29.04.1977
Neðri deild: 80. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4017 í B-deild Alþingistíðinda. (3018)
225. mál, framhaldsskólar
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Hæstv. menntmrh. lét þess getið í ræðu sinni, að Alþ. þyrfti helst að hraða afgreiðslu þessa máls, og ég er honum fyllilega sammála um það, án þess þó að kastað sé höndum til afgreiðslu málsins. Þetta frv. hefði í rauninni þurft að vera komið fram fyrir löngu, því að við lifum á miklum umbrotatímum í skólamálum og erfitt að fylgja fram grunnskólalögunum þegar ekki er í lög fest hvað tekur við að grunnskóla loknum. Skólamönnum er því mikill vandi á höndum. En mér sýnist að í þessu frv. stríði þó ýmislegt gegn þessari ósk hæstv. ráðh., því að gildistaka laganna á ekki að vera fyrr en 1. júlí 1980 og hæstv. ráðh. kvartar mjög undan því að fá ekki fjárveitingu til námsskrárgerðar. Án fjárveitingar til námsskrárgerðar eru lög orðin tóm, og gildir þá einu hvort Alþ. er búið að afgreiða þetta mál, eða ekki. Í þriðja lagi virtist mér að mjög mikilvægur kafli þessa frv. væri nánast óafgreiddur, þar sem er fjármálakaflinn. Hæstv. ráðh. orðaði það svo, að þessi fjármálakafli væri hugmyndir og innlegg í umr. um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og um þennan kafla frv. ætti sérstök n. að fjalla í sumar. Þetta er ekki gott veganesti fyrir hv. menntmn. þegar hún fer að fjalla af alvöru um það frv. sem hér liggur fyrir.
Hæstv. menntmrh. tók fram að ríkisstj. sem slík stæði ekki að frv., — ég held að ég hafi tekið rétt eftir, — en hann orðaði það svo, að það ætti að vera stefnumótandi fyrir sig. Ég bið hæstv. ráðh. afsökunar ef ég misskil hann, en mig langar til að fá úr því skorið hvort hæstv. menntmrh. stendur ekki að frv. að öllu leyti eins og það liggur fyrir nú. Mér virtist það ekki koma ljóst fram í máli hæstv. ráðh.
Á þessu stigi við 1. umr. mun ég ekki flytja langt mál. Frv. sjálft er ekki nema 29. greinar, en þar fyrir eru fjöldamörg atriði sem þurfa umfjöllunar við og nánari athugunar. Ég mun því hvað varðar námsskipanina og stefnuna í menntamálum, eins og hún liggur fyrir í frv., aðeins lýsa yfir, að mér virðist það vera svo, að ég gæti fallist á þá heildarstefnu sem þar er. Hún er í stórum dráttum sú að samræma framhaldsnámið og koma í veg fyrir blindgötur í kerfinu, eins og það hefur verið orðað, koma á meiri sveigjanleik til þess að einstaklingnum geti nýst betur það nám sem skólinn býður. Hér virðist mér einnig vera farið eftir þeim hugmyndum sem Alþb. hefur löngum sett fram, að verknámið skuli fært inn í skólana. Ég vil taka það fram, að þó að ég noti þetta orðalag, þá er ekki þar með sagt að ég eigi við að allt verklegt nám eigi að fara fram innan skólabyggingarinnar, heldur að skólinn hafi þar yfirstjórn og umsjón. Mér virðist þessu atriði vera fullnægt í frv.
