29.04.1977
Neðri deild: 80. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4020 í B-deild Alþingistíðinda. (3019)

225. mál, framhaldsskólar

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Virðulegi forseti. Ég skal nú ekki fyrir mitt leyti lengja verulega þessa umr., en vil aðeins víkja að nokkrum atriðum sem komu fram í ræðu hv. 5. landsk. þm.

Ég vil fyrst árétta það, sem auðvitað kom fram í framsöguræðu minni, að frv. er lagt fram til kynningar. Menntmrn. er nú að senda frv. til umsagnar fjölmörgum aðilum. Reynt verður að vinna úr þeim umsögnum í vinnuhópi eða hópum, eins og ég sagði. Af þessu leiðir það, að allt frv. er í raun og veru fyrir fram til endur­skoðunar. Það er sem sagt lagt fram til kynn­ingar og lýst yfir að það verður sent út til umsagnar.

Hv. þm. minntist á gildistöku frv. eins og hún er ráðgerð í frv. Þetta ákvæði er sett í frv., l. júlí 1980, með það í huga að frv. felur í sér mjög yfirgripsmikla breytingu sem við teljum, að þurfi nokkuð langan tíma til þess að undirbúa, þannig að hún geti komið til framkvæmda. Eftir að lögin eru sett mundi málunum að sjálf­sögðu verða þokað í átt að hinni nýju skipan, en þetta eins og önnur atriði er til skoðunar.

Það er rétt hjá hv. þm. og kom einnig fram í mínu máli, að námsskrárgerð er nauðsynlegur undanfari framkvæmda svona löggjafar. Ég harma að ekki hefur verið unnt að byrja á henni vegna auraleysis. En einmitt þegar við lítum til þessarar gildistöku, þá sést að við, sem stöndum að frv., ætlum þarna nokkurn tíma til þess að vinna að námsskrárgerð og öðrum undirbúningi sem ég áðan greindi frá. Það er óhjákvæmilegt að vinna að fjármálaákvæðunum í nánu sam­ræmi við endurskoðun á verkefnaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Ég ætla að koma aðeins nánar inn á það á eftir.

Þá er spurning hv. þm. um nánari skilgreiningu á afstöðu ráðh. menntamála og afstöðu ríkisstj. til frv. Ég hélt að ég hefði skilgreint þetta í mínu máli. Ég held að það verði kannske skýrara með því að snúa við og segja: Nefnd sú, sem vann frv., hafði náið samráð við mennt­mrh. um meginlínur og um einstaka þætti þess. Það er því stefnumótandi fyrir menntmrh. og menntmrn., svo langt sem það getur náð, sbr. það sem á eftir fer, því að auðvitað mótar ekki menntmrh. endanlega stefnu sína öðruvísi en í samráði við sína samráðh., en þá kæmi það á eftir, sem ég greindi víst frá á undan áðan, að frv. er nú lagt fram til kynningar, ekki stefnt að afgreiðslu á Alþ. Ríkisstj. hefur ekki fjallað um það í einstökum atriðum og þess vegna ekki tekið ákvörðun um einstök atriði þess eða um þá heildarstefnu sem í því felst. Ég get nú, held ég, ekki skýrt þetta öllu nánar.

Hv. þm. benti á, og mér kemur það ekki á óvart þó að hv. þm. gefi því gætur, að þarna er gert ráð fyrir að skipa málum mjög margra skóla með reglugerð, einstakra skóla innan kerfisins. Hv. þm. telur að þarna sé um nokkurt nýmæli að ræða og m. a. það, að Alþ. hafi jafnan ákveðið hvar hver skóli skuli starfa. Þetta er oft svo, og í lögum um einstaka skóla er það svo. En hins vegar er í nokkrum lögum um skóla, t. d. um menntaskóla, um viðskiptafræðslu, um Fiskvinnsluskólann, þá er gert ráð fyrir því að heimilt sé að stofna skóla án þess að það sé ákveðið með lögum hvar þeir starfi. Og það er t. d. eins varðandi fjölbrautaskólana, að það er heimild til þess að stofna þá án þess að Alþ. setji um það sérstök lög. Þetta var gert á Suður­nesjum t. d. í fyrra, svo ég nefni eitt dæmi. En það er eðlilegt að menn velti þessu fyrir sér á marga vegu.

