29.04.1977
Sameinað þing: 83. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3959 í B-deild Alþingistíðinda. (2925)
139. mál, lausaskuldir bænda
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég hef þá ánægju að mæla hér fyrir nál. á þskj. 491 um till. til þál. um lausaskuldir bænda. Þetta er álit atvmn., svo hljóðandi:
„N. hefur athugað till. á fundum sínum. Borist hafa umsagnir frá Búnaðarþingi og Stéttarsambandi bænda, báðar mjög jákvæðar.
N. mælir með samþykkt till. með eftirfarandi breytingu.
Orðin „á árinu 1977“ falli niður úr tillgr.“ Undir þetta skrifa Páll Pétursson, Gils Guðmundsson, Sverrir Hermannsson, Karvel Pálmason, Guðmundur H. Garðarsson, Steingrímur Hermannsson og Jón G. Sólnes.