Ég mun við þessa umr. aðallega gera tvennt að umræðuefni. Í fyrsta lagi geri ég aths. við skólaskipanina, þ. e. a. s. 13. gr. frv. í kaflanum um skólaskipan. Mér virðist að þar sé verið að svipta Alþingi allmiklu valdi, þar sem það er algerlega á valdi menntmrn. að ákveða hvar starfrækja skuli framhaldsskóla. Ég hygg að í flestum lögum um skólastofnanir nú sé ákveðið hvar skóli skuli vera eða einhver vísbending um það. Mér virðist í fljótu bragði að í þeirri áætlun, sem ætlað er að menntmrn. láti gera og eigi að leggja fyrir Alþ., eigi ekki aðeins að vera fjármálakaflinn sem lagður sé fyrir Alþ., heldur líka áætlunin í heild. Þarna geta auðvitað komið fram ákaflega mörg sjónarmið sem þm. eiga að hafa yfirsýn yfir, og ég held að það sé óþarft að láta hræðslu við kjördæmasjónarmið ráða hér ferðinni og verða til þess að fá menntmrn. óeðlilega mikið vald.
Gert er ráð fyrir því í þessu frv., að fræðsluráðin, sem kjörin voru samkv., grunnskólalögunum, skuli vera rn. innan handar eða hafa tillögurétt um ýmsa þætti menntamála. Þetta er auðvitað sjálfsagt, að heimamenn hafi þar hönd í bagga. En ég vil þó benda á það, að enn sem komið er eru fræðsluskrifstofur í landinu varla starfhæfar þar sem þær hafa verið í algeru fjársvelti.
Það, sem ég er algerlega andvíg í þessu frv., er fjármálakaflinn. Hér er gert ráð fyrir að allt framhaldsskólanám í landinu skuli vera kostað af ríki og sveitarfélögum, þ. e. a. s. enginn framhaldsskóli skuli vera ríkisskóli, nema svo verði ákveðið á Alþ. ef um mjög sérhæft nám er að ræða. Menntaskólar allir verða þá samkv. þessu frv. stofnaðir og reknir af ríki og sveitarfélagi í sameiningu. Gert er ráð fyrir að sveitarfélög greiði helming alls rekstrarkostnaðar, annars en launakostnaðar vegna skólastjórnar og kennslu, og 30% að grunntölu af stofnkostnaði, öllu viðhaldi og endurnýjun skólahúsnæðis. Mér finnst hér vera lögð til svo gagngerð breyting að ég hefði haldið að hæstv., ráðh. þyrfti að hafa um þetta fleiri orð en hann gerði. Það kom ekki fram hjá honum hvernig hæstv. ríkisstj. ætlar sveitarfélögunum að fjármagna þetta. Það liggur í augum uppi, að hér er verið að leggja á sveitarfélögin gífurlega mikinn aukakostnað umfram það sem nú er, og hrædd er ég um að jafnvel Reykjavík muni kveinka sér undan þessu. Hér eru þrír fjölmennir menntaskólar, og nemendur, sem stunda nám við þessa menntaskóla, koma alls staðar utan af landinu, og ég er hrædd um að þetta fyrirkomulag, hvort sem um er að ræða Reykjavík eða önnur bæjarfélög eða sveitarfélög, að það verði til þess að takmarka aðgang unglinga úr öðrum sveitarfélögum að þessum framhaldsskólum. Ég fæ ekki betur séð en þetta fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir, beinlínis stríði gegn því sem menntastefnunni er ætlað að gera, þ. e. a. s. að auka jafnrétti nemenda án tillits til búsetu. Og hrædd er ég um að sú dreifing náms, sem hæstv. ráðh. talaði um, yrði minni en ella. Þetta þýðir að það þarf að nást innbyrðis samkomulag milli sveitarfélaga um að halda uppi framhaldsnámi. Ég er hrædd um að hin fámennari sveitarfélög muni hér skerast úr leik og ekki treysta sér til að taka þennan kostnað á sig. Við höfum dæmi þess í iðnfræðslulögunum, þar sem iðnskólarnir eru reknir af ríki og sveitarfélögunum í sameiningu. Það er enginn vafi á því, að þetta er eitt af þeim atriðum sem hafa komið í veg fyrir að iðnnámi væri haldið uppi með reisn í þessu landi.
