28.04.1977
Sameinað þing: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3946 í B-deild Alþingistíðinda. (2913)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Hv. 2. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson, lýsti því yfir í ræðu sinni, að Alþb. sé eini flokkurinn sem stendur gegn þátttöku útlendinga í íslensku atvinnulífi. Sú staðreynd er eigi að síður skjalfest, að Alþb. hafði í tíð fyrrv. ríkisstj. alla forustu um að semja við hinn illmúraða Union Carbide um járnblendiverksmiðju á Grundartanga. Fyrrv. iðnrh. Alþb., lagði á það höfuðáherslu, að samningar tækjust við þennan bandaríska auðhring. Járnblendi væri sjálfsagt ekki komið á dagskrá enn á Íslandi nema fyrir forgöngu Alþb. í fyrrv. ríkisstj. Og þar skilur milli okkar, mín og hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar, að ég hef aldrei léð járnblendiverksmiðjunni fylgi mitt, en flokkur hans hins vegar haft frumkvæðið.
Hv. þm. Lúðvík Jósepsson lýsti því yfir, að núv. stjórn beitti verðbólgunni sem hagstjórnartæki. Hvort mun hann nú í yfirstandandi vinnudeilu beita sér fyrir að rétta ríkisstj. í hendur enn öflugra verðbólgutæki að stjórna með, eða mun hann reyna með afskiptum sínum af kjarasamningum að ræna þessu hagstjórnartæki, sem hann svo kallar, úr höndum núv. ríkisstj.? Við bíðum og sjáum hvað setur.
Hv. þm. Karvel Pálmason hafði áhyggjur af framkvæmd byggðastefnunnar. Okkur hefur tekist vel til um framkvæmd byggðastefnunnar. Gífurlegum árangri hefur verið náð. En ég minni á að byggðastefnunni var aldrei ætlað að halla á einn eða neinn, heldur að rétta hlut strjálbýlis. Þess vegna ber okkur að fylgjast með vandlega ef svo skyldi ske að framkvæmd byggðastefnunnar yrði til mismununar. Ég hef ekki þá trú að svo sé, en fylgi því hins vegar eindregið að málið verði rækilega kannað og í tauma tekið ef úrskeiðis gengur.
Þrátt fyrir úrtölu- og svartsýnistal stjórnarandstæðinga er ljóst að síðasta ár reyndist þjóðinni hið happasælasta. Framleiðsla var aldrei meiri, full atvinna og gerbreyting í verslun og viðskiptum okkar við aðrar þjóðir.
Svo virðist sem hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason sé þeirrar trúar, að þjóðinni verði ekki vel stjórnað nema hann sé við stjórnvölinn. Þetta er kækur sem hann þyrfti í tíma að venja sig af. Ef enginn vandi er meiri við stjórn landsins en sá, að hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason er ekki í stjórn, þá er ekki sérstaklega mikið að.
Draga verður úr fjárfestingu, sagði hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason. Draga verður úr umsvifum ríkisins, sagði þessi sami hv. þm. Beita verður harðari tökum í útlánastefnu banka, sagði hann enn fremur. Nú er spurningin, sem þessi hv. þm., doktor í hagfræði, verður að svara, hversu mikið má draga saman seglin svo að ekki bresti á atvinnuleysi, sem er þó mest óhamingja einhver sem yfir eina þjóð getur dunið.
Það er sannfæring mín að íslenska þjóðin hafi síðari árin átt við risavaxnari vanda að glíma í efnahagsmálum en nokkru sinni fyrr. Þótt mikið hafi áunnist, svo sem fram hefur komið í ræðum hæstv. ráðh. Geirs Hallgrímssonar og Ólafs Jóhannessonar, er markinu ekki náð. Enn búum við við þrefalda verðbólgu umfram það sem líðanlegt er, og á hinn bóginn virðist brugðið til þeirra ókjara, að miklu minna verði úr býtum borið í sjávarföngum en áður þrátt fyrir færi á að sækja í nýja fiskstofna. Ef ekki tekst að vinna bug á þeirri óðaverðbólgu sem enn geisar, þá má kalla að allt annað sé unnið fyrir gýg.
