29.04.1977
Efri deild: 75. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3981 í B-deild Alþingistíðinda. (2964)

194. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. meiri hl. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. 16. maí árið 1975 voru lög um breyt. á lögum nr. 57 27. apríl 1973, um atvinnuleysistrygg­ingar (fæðingarorlof), samþ. á Alþingi. 1. gr. laganna hljóðar svo:

„Aftan við 5. mgr. d-liðar 15. gr. laganna komi nýr málsliður, svo hljóðandi: Þó skulu þær konur, sem forfallast frá vinnu vegna barnsburðar, njóta atvinnuleysisbóta í 90 daga sam­tals.“

Þarna var líka að finna ákvæði til bráðabirgða sem hljóðar svo:

„Fyrir 1. jan. 1976 skal ríkisstj. láta kanna á hvern máta megi veita öllum konum í landinu sambærilegt fæðingarorlof og tryggja tekjustofn í því skyni.“

Um nokkurra ára skeið höfðu konur, sem vinna á vegum hins opinbera, þ. e. a. s. starfsmenn ríkis og bæja, fengið fæðingarorlof. Það þótti því sanngjarnt að sá hópur kvenna, er nyti þessara hlunninda, stækkaði nokkuð enda þótt skrefið væri ekki tekið til fulls, og eftir alllangar umr. var þetta frv. samþ. á Alþ. Um það voru ekki allir á einu máli, voru að vísu á einu máli um að konur skyldu fá fæðingarorlof, en ekki hver ætti að vera greiðandinn. Margir töldu eðli­legra að almannatryggingar önnuðust þessa fyrirgreiðslu og þessa greiðslu. En útkoman varð sú, að samþ. var að Atvinnuleysistryggingasjóður skyldi leysa þessa þjónustu af hendi.

Þegar til framkvæmda kom varð sú framkvæmd ekki á einn veg. Í sumum tryggingaum­boðum var þetta framkvæmt á þann veg að að­eins þær konur, þar sem makar höfðu undir 1400–1500 þús. kr. í árslaun, fengu fæðingarorlof, en á öðrum stöðum var talið að konur skyldu hljóta fæðingarorlofið hverju sem liði um tekjur maka. Þetta olli því, að nú á þessu þingi var borið fram frv. til l. um breyt. á l. nr. 56 frá 26. maí 1975, um fæðingarorlof. Efnislega er frv. þannig:

„Aftan við 1. gr. laganna komi nýr málsl., svo hljóðandi:

Ákvæði í 16. gr. g. 1. málsgr. og í 18. gr. 2. málsgr. skulu ekki skerða bótarétt í forföllum vegna barnsburðar.“

Þetta þýðir það, að tekjur maka eiga ekki að skerða bótarétt vegna barnsburðar.

Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta frv. á fundi sínum. Formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs mætti á fundinum til þess að gefa upplýsingar um framkvæmd laganna og um viðhorf stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs til þessa máls. Formaður stjórnarinnar tók fram að það væri álit stjórnarinnar að þessar orlofs­greiðslur ættu að vera með sama hætti og aðrar atvinnuleysisbætur, þ. e. a. s. með skerðingarákvæðum. Hins vegar taldi hann það vera rétt, að þetta hefði ekki verið framkvæmt á einn veg og þess vegna væri eðlilegt að þarna væri um breytt. Hann er þess vegna andvígur því að sjóðnum sé íþyngt með frekari greiðslum, einkum þar sem hann tók fram að handbært fé Atvinnuleysistryggingasjóðs væri ekki fullnægjandi og að halli mundi verða á lausafjárstöðu sjóðsins á þessu ári.

Meiri hl. komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki hægt að hafa þessa framkvæmd óbreytta eins og verið hefur, og leggur því til að frv., sem fyrir liggur, verði samþ. óbreytt.

Nú er það svo, að þetta frv. kveður svo á í ákvæði til bráðabirgða, að ákvæði 1. gr. skuli einnig gilda um þær konur sem synjað hefur verið um fæðingarorlofsgreiðslur vegna þeirra að­stæðna sem 1. gr. á við. N. leit svo á að þetta ákvæði skyldi ekki einungis eiga við um þær konur sem hefði verið synjað, heldur um þær konur sem rétt hefðu átt á þessum bótum ef þetta ákvæði til bráðabirgða hefði verið komið inn í lögin við upphaf framkvæmdar þeirra, þ. e. a. s. við áramótin 1975 og 1976.

Helgi F. Seljan mun skila séráliti um þetta mál og Halldór Ásgrímsson skrifar undir nál. með fyrirvara, en meiri hl. n, leggur sem sagt til að frv. verði samþ. óbreytt.