30.04.1977
Efri deild: 80. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4031 í B-deild Alþingistíðinda. (3044)

234. mál, Iðnlánasjóður

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég verð að fara nokkrum orðum um þetta frv., en lýsi jafnframt stuðningi mínum við það, en harma hvað það er stutt varðandi aths. Ég hefði gjarnan viljað fá yfirlit yfir hvað hefði komið inn í þessu veiðarfæragjaldi og tekið fram á hvaða veiðarfæri þetta gjald legðist. Það lagðist ekki á veiðarfæri sem voru framleidd hér á landi. Það lagðist á síldarnætur og teina, sem eru notaðir á síldar- og loðnunætur og ekki er hægt að framleiða hér á Íslandi, og var gjald er nam nokkrum tugum þúsunda á hverja nót. Heildar­tekjur og ráðstöfun á þeim hefðu einnig átt að koma fram, svo að það lægi ljóst fyrir hvert þessar tekjur hafa farið og hvernig þeim var ráðstafað. En ég hef grun um að þær hafi að mestu leyti farið í eitt fyrirtæki hér á Íslandi, ágætisfyrirtæki út af fyrir sig. En það hafa margir sótt um lán, sem eru í veiðarfæraþjónustu og veiðarfæragerð, án þess að fá áheyrn, og vil ég sérstaklega taka undir orð frsm., að hér verði ráðin á bót hið snarasta, því að það er mála sannast að úti um allt land eru nokkrir menn er hafa það hlutverk að halda veiðar­færum í lagi við mjög kröpp kjör, bæði í hús­næði, vinnuskilyrðum og að öllu leyti varðandi rekstrarfé, svo kröpp að það er alveg furðulegt að þessir menn skuli hafa getað haldið starfsemi sinni gangandi. Það er því fagnaðarefni ef ríkisvaldið og forsvarsmenn iðnaðarins vilja líta til þessara manna, því að verk þeirra eru það mikilvæg að öll veiði landsmanna byggist á því að vel takist þar til. Það er gagnslaust að hafa gott togveiðiskip ef veiðarfærin eru ekki rétt saman sett. Það er einnig gagnslaust að hafa hin fullkomnustu nótaskip með öllum mælum og tilheyrandi útbúnaði ef nótin lokast ekki rétt. Þá skilar hún engu upp að skipshliðinni.

En nætur núna vega hvorki meira né minna en 16–20 tonn og verða ekki hreyfðar né teknar til eða frá nema með vissum tækjum, þ. e. a. s. vélbúnaði. Áður urðu menn að handvinna þetta allt og draga til við mjög erfiðar aðstæður. En það er liðinn tími að geta gert það, og þess vegna hefur þessi krafa frá hendi útgerðarinnar kallað á verulega aukinn útbúnað í landi sem ríkisvaldið hefur hvergi nærri viljað hlusta á. En ég vænti þess, að breytingin í þessu frv., — og ég treysti hæstv. iðnrh. til þess að fylgja því eftir, — leysi þetta vandamál hið bráðasta.

En það er ekki aðeins að það hefur þurft betri tækjabúnað, heldur hefur einnig orðið og þarf samkv. opinberum kröfum að laga til á vinnustað, sérstaklega hjá þessum iðnaði og nokkrum fleiri sem þjóna sjávarútvegi fyrst og fremst. Og við tveir flm. brtt, á þskj. 551, ég og hv. þm. Eggert G. Þorsteinsson, leggjum til í leiðinni að Iðnlánasjóði verði heimilað að starfrækja nýja lánadeild, sem skal kallast starfsumhverfisdeild, og sjóðsstjórn ásamt hæstv. iðnrh. tryggi þessari nýju starfsemi eitthvert fjármagn. Sjálfsagt er að fara rólega af stað og athuga vel sinn gang. En hér er mikið vandamál í uppsiglingu vegna aukinna krafna frá ríkisvaldinu. Hliðstætt því, sem hefur verið gert í sjávarútvegi nú um hollustuhætti og aðbúnað við frystihúsin, eru að koma vaxandi kröfur varðandi starfsumhverfi og hollustuhætti í iðnaði og mörg fyrirtæki verða að laga til hjá sér, og það verður að veita þeim eitthvert stofn­fjármagn til þess að geta gert það að kröfu ríkisvaldsins, svo að ég trúi ekki öðru en þessi till. fái hljómgrunn. Framkvæmd hennar fer eftir ákvörðun viðkomandi ríkisstj. hverju sinni og stjórninni á sjóðnum, en það er nauðsynlegt að opna þennan möguleika jafnframt því sem við breytum hér lögum Iðnlánasjóðs.

Að lokum vil ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir að koma með þetta frv., þótt það komi hér fram á síðustu stundum þingsins. Ég vænti þess, að hér sé í uppsiglingu verulega sterkt og gott átak til þess að bæta úr mikilli þörf — verulega mikilli þörf hjá þessum iðngreinum sem hafa sinnt veiðarfæragerð undanfarna marga áratugi á Íslandi.