Það er ekki nýtt fyrir Sjálfstfl. að taka við þrotabúi vinstri stjórna á Íslandi. Árið 1959 gerði hann það og tókst með sterkum tökum að bjarga þjóðinni frá gjaldþroti út á við og inn á við. Það var ekki sársauka- eða átakalaust, en flokkurinn fékk um langa hríð, í 12 ár, til þess atfylgi þjóðarinnar. Það mun e. t. v. á næstunni á það reyna sérstaklega, hvort hann nýtur enn eigi þess trausts og trúnaðar sem nauðsynlegt er svo að forðast megi ókjörin.
Þótt stórt væri í sniðum og átaksillt þrotabúið vinstri stjórnarinnar árið 1959 var þó afkoman 1974 sýnu ofboðslegri. Árið 1958 brotnaði alda verðbólgunnar á skerjum óstjórnar, en árið 1974 var þó holskeflan sýnu hættulegri og er enn eigi bitið úr nálinni með usla hennar. Glíman við óstjórnina á árunum 1971–1974 stendur enn yfir, og ber að játa hreinskilnislega að Sjálfstfl. hefur ekki tekið eins sterkum tökum á viðfangsefninu og áður og ekki eins og hann hefur afl til. Að vísu hefur tíminn unnið með flokknum, en það afsakar ekki hægaganginn í áflogunum við meinvættinn mikla sem verðbólgan er. En flokkurinn stjórnar ekki einn, og er vafalaust að tregða samstarfsflokksins að játa á sig ávirðingarnar af óstjórn vinstri stjórnarinnar hefur ráðið töluverðu. Eftir fyrri vinstri stjórnartímabil var Alþfl. laminn til þeirrar hlýðni að játa á sig ábyrgð á þeirri óstjórn, en Sjálfstfl. hefur verið beygjulegur við að krossfesta Framsfl. fyrir sömu sakir.
Góðs árangurs er ekki að vænta ef menn neita staðreyndum af kjósendahræðslu og helst það uppi. Það er auðvitað spauglaust að leiða svo harðskeyttan sérhagsmunaflokk sem Framsfl. er til samvinnu sem gagnar allri þjóðinni. Þó hefur það að ýmsu leyti tekist betur en á horfðist og eldri reynslan benti til, því að feysknar voru allar undirstöður fyrri samvinnu við þann flokk.
Það er með öllu óþekkt að efnahagskerfi þjóðar hafi hrunið jafnhastarlega og gerðist með kjarasamningunum 26. febr. 1974. Þeim mun ótrúlegri er sú staðreynd þar sem allt var það fyrir verk sjálfrar þeirrar ríkisstj. sem ríkti þá. Að vísu hafði sú stjórn til þess gildrað frá upphafi. Í sjálfum stjórnarsáttmála þeirrar stjórnar er að finna upphaf ógæfunnar. Hins vegar mun Sjálfstfl. ekki víkja því til samstarfsflokksins sem miður kann að hafa til tekist í tíð núv. ríkisstj. Hann axlar þá ábyrgð án hiks og þarf ekki að álasa samstarfsflokknum eða kenna honum um eitt eða neitt sem Sjálfstfl. ber ekki jafnhliða fullkomna ábyrgð á. Afstaða Framsfl. og vinnubrögð eru gerbreytt frá því sem áður var, og er það án efa að þakka formanni flokksins, hæstv. dómsmrh. Ólafi Jóhannessyni, og eru það einkennileg örlög að hann skuli þrátt fyrir ágæt verk liggja undir ámælum skillítilla stráka fyrir tilbúnar sakir.
