29.04.1977
Neðri deild: 79. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4002 í B-deild Alþingistíðinda. (3002)
70. mál, endurhæfing
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Þetta mál hefur legið alllengi fyrir heilbr.- og trn. Það varð að samkomulagi að vísa till. til ríkisstj. með þeirri smábreytingu á upphaflegu till., að læknisfræðilega endurhæfingin heyrði undir heilbrrn. Nm. þótti þetta í sjálfu sér eðlilegt og gott mál og náðist um það samstaða eftir nokkrar aths. af hálfu flm., en það hefur orðið samkomulag um það og skrifa allir nm. undir nál.