30.04.1977
Efri deild: 80. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4028 í B-deild Alþingistíðinda. (3036)
Umræður utan dagskrár
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Málefnisins vegna langar mig til að þakka þingfréttaritaranum fyrir að taka þetta mál svo rækilega fyrir. Ég held að það hafi orðið til góðs. Hitt vil ég segja og vil leggja á það áherslu, að ég var náttúrlega ekki ánægður með það, að t. d. mitt mál var slitið allmikið í sundur og hv. 2. þm. Norðurl. e. svaraði nokkru af því, sem ég hafði sagt, en það, sem ég hafði sagt, kom hvergi fram í útvarpinu. Ég býst við að í þessu efni sé erfitt um vik að gera svo að öllum líki. Og ég tek undir með þeim sem hér hafa talað, að það er mikils virði og sjálfsagt í fyrsta lagi að leita álits okkar og samþykkis okkar, sem tölum og í öðru lagi að meginefni málsins komi fram.