafnvægi milli dreifbýlis og þéttbýlis, en það er vegakerfið og samgöngur á landi.
Nú nýlega var afgreidd hér á Alþ. till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1977–1980. Samkv. þeirri áætlun á að verja til nýbyggingar vega í ár sömu krónutölu og var varið á árinu 1976. Það er yfir 25% niðurskurður að raungildi. Og ekki nóg með það, þau þrjú ár, sem núv. ríkisstj. hefur verið við völd, hefur hún staðið þannig að framkvæmd vegamála að raungildi framkvæmda í vegagerð hefur minnkað um 25% á hverju ári þessi þrjú ár. Og hvar skyldi þetta hafa komið verst niður? Ætli það sé hér á höfuðborgarsvæðinu? Nei, það hefur fyrst og fremst og svo til eingöngu bitnað á þeim landshlutum sem verst voru settir í vegamálum, svo sem Vestfjörðum og Austfjörðum. Og það er a. m. k. í mínum huga einkennileg framkvæmd byggðastefnu að skera mest niður og veita minnst fjármagn til þess landshluta sem verst er settur á sviði samgangna í öllum tilvikum. Þetta gerðist við afgreiðslu vegáætlunar nú.
Vestfirðir, sem eru í öllum skilningi verst settir samgöngulega séð, voru gersamlega settir hjá í fjárveitingum til vegaframkvæmda. Þetta er slíkt hneyksli að engu tali tekur, þegar til þess er litið að Vestfirðir eru svo einangraðir, jafnt innan byggða sem við aðra landshluta, að í 7–9 mánuði á ári eru allar samgöngur á landi lokaðar. Á sama tíma líða vikur milli þess sem samgöngur á sjó eiga sér stað. Og til viðbótar geta flugsamgöngur við Vestfirði einnig legið niðri svo að dögum skiptir. Þrátt fyrir þessar staðreyndir leyfir meiri hluti Alþ. sér að níðast svo á Vestfjörðum varðandi fjárveitingar til vegaframkvæmda að furðulegt verður að teljast, og manni verður að spyrja: Er þetta í anda marggefinna yfirlýsinga forsrh. um eflda byggðastefnu? Eða átti hin eflda byggðastefna ríkisstj. ekki að ná til þeirra sem verst eru settir? Og enn verður manni að spyrja: Er það í þessum efnum sem skriffinnar Morgunblaðsins telja að of mikið hafi verið gert fyrir landsbyggðina? Vildu íhaldsöflin innan stjórnarflokkanna skera niður vegaframkvæmdir um meira en 25% á ári s. l. þrjú ár eins og gert hefur verið? Höfðu þessi öfl þá í huga það sem gert var þegar verið var að leggja vegi með varanlegu slitlagi hér út frá Reykjavíkurhringnum? Þá var tekið til að fjármagna þær stórframkvæmdir stórlán erlendis sem landsbyggðarfólk borgar nú á ári hverju.
Það er ekki talin þörf á því nú að mati stjórnarherranna að flýta framkvæmdum í vegamálum úti á landsbyggðinni með svipuðum hætti og gert var hér á suðvesturhorninu. Þvert á móti var beitt þeim vinnubrögðum að skera stórkostlega niður fjárveitingar til framkvæmda í vegagerð þar sem þörfin var þó mest. Það er t. d. athyglisvert, að á sama tíma og Vestfjarðakjördæmi lækkar í fjárveitingum til vega úr 10.2% á árunum frá 1965–1976 í 10.1% nú í ár hækkar t. d. Vesturlandskjördæmi úr 9.5% í 26.8%, og enn verður manni að spyrja: Hver er í raun og veru ástæðan fyrir því, að vestfirðingar eru beittir slíku hróplegu ranglæti? Því ættu þeir að svara hér á eftir sem framkvæmdu þetta ranglæti. Og takið eftir, hlustendur góðir, hvert svarið verður.
Hér hefur aðeins verið með einu dæmi sýnt fram á hver framkvæmd hinnar margumtöluðu byggðastefnu hefur verið í tíð núv. ríkisstj., og mörg fleiri álíka dæmi hefði mátt nefna, en tími minn leyfir það ekki. En þetta sýnir að þrátt fyrir það hróplega ranglæti og óréttlæti sem landsbyggðarfólki hefur verið sýnt, þá þykir íhaldsöflunum í Sjálfstfl. og Framsókn ekki nóg að gert. Þau heimta nú að enn frekar sé troðið á réttmætum kröfum landsbyggðarinnar. Reynslan ein sker úr um það, hvort orðið verður við þessum kröfum andstæðinga landsbyggðarinnar.
Það er ekki síst í höndum ykkar, góðir hlustendur, hvort látið verður undan þessum kröfum. Verðugasta svar ykkar til þessara afla er að snúa nú bökum saman og skera upp herör gegn þessu liði, snúa vörn í sókn, hafna öllu frekara óréttlæti í ykkar garð og taka upp baráttu fyrir því að hætt verði að líta á ykkur sem einhvers konar annars flokks þjóðfélagsþegna sem eigi að búa við allt önnur kjör og aðstöðu en þeir, sem búa hér á höfuðborgarsvæðinu. En það hefur ykkur verið og er ætlað af þeim sem nú tala mest um að landsbyggðin hafi fengið of mikið í sinn hlut og nú verði að snúa þróuninni við landsbyggðinni í óhag.
Það er frammi fyrir þessum kröfum sem landsbyggðarfólk stendur nú. Verðugasta svarið er að krefjast minnkandi aðstöðumunar milli dreifbýlis og þéttbýlis, krefjast þess, að fólki sé ekki mismunað eftir því hvort það býr á Vestfjörðum eða í Reykjavík, krefjast þess, að sama rafmagnsverð gildi á Vestfjörðum og í Reykjavík, krefjast jafnréttis varðandi símakostnað hvort sem viðkomandi býr á Vestfjörðum eða í Reykjavík, krefjast sama vöruverðs hvort sem á Vestfjörðum er eða í Reykjavík, krefjast þess, að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til að létta því oki af landsbyggðarfólki að þurfa að borga svo tugum þúsunda skiptir mánaðarlega vegna upphitunar íbúðarhúsnæðis, og svona mætti lengi telja.
Það er með þessum hætti sem verðugast er að svara þeim áróðri sem nú er hafinn af fullum krafti af andstæðingum landsbyggðarinnar. Svarið er í ykkar höndum, dreifbýlisfólk. Það verður á ykkar valdi innan tíðar hvort áróðursmeistararnir hér syðra telja sér stætt á því að knýja fram þá andbyggðarstefnu sem þeim nú er skipað að berjast fyrir. Ég trúi því og treysti, góðir tilheyrendur, að þið haldið vöku ykkar og krefjist réttlætis í stað aukins ranglætis. Verði ykkar svar með þeim eina hætti sem þessir herrar skilja, þá koðnar niður það upphlaup sem nú er hafið af íhaldsöflunum innan stjórnarflokkanna gegn landsbyggðarfólki. — Þökk sé þeim sem hlýddu. Góða nótt.