28.04.1977
Sameinað þing: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3943 í B-deild Alþingistíðinda. (2912)

Umræður utan dagskrár

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Góðir áheyr­endur. Við þessar almennu stjórnmálaumr. — eldhúsdagsumr. — er þannig um að litast í eldhúsi ríkisstj. að til þess að gera þar sæmilega hreint dugir ekkert minna en að bera ríkisstj. út og hleypa henni aldrei inn aftur. En það þarfaverk er aðeins á færi ykkar, áheyrendur góðir, þegar þar að kemur. Við þm. stjórnar­andstöðunnar getum hér aðeins bent á stærstu ávirðingar hennar.

Í þessum orðum mínum mun ég aðallega ræða gerðir ríkisstj. sem snúa að verkafólkinu og kjörum þess.

Nú eru aðeins tveir dagar þar til samningar svo til allra verkalýðsfélaga í landinu eru úr gildi fallnir, og staðan í samningaviðræðunum er þannig að ekki er annað sjáanlegt en stórverkföll blasi við á næsta leiti, þrátt fyrir að meginkröfur verkalýðshreyfingarinnar hafi verið alþjóð kunnar frá því á þingi Alþýðusam­bandsins um mánaðamótin nóv.–des. í vetur, eða í fimm mánuði, og að samningaviðræður hafi nú staðið yfir í tvo mánuði.

En hvers vegna er ástandið á vinnumarkaðinum svo alvarlegt sem raun ber vitni? Svarið þekkja allir. Í tíð núv. ríkisstj. hefur átt sér stað stórfelld kjaraskerðing. Kaupmátturinn hef­ur lækkað svo gífurlega að fara verður mörg ár aftur í tímann til að finna hliðstæðu. Ís­lenskt verkafólk er nú naumast hálfdrættingar í kaupi samanborið við verkafólk nágrannaland­anna, en þó eru þjóðartekjur á mann hér með því hæsta sem þekkist.

En hvernig hefur þessi mikla kjaraskerðing orðið? Það er stefna ríkisstj. í efnahagsmálum og afstaða hennar til kaupgjaldsmálanna sem þar veldur mestu.

Eitt af fyrstu verkum ríkisstj. var að lækka gengi krónunnar í sept. 1974 um 17%, og síðan fylgdi önnur gengisfelling um 20% nokkrum mánuðum síðar. Þá höfðu umsamdar verðbætur á kaupið verið afnumdar með lagaboði svo að verðhækkanirnar af völdum gengisfellinganna urðu launþegum þungar í skauti. Síðan má segja að verið hafi látlaust gengissig svokallað, þannig að á 2½ ári hefur erlendur gjaldeyrir hækkað um 100%, en það jafngildir að innfluttar vörur hafi af þessum sökum tvöfaldast í verði. Þessu til viðbótar kemur svo hækkun óbeinna skatta sem hækka vöruverðið. Er þar einkum um að ræða hækkun á söluskatti og 18% vörugjaldið. Og svo má ekki gleyma sífelldri hækkun á opinberri þjónustu, svo sem rafmagni, síma og hitunarkostnaði, en hækkanir á þessum liðum ákveður ríkisstj. sjálf og þeir hafa allir hækkað mun meira en almennt verðlag í landinu.

Það er þessi stefna og aðgerðir stjórnvalda í efnahags- og verðlagsmálum sem leitt hafa af sér hinar látlausu verðhækkanir sem þið þekkið öll svo vel. Það er þessi stefna sem gert hefur kaupið sífellt verðminna, svo það verður æ erfiðara að afla heimilunum brýnustu nauðsynja. Við skulum einnig hafa það í huga þegar þessi mynd er skoðuð, að ráðh. og málgögn ríkisstj. hafa stöðugt haft það á orði að eitt helsta verkefni stjórnarinnar væri baráttan gegn verðbólgunni. Og sjálfsagt hafa þessar ráðstafanir allar verið gerðar í nafni þeirrar baráttu. Það er svo hlustenda að dæma um hvernig til hefur tekist.

Afleiðing þessarar verðbólgustefnu er m. a. sú, að stórfelld breyting hefur orðið á tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu. Milljarðatugir hafa verið fluttir frá launþegum til atvinnurekenda og ríkissjóðs og hvers konar braskarar hafa svo matað krókinn í leiðinni.

Verkalýðshreyfingin hefur reynt að hamla gegn þessari kauplækkunarstefnu, og vissulega hefur kaupið hækkað nokkuð í krónutölu til að vega á móti hinum sífelldu verðhækkunum. En henni hefur þó ekki tekist að halda í horfinu. Verka­lýðshreyfingin hefur á þessu tímabili staðið í stöðugri varnarbaráttu gegn kjaraskerðingum af völdum verðbólgustefnunnar.

Það var kjörorð Alþýðusambandsþingsins í vetur, einróma samþykkt, að nú skyldi þessari varnarbaráttu lokið og ný sókn hafin. Þingið markaði þá meginstefnu, að lægstu laun hækkuðu úr 70 þús. kr. á mánuði í 100 þús. kr. og annað kaup síðan um sömu krónutölu. Á þetta kaup kæmu síðan fullar verðbætur og í krónu­tölu á hærra kaup.

Þessa launajöfnunarstefnu samþykkti þing ASÍ einróma, en hún er andstæða láglaunastefnu ríkisstj.