Í 26. gr. held ég að felist allir annmarkar á þessu fyrirkomulagi, og ég ætla að leyfa mér að lesa hana, með leyfi hæstv. forseta. Hún hljóðar svo:
„Heimilt skal með samkomulagi við menntmrn. að eitt sveitarfélag eða fleiri í sameiningu standi að framhaldsskóla án aðildar annarra sveitarfélaga í fræðsluumdæminu, enda taki skólinn til verulegs hluta af því námi sem gert er ráð fyrir í lögum þessum. Slíkt fyrirkomulag má ekki verða til þess að hindra eðlilegt skipulag skólahalds og samvinnu skóla í umdæminu, takmarka aðstreymi nemenda eða auka með óeðlilegum hætti kostnað annarra sveitarfélaga.“
Hér eru allir þessir varnaglar, vitanlega vegna þess að þetta verður afleiðingin af því fyrirkomulagi sem frv. leggur til í fjármálakaflanum. Ég held að þessi grein segi meira en nokkuð það sem ég gæti sagt hér í langri ræðu, þar sem heildaráhrifin af þessari grein sýna auðvitað að hér verður um algeran glundroða og stjórnleysi að ræða.
Við alþb.-menn höfum lagt ríka áherslu á það, að ríkið kostaði iðnnám eins og það kostar menntaskólanám núna, og ég held að hin eina eðlilega krafa hljóti að vera sú, að allt framhaldsnám sé kostað af ríkinu. Það er örugglega hætta á því, að sveitarfélög eða hin ýmsu byggðarlög úti á landi muni alls ekki sækjast eftir því að fá framhaldsskóla heim í héruð ef það á að kosta svona mikið. Og ég held að þau sé óhætt að fullyrða að þetta stríði algerlega gegn þeirri byggðastefnu sem framsóknarmenn hafa á orði a. m. k.
Þó kastar fyrst tólfunum þegar litið er á 29. gr., því að þar kemur í ljós að það eru undantekningar varðandi vissa skóla, að Verslunarskólinn og Samvinnuskólinn eiga að fá fríðindi umfram aðra skóla, því að 9. gr. í lögum um viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi frá 1976 á að halda gildi sínu. Það þýðir það, að ríkið á eftir sem áður að greiða rekstrarkostnað þessara skóla að fullu og 80% af stofnkostnaði kennsluhúsnæðis. En við aðra framhaldsskóla, eins og hefur komið fram hér, á ríkið aðeins að greiða 50% rekstrarkostnaðar og 70% stofnkostnaðar. Mig langar til þess að spyrja hæstv. menntmrh. hvað ráði hér. Er hæstv. ráðh. þeirrar skoðunar, að hér sé um svo mikið sérnám að ræða að þessir skólar eigi að vera fremur ríkisskólar heldur en aðrir skólar, eða er þetta eitthvert slys?
Hæstv. ráðh. talaði ákaflega mikið um að það þyrfti að samræma lög um ýmsa skóla í samhengi við þetta frv., og ég er honum fyllilega sammála um það. En þá þurfa líka Verslunarskólinn og Samvinnuskólinn að falla undir þetta. Það skýtur skökku við að vera að taka Skálholtsskóla inn, eins og verið er að gera þessa dagana, að ríkið skuli greiða þann rekstrarkostnað að fullu, því að ég fæ ekki séð að það sé unnt að halda því fram með neinum rökum að þar sé haldið uppi sérhæfðri kennslu. Þá eru bændaskólarnir ekki heldur teknir inn í þetta, og þeir munu samkv. frv. eiga áfram að heyra undir landbrn., en ekki menntmrn.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta að sinni. Það má vel vera að þetta sé réttmætt, en þetta eru bara nokkur atriði af fjöldamörgum sem þarf að átta sig á þegar þetta frv. er athugað. Ég mun fyrir mitt leyti ekki tefja fyrir framgangi eða afgreiðslu málsins í n. En ég lýsi mig algerlega andvíga fjármálakaflanum.