29.04.1977
Sameinað þing: 83. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3967 í B-deild Alþingistíðinda. (2938)

14. mál, innlend jarðefni til iðnaðarframleiðslu

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. greiddi ég ekki atkv. um þessa till. í atvmn., og mér finnst nauðsynlegt að ég geri í örfáum orðum grein fyrir hvers vegna ég gerði það ekki. Það er ekki vegna þess að ég vilji ekki fá meira fjármagn til rannsókna á þessu sviði. Því fer víðs fjarri. En mér þykir ákaflega vafasamt, satt að segja, að Alþ. sé að ákveða forgangsröðun verkefna til rannsókna án þess að skoða heildina. Er þetta leiðin til að fá fjármagn til einstakra rannsóknarverk­efna? Ég gæti talið hér upp og líklega haldið þingi í allan dag með því að telja upp verkefnin sem eru skráð, en ekki hefur fengist fjármagn til. Ég get talið verkefni eins og t. d. hafísrannsóknir, sem er búið að berjast fyrir árum saman og mikill áhugi var fyrir á hafisárunum síðustu, en síðan hefur ekkert fengist til og hefur allt koðnað niður. Eflaust vaknar áhugi og skilningur á því aftur þegar næst kemur hafis. Ég get nefnt dæmi eins og t. d. ylræktina, en ekki var unnt að taka afstöðu nú fyrir nokkrum mánuðum til hollenska tilboðsins, eins og verkfræðingar Reykjavíkurborgar sögðu. Það lágu ekki fyrir upplýsingar um hagkvæmni mikillar lýsingar og fleira við íslenska staðhætti. Ég get talið verkefni í íslenskum byggingariðnaði, sem Rann­sóknastofnun byggingariðnaðarins hefur barist fyrir árum saman og fært rök fyrir að væru mjög nauðsynleg fyrir íslenskt efnahagslíf.

Ég er efins um að þetta sé rétta leiðin. Ég viðurkenni hins vegar að á þessu sviði er mikil þörf, og ég skal fagna því fyrstur manna ef þarna fæst aukið fjármagn. Staðreyndin er hins vegar sú, að á þessu sviði hefur töluvert verið gert. Það er búið að rannsaka leir í Búðar­dal áratugum saman og verja til þess miklu fjármagni. Því miður hefur niðurstaðan orðið nei­kvæð. Það er, eiginlega má segja, orðið nokkuð ljóst að leirinn þar er ekki samkeppnisfær jafn­vel við innfluttan leir. Það er margsinnis búið að leita álits um vinnslu títan-oxíðs, og sérfræðingar hafa sagt að það sé bundið í glerkristöllum sem engin tækni leysi í dag. Það er ekki hægt að leysa títan-oxíðið þaðan úr. Og svo mætti telja áfram. Það er lengi búið að fjalla um basaltið. Staðreyndin er bara sú, að það er ekki þorandi að ráðast í framleiðslu á basalthellum því að markaðurinn er svo lokaður og svo bundinn.

Það er varið meira fjármagni til gosefnarannsókna en í margar aðrar greinar. Gosefnanefnd starfaði í nokkur ár á vegum iðnrn. og hefur fengið til sinna starfa milljónatugi, leyfi ég mér að segja, og er nú starfandi hjá Iðnþróunar­stofnun. Sú n. vinnur ákaflega mikilvægt starf og vonandi kemur eitthvað út úr því starfi, bæði í sambandi við perlítrannsóknir o. fl.

Alþingi veitti eitt sinn sérstaka fjárveitingu — og ég vil endurtaka þakkir fyrir það — til rannsókna á verðmætum jarðefnum, og hafa verið fengnir sérfræðingar frá Sameinuðu þjóðunum og verulegur styrkur frá Sameinuðu þjóðunum til þeirra rannsókna. Sá sérfræðingur rannsakaði fyrst og fremst Austfirðina og komst að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki verjandi að ráðast í næsta skref þeirra rannsókna, sem er ákaflega kostnaðarsamt, því að það væru svo litlar líkur fyrir verðmætum jarðefnum. Þessu sviði hafa verið gerð nokkur skil.

Ég get ekki fallist á það, ef ég má orða það svo, að það sé réttlætanlegt að samþykkja þáltill., eins og einhver komst að orði, vegna þess að flm. sé slíkur indælismaður, sem ég tek undir. En þetta heyri ég allt of oft, að flm. sé indælis­maður og við getum ekki neitað að samþykkja slíka till. Ef þetta yrði til þess að hv. fjvn. veitti verulegt fjármagn til þessara rannsókna, þá skal ég síst af öllu vanþakka það. En hv. fjvn. verður þá að muna að verkefnin í þessu landi til rannsókna eru ótalmörg sem eru vanrækt og við verjum minna fjármagni til rannsókna í heild en nokkurt annað land í vestrænum heimi, 0.5% af þjóðarframleiðslu.