29.04.1977
Neðri deild: 79. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4001 í B-deild Alþingistíðinda. (2997)
21. mál, leiklistarlög
Gunnlaugur Finnsson:
Herra forseti. Hér liggur fyrir till. um að vísa þessu máli til menntmn. sem og öðru mikilsverðu máli þar sem umr. er lokið. Ástæðan fyrir því, að ég kem hingað í ræðustól, er einfaldlega sú, að ég get ekki orða bundist að vekja athygli hæstv. ráðh. á því og hæstv. forseta, að starfsháttum þingsins og leyfum þm. er þann veg farið, að hér er á vettvangi í dag hvorki formaður né varaformaður menntmn. Ég tel þetta harla miður farið þegar í hönd fer helgi og nánast eru tveir starfsdagar eftir af þinginu eftir helgi, miðað við það sem áætlað er. Það hefði kannske verið hlutverk stjórnarandstöðunnar að benda á þetta. En ég er mjög ósáttur um þetta, ekki síst þar sem hér er á ferðinni mál sem búið er að vera fyrir þinginu mestallan veturinn og þannig horfir nú þegar dregur að þingslitum.
Efnislega ætla ég ekki að ræða um frv. á þessu stigi þar sem ég hef tækifæri til þess í n., ef tekst að ná henni saman.