14.10.1976
Neðri deild: 3. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (30)

11. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Það er hægt mín vegna að ljúka þessum umr. fyrir kl. 4. Ég ætla aðeins að mæla örfá orð vegna þessa frv. Þegar þetta mál var hér til umr. á s.l. vetri, þá gerði ég grein fyrir afstöðu minni til þess. Ég taldi nauðsyn á því að þetta mál fengi þá afgreiðslu, og sú afstaða mín hefur ekkert breyst, þannig að ég vildi nota þetta tækifæri til þess að láta það koma fram, að ég tel nauðsynlegt að þetta mál fái skjóta afgreiðslu hér í þinginu. Það er búið að ræða þetta mál það mikið, var rætt mikið á s.l. þingi og í þn., þannig að menn ættu ekki að vera neitt til þess vanbúnir að taka afstöðu til þessa máls.

Það má vel vera að enn sé einhver fyrirstaða hjá öðrum stjórnarflokknum gegn þessu máli. Það virðist vera svo í umr., þó að ekki hafi margir af hv, þm. Sjálfstfl. tekið til máls nú, þá virðist vera enn a.m.k. allmikill meiningarmunur um það á milli þeirra flokksbræðra, hvort þetta mál eigi að ná fram að ganga eða ekki. Ég vænti þess, að menn sjái nú að sér sem hafa spyrnt við fótum, ekki síst vegna þess að þeir hljóta að hafa séð af reynslu undanfarandi mánaða að það er brýn nauðsyn á því að efla og styrkja þennan þátt dómsmálanna og dómsgæslunnar í landinu vegna þess sem hefur gerst á undanförnum mánuðum, vegna þeirrar ógnaraldar sem virðist vera riðin yfir hér á Íslandi varðandi þessi mál. Það er því full þörf á því að það sé gert sem hægt er til þess að spyrna við fótum. Og ég vænti þess, að þeir hv. þm. Sjálfstfl., sem enn kunna að vera þungir í spori til þessa máls, breyti hugarfarinu og verði hlynntir því að þetta mál fái skjóta afgreiðslu hér á þinginu og verði afgreitt núna áður en fjárlög verða afgreidd, þannig að hægt sé að taka inn í mynd fjárl. fyrir árið 1977 þá fjármuni sem augsjáanlega koma til með að þurfa að verða fyrir hendi þegar og ef frv. þetta verður að lögum.