Eins og sakir standa eru efni á að veita hinum lægra launuðu verulegar kjarabætur. Því eiga þeir, sem ráða, að lofa strax. Að bíða eftir því að vinnuveitendasamtökin sísist til þess með gersamlega úreltum vinnubrögðum kemur ekki til nokkurra mála. Það verður of dýru verði keypt. Á sinni tíð, þegar ég átti að heita forustumaður í launþegasamtökum, voru á mig settir vökustaurar. Þá hældu menn sér af því að vaka sem lengst, án þess að þeim hvarflaði vit að marki. Ég er löngu hættur að hafa trú á þessari aðferð, enda getur lausn mikilvægrar vinnudeilu ekki verið í höndum vökustaursmanna.
Menn hafa það gjarnan á orði, að aðilar vinnumarkaðarins eigi að leysa sín á milli vandann. Þeir eru ekki færir um það nú, síst vinnuveitendur sem haga sér eftir aðferðum sem þóttu við hæfi hjá dönskum íhaldsöflum upp úr 1930, að neita allri sanngirni, en skrifa síðan undir ódæmin eftir nógu langar vökur og hælast svo um, þegar upp er staðið, af því að hafa sett met í svefnleysi.
Svo sem vandi verðbólgu er mikill er það ekki á færi vinnuveitenda einna að semja nú við vinnustéttirnar. Vinnudeiluna á ríkisstj. að leysa með Birni Jónssyni og félögum hans, sem ekki njóta trúnaðar hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar. Það á þegar í stað að ganga að stórhækkuðu kaupi til handa hinum lægra launuðu og beita föstum tökum af hálfu þeirra, sem umboð hafa til að stjórna frá þjóðinni sjálfri, að hindra að hinir, sem sæmilega og vel eru settir, hrifsi til sín enn hærri kjarabætur eða margfaldar, svo sem dæmin sanna á liðnum árum. Skattbreytingu er nauðsynlegt að beita í þessu sambandi sem eingöngu á að gagna hinum lægra launuðu. Stjórnvöld þurfa þegar í stað að setja sig í þær stellingar að létta skattbyrði á launastéttum allt upp fyrir miðju í kerfinu og þola minnkun tekna í ríkiskassann sem nemur stórum fjárhæðum. Það mun að vísu draga úr framkvæmdum, en tæplega auka neyslu að marki vegna þeirra ofboðslegu hækkana á vörum og þjónustu sem yfir okkur dynja daglega. Markmiðið verður og skal verða að ná verðbólgunni niður í 10–12% á ári á næstu tveimur árum eða til jafns við það sem um er að tefla í viðskiptalöndum okkar flestum.
Ef verkalýðshreyfingin gengur að þessum kostum, að stórhækka laun við láglaunastéttir samfara minni skattbyrði, þá er miklu borgið. Hin leiðin er leið átaka og verkfalla sem bitnar harðast á þeim sem minnst bera úr býtum. Það er rétt og skylt fyrir verkalýðshreyfinguna að átta sig á að þeirri aðferð verður mætt með miskunnarlausri hörku. Það skal aldrei verða að þeim takist, pólitísku furstunum í þeirri sveit, að gera að engu þann ávinning sem orðinn er í efnahagsmálum. Að loknu þriggja vikna verkfalli eða svo verða gerðar þær ráðstafanir sem duga til að minnka verðbólguna. Með þeim aðgerðum er vandséð hvernig sérstaklega megi taka tillit til hinna verr settu. Þeirra málum verður trúlega ekki borgið nema við samningaborðið.
Ég átti að heita í 15 ár í fyrirsvari fyrir ein stærstu launþegasamtök þessa lands. Mín einarða kenning var að boða aldrei til verkfalla, og það var undir þá reglu vikist af yfirgnæfandi meiri hluta verslunarfólks. Og það skilaði því fólki þess vegna hraðar fram á veg um kjarabætur en öðrum stéttum verkalýðs á því tímabili.
