30.04.1977
Efri deild: 79. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4025 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)

194. mál, atvinnuleysistryggingar

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Örstutt aths. eða leiðrétting. Ég verð að biðja hæstv. félmrh. velvirðingar á því að mér urðu á mis­tök. Ég vil leiðrétta það, að það er ekki hann, sem er ábyrgur fyrir framkvæmd þessara laga að sjálfsögðu, heldur heilbr.- og trmrh.

En út af því sem kom fram hér áðan, þá er náttúrlega helsta ráðið að koma með fsp. á þingi og halda málinu þannig vakandi að sjálfsögðu.