Hv. þm. minntist á það, að þarna er gengið út frá kjördæmunum sem skólahverfum líkt og á grunnskólastiginu. Út af fyrir sig gagnrýndi hv. þm. það ekki. Og er það nú ekki eðlilegt að fá þessar félagsheildir inn í lögin? Þetta er bein­línis gert til þess að reyna að efla þessa kjarna, fræðsluskrifstofurnar, á hinum átta landssvæðum, til þess að efla þá og færa yfir til þeirra nokkuð af þeim stjórnunar- og þjónustuverkefnum sem nú eru unnin í rn. Fræðsluskrifstofurnar eru alveg nýlega stofnaðar og hefur ekki tekist enn að búa þær fyllilega úr garði og verður unnið að því áfram. Með þessari hugmynd hér er gert ráð fyrir að efla þær mjög.

Hv. þm. var andvígur því, að sveitarfélögin kæmu þarna til í ríkari mæli en áður, heldur yrði alfarið horfið að því að ríkið eitt annaðist framhaldsskólastigið og sveitarfélögin kæmu þar hvergi nærri. Þetta er atriði sem menn velta fyrir sér. En frá hálfu okkar, sem stöndum að frv., er þetta hugsað þannig að sveitarfélögin verði virkari aðilar, fái bæði meiri stjórnunar­ábyrgð en áður í gegnum fræðsluráðin og fræðslu­skrifstofurnar og þá um leið meiri kostnaðar­ábyrgð. Þetta held ég að sé fyrst og fremst spurning um skipulagsatriði sem menn geta náttúrlega deilt um, en ekki spurning um byrðarnar, því að í sambandi við verkefnaskiptinguna verður að ætla tekjustofna eftir því hvort dregið verður úr kostnaði hjá sveitarfélögum ellegar aukið við. Og það byggist m. a. á því, að ætlast er til að nokkuð stór svæði standi á bak við þetta. Og þegar þetta stór svæði standa á bak við, þá held ég að málið sé ekki stórkostlega vandasamt að þessu leyti. En eins og ég sagði, það er eðlilegt að menn velti þessu mjög fyrir sér og áskilji sér allan rétt til að skoða þetta. Ég árétta það enn og aftur, að frv. er lagt fram til kynningar, ekki ætlunin að bera það fram óbreytt, þvert á móti verður það sent til skoðunar mjög víða. Og ég legg áherslu á að það eru alveg eðlileg vinnubrögð annars vegar að setja upp sérstakan vinnuhóp til að meta þetta sérstaka atriði og hins vegar að hann starfi í nánum tengslum við þá n. sem nú vinnur að verkefnaskiptingunni á milli ríkis og sveitar­félaga.

Það er aðeins eitt atriði í sambandi við ummæli hv. þm. um bændaskólana, sem ekki eru felldir undir þetta kerfi, og um menntun heil­brigðisstétta. Það er lagt til þarna að taka nokkra skóla undir þetta samræmda framhaldsskóla­kerfi og menntmrn. sem ekki hafa verið það áður. Heilbrigðisstéttirnar hljóta sína menntun í skólum sem lúta nú tveimur rn., heilbrigðis- og menntamála. Það er lagt til að fella það nám allt undir samræmda framhaldsskólann, en ekki bændaskólana. Þetta er atriði sem er al­gerlega eðlilegt að menn velti fyrir sér. En aftur um einkaskólana, Verslunarskólann, Samvinnuskólann, Skálholtsskóla, sem frv. liggur hér fyrir um að taka inn, þá eru þeir skólar að nokkru einkaskólar og gert ráð fyrir að þeir verði það áfram. Þegar þetta ber á góma legg ég alltaf áherslu á það, að hina skólana alla kosta opin­berir aðilar, þó að óviðunandi ósamræmi sé í greiðsluhlutfalli. En þetta frv. fjallar alls ekki um meðferð einstakra skólastofnana. Það er atriði sem menn taka til skoðunar á síðari stigum málsins, eins og ég gerði grein fyrir, og svo á hvaða sviði námsbrautir starfa við þennan eða hinn skólann.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram. En ég vil annars þakka hv. þm. fyrir skilning á því, að nauðsynlegt er að vinna svo hratt sem aðstæður leyfa að þessu máli, og fyrir skilning á meginatriðinu, þó að með eðlilegum hætti komi fram ýmis gagnrýni á einstök atriði málsins.