Það er ekki um að tala að pólítískur geðþótti stjórnarandstæðinga fái að ráða ferðinni í vinnudeilum nú. Ef svo verður, þá verður því mætt með óbreyttri stefnu um að vinna bug á verðbólgunni í landinu eftir sem áður, og gagnráðstafanirnar verða þeim mun harkalegri sem óskynsamlegar er staðið að lausn vinnudeilunnar og kjarabætur knúnar fram með offorsi umfram það sem gjaldgeta atvinnuvega þolir. Aðalatriðið er það, að vinnuveitendur fái ekki til þess leyfi að kópa eins og afglapar yfir óframbærilegum tilboðum um kjarabætur til handa því fólki sem lífsnauðsyn er að rétta hjálparhönd. Með því móti er stefnt í ófæru sem öll þjóðin tapar á og bitnar harðast á þeim sem minnst mega sín.
Umtalsverður árangur náðist í fjármálum ríkisins s. l. ár miðað við árin 1974 og 1975, en á þessum tveimur árum höfðu skuldir ríkissjóðs hjá Seðlabankanum aukist um 10 milljarða kr. Þegar vinstri stjórnin lét af völdum á síðari hluta árs 1974 hafði hún að verulegu leyti gengið frá fjárlagagerð fyrir árið 1975 í samræmi við þá efnahagsskipan og þá stjórnarhætti sem ríktu á þeim bæ. Það má því segja að efnahagsstefna vinstri stjórnarinnar hafi mótað fjárlög ársins 1975 og sett svip sinn á það fjárlagaár.
Fjárlög ársins 1976 eru þau fyrstu sem mótuð eru í samræmi við efnahagsstefnu núv. ríkisstj. Það fjárlagaár er það fyrsta sem marktækt er í stefnu hennar í ríkisfjármálum og efnahagsmálum almennt. Samkv. skýrslu fjmrh. um afkomu ríkissjóðs 1976, sem lögð var fram á Alþ. í s. l. mánuði og er nýmæli, er mismunur greiddra gjalda og innheimtra tekna aðeins neikvæður um 100 millj. kr. Enn fremur er áætlað að rekstrarjöfnuður verði hagstæður á s. l. ári, en hann var óhagstæður 1975 um 7.5 milljarða kr. og 3.3 milljarða kr. árið 1974. Síðan 1968 hefur rekstrarjöfnuður aðeins tvisvar verið jákvæður, 1970 um 400 millj. kr. og 1972 um 100 millj. kr. Hlutur ríkisútgjalda af vergri þjóðarframleiðslu var samkv. bráðabirgðatölum 27.3% á árinu 1976, en á árinu 1975 nam hlutur ríkisins í vergri þjóðarframleiðslu 31.4%. Ef sama hlutfall hefði gilt á árinu 1976 og varð á árinu 1975 hefði ríkið tekið til sín 10 milljörðum kr. meira af heildarþjóðarframleiðslu á árinu 1976, en þjóðarframleiðslan nam þá 256 milljörðum kr.
Ekki er að efa að hinar ströngu aðhaldsaðgerðir, sem núv. hæstv. fjmrh., Matthías Á. Mathiesen, hefur haft frumkvæði að í fjármálastjórn ríkisins, eiga hér langdrýgstan hlut að máli, og nauðsynlegt er að fylgt verði fast eftir þeim aðhaldsaðgerðum og árangri sem þegar hefur náðst í ríkisfjármálum. Þær hafa fyrst og fremst leitt til hallalauss ríkisbúskapar sem er einkenni traustrar stjórnunar ríkisfjármála. En aðhald í ríkisfjármálum er ekki síður óhjákvæmilegt til að hamla gegn verðbólgu og viðskiptahalla og hefur reynst líður í þeim árangri sem náðist á þeim vettvangi á s. l. ári. Síðast, en ekki síst eru slíkar aðhaldsaðgerðir nauðsynlegar til að tryggja það meginmarkmið, að ríkisútgjöld fari ekki yfir ákveðið hlutfall og hættumörk í heildarverðmætasköpun þjóðarinnar. Því meira af þjóðartekjum sem ríkið tekur til sín hverju sinni, því minna verður eftir af ráðstöfunartekjum heimila og einstaklinga í landinu.