Við höfum oft heyrt fjálgleg orð frá ráðh. og talsmönnum ríkisstj. um að nauðsynlegt væri að bæta hlut þeirra lægst launuðu og lífeyrisþega. Vera má að samviskan sé farin að segja til sín hjá þessum mönnum, því að sannleikurinn er sá, að stefna ríkisstj. hefur bitnað harðast á þessu fólki. Það eru brýnustu nauðþurftir fólksins sem hafa hækkað langmest í verði, og því hefur hlutur þessa fólks, sem minnst hefur úr að spila, orðið hlutfallslega lakari en þeirra sem ekki þurfa að eyða öllum tekjum sínum til kaupa á brýnustu nauðsynjum. Það eru ekki hvað síst þessar staðreyndir sem renna hvað sterkustum stoðum undir launajöfnunarstefnu Alþýðusambandsins nú.

En hverju hafa atvinnurekendur og ríkisstj. svarað þessum réttlætiskröfum verkalýðshreyfingarinnar? Í stuttu máli sagt hafa þeir litlu eða engu svarað. Þeir telja kröfurnar allt of háar, atvinnureksturinn og þjóðarbúið geti ekki undir þeim staðið. Látið er í það skína, þó ekki við samningaborðið, að 4–5% hækkun gæti komið á 70 þús. kr. mánaðarlaunin. Hæstv. forsrh. nefndi jafnvel 6% hér áðan. En slíkt er hin herfilegasta móðgun við þetta fólk sem með engu móti getur framfleytt sér á því kaupi. Og nú spyrja þessir menn verkalýðssamtökin, hvort þau ætli að setja verðbólguna af stað og magna hana, og reyna með því að hræða fólk frá kröfum sínum.

Þessu er því til að svara, að það eru ekki verkalýðssamtökin sem eiga sök á verðbólgunni. Þvert á móti eru það stjórnvöld sem notað hafa verðbólguna til að lækka launin, og þeir sem það hafa gert, verða að taka afleiðingum gerða sinna. En verkafólkið á þann kost einan að gera kröfur um verulegar kauphækkanir. Rétt er að nefna má nokkuð háar hundraðshlutatölur miðað við nágrannalöndin. Heljarstökk má ekki taka, sagði hæstv. dómsmrh. hér áðan. En þeir, sem við þessu vara, ættu að hafa ríkt í huga hve búið er að lækka kaupið mikið áður. Þegar búið er að keyra kaupið niður jafnmikið og nú er, þá hljóta kauphækkanir að verða meiri en annars yrði.

Þá hefur því verið haldið fram af andstæðingum verkalýðshreyfingarinnar, að hún hafi nú fallið frá launajöfnunarstefnu sinni, og þá vitnað til sérkrafna verkalýðsfélaganna, m. a. sérkrafna Verkamannasambandsins. Augljóst er að þessi áróður hefur ákveðinn tilgang. Í fyrsta lagi er reynt að sverta verkalýðshreyfinguna í augum almennings, og í öðru lagi er reynt að sundra verkalýðsfélögunum innbyrðis og lama þar með baráttuþrótt samtakanna.

En hver er þá sannleikur þessara mála? Hann er þessi: Það er ekki aðeins að fólkið í almennu verkalýðsfélögunum sé lægst launað, heldur býr það einnig við lökustu kjörin á öðrum sviðum og mesta öryggisleysið. Þegar eitthvað bjátar á í atvinnulífinu verður það fyrst atvinnulaust. Það er verst sett með greiðslur í veikinda- og slysatilvikum. Það hefur lágmarksorlof, starfs­aldurshækkanir á kaup heyra til undantekninga og svo mætti lengi telja. Við sjáum enga ástæðu til þess að þetta fólk, sem yfirleitt vinnur erfiðustu og óþrifalegustu störfin í framleiðslu- og þjónustugreinunum, búi ávallt við lökustu kjörin á öllum sviðum. Miklu frekar ætti það í mörgum greinum að hafa betri kjör en aðrir. Sérkröfur Verkamannasambandsins miða að því að jafna kjör þessa fólks. Þar er ekki um neina framúrstefnu að ræða. En jafnvel þessar rétt­lætiskröfur mundu verða teknar til endurmats ef myndarlega væri orðið við höfuðkröfum sam­takanna um kauphækkun og fulla verðtryggingu.

Ég hef hér gert að umtalsefni stefnu ríkisstj. í efnahags- og verðlagsmálum og hins vegar stöðuna í kjaramálum launþega. Ég hef sýnt fram á samhengið milli þessa tvenns. Sírýrnandi kaupmáttur launanna er bein afleiðing af stefnu ríkisstj. Þetta þurfa allir launþegar að festa sér ríkt í minni.

Ég sagði áðan að verkalýðshreyfingin hefði lítil svör fengið við meginkröfum sínum, hvorki frá atvinnurekendum né ríkisstj., þótt aðeins séu tveir dagar þar til samningar renna út. Og þetta gerist þrátt fyrir að allar aðstæður eru nú þannig, að möguleikar til verulegra kaup­hækkana eru fyrir hendi. Aflaföng hafa verið góð, verulegar hækkanir á útflutningsvörum okk­ar og viðskiptakjör stórbatnað. Atvinnurekendur eiga því nú að geta borið verulega kauphækkun, ef ekki, þá er rekstri þeirra og stjórnun mikið ábótavant. Og ríkisstj., sem ekki ræður við það verkefni að tryggja verkafólki sæmileg laun og öruggan kaupmátt þeirra, er ekki starfi sínu vaxin og á því að víkja.

Að lokum nokkur orð til alls launafólks í landinu: Sú stund nálgast að beita verður samtökunum til að knýja fram kröfur þeirra. 1. maí er á sunnudaginn. Gerum þann dag að öflugum baráttudegi fjöldans fyrir kröfum verka­lýðsfélaganna undir þeirra merkjum. — Þökk þeim sem hlýddu.