29.04.1977
Efri deild: 76. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3995 í B-deild Alþingistíðinda. (2978)
237. mál, söluskattur
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að þreyta menn með langri ræðu, en varðandi þetta mál og ýmis önnur mál varðandi lög um söluskatt mætti tala langt mál. Sannleikurinn er sá, að lögin um söluskatt eru orðin slíkur frumskógur að það er mjög nauðsynlegt og brýnt verkefni að endurskoða alla þá löggjöf. Því miður hefur þessi löggjöf ekki fengið jafnmikla eftirtekt og lög um tekjuskatt og eignarskatt, en ranglæti ríkir ekki síður í þessum lögum en lögunum um tekjuskatt og eignarskatt.
Varðandi þetta mál út af fyrir sig, þá er það ljóst að söluskattslögin hafa í sjálfu sér staðið í vegi fyrir eðlilegri þróun byggingarstarfsemi. Hins vegar vil ég taka það fram, að ef þetta frv. yrði samþ. eins og það er, þá koma miklu fleiri þættir inn í það heldur en tilbúnar húseiningar. Í dag er það þannig, að aðeins sú vinna, sem unnin er á byggingarstað, er söluskattsfrjáls, vinna, sem unnin er á verkstæðum, er söluskattsskyld. Þannig er eldhúsinnrétting, sem smíðuð er á verkstæði, söluskattsskyld, en vinna við uppsetningu hennar í húsinu er söluskattsfrjáls. Ef eldhúsinnréttingin væri smíðuð í húsinu sjálfu, þá mundi hún vera söluskattsfrjáls. Sama gildir um fataskápa, glugga og fleiri hluti sem notaðir eru í hús. Hér er því um mjög stóran flokk að ræða, ekki aðeins þessar tilbúnu húseiningar, heldur einnig alla þá hluti sem smíðaðir eru í hús á verkstæðum.
Hitt er svo annað mál, að húseiningarnar búa hér við sérstakt ranglæti, og ef það kæmi til greina, eins og hefur staðið til, að gera eitthvað sérstaklega í þeim efnum, þá býst ég við að það færi betur á því að heimila endurgreiðslu til þeirra aðila sem kaupa slíkar húseiningar, þannig að þeir sitji við svipað borð og aðrir sem standa í húsbyggingum.
En ég skal ekki, herra forseti, þreyta menn með lengra máli að þessu sinni. Ég vildi aðeins benda á að hér er um flókið mál að ræða og málaflokk sem er orðinn algjör frumskógur, eins og ég tók fram áður, og vil aðeins ítreka það, að það er mjög nauðsynlegt að nú þegar fari fram endurskoðun á allri þessari löggjöf.