29.04.1977
Efri deild: 75. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3979 í B-deild Alþingistíðinda. (2962)

18. mál, skylduskil til safna

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Menntmn. hv. Ed. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og eins og fram kemur á þskj. 573 fékk n. til fundar við sig þá Finnboga Guðmundsson landsbókavörð og Ólaf Pálmason deildarstjóra. N. varð sammála um að mæla með samþykkt frv., en flytur nokkr­ar brtt. við það á sérstöku þskj. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru þeir Ingi Tryggvason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson.

Breytingar þær, sem menntmn. leggur til að gerðar verði, eru fyrst og fremst til að kveða ákveðnar á, marka skýrari línur, sérstaklega að draga skýrari línur á milli ákvæða um skilaskyldu og varðveisluskyldu. Auk þess leggur n. til að felld verði niður varðveisluskyldukvöðin á Amts­bókasafninu í Stykkishólmi, Bókasafninu á Ísa­firði og Amtsbókasafninu á Seyðisfirði.

Ég vil þá, herra forseti, víkja aðeins að þeim brtt. sem n. flytur á þskj. 574.

Fyrsta brtt. er efnislega í þá átt, að þar komi inn tilvísun í til II. kafla laganna, til þess að kveða ákveðið og skýrt á um að skilaskyldan er bundin við fjögur eintök, og í þeim kafla er einn­ig vísað til ákveðinna aðila sem þau skulu fá. Það er Landsbókasafnið tvö eintök, Háskóla­bókasafn og Amtsbókasafnið á Akureyri hvort fyrir sig eitt eintak. Þess vegna segir í fyrstu brtt. að í stað orðanna „í lögum þessum“ komi: í II. kafla laga þessara.

Önnur brtt. á þskj. 574 er vegna breytingar sem lögð er til á 10. gr. Þess vegna þarf að fella burt tilvísun í hana, þ. e. a. s. 2. mgr. 10. gr. Því er lagt til að orðin „sbr. einnig 10. gr.“ í lok 1. mgr. falli burt.

Þriðja brtt. á fyrrnefndu þskj. er á sama hátt afleiðing af þeirri breyt. sem lögð er til varðandi 10. gr., þ. e. að í stað þess, að vísað verði til 10. gr. í 7. gr. frv., þá verði vísað til V. kafla sem lagt er til að verði nýr kafli í frv. og að mestu leyti innihaldi það sem tekið er út úr 10. gr., þ. e. a. s. 2. mgr. í 10. gr. eins og hún er nú. Brtt. er einungis sú, að aftan við gr. bæt­ist: og V. kafla — það verði vísað til V. kafla þar einnig.

Fjórða brtt. er sömuleiðis afleiðing af fyrrgreindri breyt. á 10. gr., þ. e. a. s. að 2. mgr. 10. gr. falli brott. Ástæðan fyrir því, að það er lagt til, er fyrst og fremst að efnislega á hún ekki heima með öðrum ákvæðum gr. sem fyrst og fremst kveða á um varðveisluskyldu þá er hvílir á Landsbókasafninu varðandi tvö af fjórum skyldueintökum og Háskólabókasafni og Amts­bókasafninu á Akureyri varðandi eitt eintak hvoru fyrir sig af fyrrgreindum fjórum skyldu­skilaeintökum, svo og af hljómplötum og annars konar tón- og talupptökum sem gefnar eru út, þar skal Landsbókasafn varðveita tvö eintök og Amtsbókasafnið á Akureyri eitt.

Fimmta brtt. n. á fyrrgreindu þskj. er að flytja meginefnið úr 2. mgr. 10. gr. í nýjan kafla, sem verði V. kafli og þá 13. gr. frv., undir fyrir­sögninni: Ríkisstyrkt útgáfa, og að greinin orðist eins og þar segir. Efnislega er þetta fyrst og fremst varðandi þá aðila sem njóta styrks af almannafé til útgáfu á ritum og skuli þeir afhenda Landsbókasafninu ókeypis allt að tíu ein­tökum hvers slíks rits, ef landsbókavörður óskar þess, og ber Landsbókasafninu að taka frá þrjú eintök af hverju þeirra og ætla þau Amtsbóka­safninu í Stykkishólmi, Bókasafni Ísafjarðar og Amtsbókasafninu á Seyðisfirði, eitt eintak hverju. Ráðh. skal setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.

Þá er rétt að geta þess, að efnisbreyting, sem lögð er til nú varðandi það sem stendur í 2. mgr. 10. gr. sem verið er að færa til í frv., er ein­göngu sú, að felld er niður varðveisluskyldan á þeim bóksöfnum sem ég vék að í upphafi míns máls, þ. e. a. s. Amtsbókasafninu í Stykkishólmi, Bókasafninu á Ísafirði og Amtsbókasafninu á Seyðisfirði. Það var álit landsbókavarðar og Ólafs Pálmasonar, og undir það var tekið af hálfu menntmn., að það væri um verulega fjárhagslega kvöð að ræða að leggja varðveisluskyldu á þessi bókasöfn öll varðandi það sem gefið er út af ritum og nýtur ríkisstyrks. Má í því sam­bandi nefna blöðin, sem njóta nú ríkisstyrks. Ef ætti að binda þau inn, þá mundi það ekki kosta undir millj. kr. á ári nú. N. þótti því ástæða til að taka undir þessar ábendingar landsbóka­varðar og fella niður varðveisluskyldu á þessum þremur söfnum. En hún er auðvitað eftir sem áður á hinum fjórum sem ég tilgreindi áður.

Eins og ég gat um í upphafi, herra forseti, þá er hér fyrst og fremst um brtt. að ræða sem kveða skýrar á um einstök atriði og draga ákveðnari línur milli ákvæðanna um skylduskil annars vegar og varðveisluskyldu hins vegar, ásamt þessari efnisbreytingu að fella niður varð­veisluskyldu þriggja fyrrgreindra bókasafna.

Ég legg svo til, að frv. verði samþ. með þeim brtt. sem ég hef hér kynnt og eru á þskj. 574.