Ég vék að því, að annar aðalvandinn væri sá, að líklegt er að draga verður úr sókn í verðmætustu fiskstofna, sér í lagi þorskinn. Það mun ekki einvörðungu bitna á sjómönnum og útgerðarmönnum, heldur að sjálfsögðu landslýðnum öllum. Núv. sjútvrh. hefur tekið traustum tökum á stjórn fiskveiða og nýtingu fiskveiðilögsögunnar. Að kalla með daglegri stjórn á þessum málum hefur hann lagt sig í líma við nákvæma aðgæslu og fyrirmyndarstjórn á þessu viðamikla máli. Í tíð Matthíasar Bjarnasonar, hæstv. sjútvrh., hafa verið gerðar margfalt víðfeðmari ráðstafanir til verndar fiskstofnum en í samanlagðri tíð annarra ríkisstj. Enn fremur hefur hann haft forustu um að beina sókn í nýja fiskstofna sem ekki hafa verið ofnýttir til þessa. Slík stjórn er hið viðkvæmasta og viðamesta mál, og steðja enda að sjútvrh. álasanir og mögnuð gagnrýni sem hann hefur sem betur fer haft bein til að þola.
Á hinn bóginn er ekki fyrir það að synja, að stjórn aðallánasjóðs sjávarútvegsins, Fiskveiðasjóðs, hefur verið hrumul og gengið mjög úr skorðum, og má það merkilegt heita að nýkjörnir fulltrúar hagsmunasamtaka sjávarútvegsins í heim sjóði skuli versla sín á milli og við umboðsmenn um kaup á nýjum skuttogurum á sama tíma og Landssamband ísl. útvegsmanna heldur hví fram að stjórnvöld séu að ráða síðasta þorskinn af dögum.
Spurst hefur að Efnahagsbandalagsmenn úr Evrópu séu í nýju tilhlaupi að krefjast veiðiheimilda til handa bretum og e. t. v. fleirum um veiðar í íslenskri fiskveiðilögsögu. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að lýsa því yfir, að ég er með öllu óviðmælandi um slíkar veiðiheimildir. Þegar samningurinn við vestur-þjóðverja, sem var á sínum tíma hinn mesti fleinn í mínu holdi, rennur út, þá verða þeir að fara í brott. Annað kemur ekki til greina. Og það verður að kosta sem kosta vill. Við þá og aðra er nú ekkert um að semja. Hið einasta, sem til greina kann að koma, er að semja við bræður okkar í Færeyjum, en þó getur það ekki orðið nema mjög smátt í sniðum.
Herra forseti. Núv. ríkisstj. ætlar að stjórna áfram eftir því umboði sem yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar hefur veitt henni. Það kemur ekki til greina að hún verði sveigð af þeirri leið að gera nauðsynlegar ráðstafanir í efnahagsmálum til að vinna bug á bölvaldinum mikla, verðbólgunni, enda er það fyrir bestu fyrir alla að svo verði gert. Hún býður friðarsamninga við verkalýðshreyfinguna við lausn vandamálanna En hún lætur ekki hrekja sig af leið og mun ekki láta undan sverfast fyrir ofbeldi sem undirrót sína í pólitísku spilverki. Það eru fleiri en vinnudeilumenn sem búa við skarðan hlut. Bændur landsins berjast í bökkum velflestir. En hvorki þeirra hlutur né annarra verður bættur umfram það sem tök eru á. Og viðmiðunin er verðbólguvandinn. Það er gagnslaust að veita einum eða neinum kjarabætur ef allt brennur upp í verðbólgubáli fyrr en varir. Síðan skulu menn festa sér það í minni, að vandinn, sem við blasir, verður ekki leystur nema Sjálfstfl. leggi sitt af mörkum. sú staðreynd blasir við og á sér enda sögulega staðfestu. — Góða nótt.