30.04.1977
Neðri deild: 81. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4039 í B-deild Alþingistíðinda. (3066)
236. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur rætt þetta mál, frv. til 1. um breyt. á 1. um tekju- og eignarskatt, og hefur orðið sammála um að mæla með því að frv. verði samþykkt.
Þetta frv. gefur ekki tilefni til þess að flutt sé langt mál. Hæstv. fjmrh. rakti hér efni frv. í framsöguræðu sinni í gær. Efni frv. varðar nauðsynlegar breytingar sem gera þarf vegna breytts fasteignamats: Í fyrsta lagi að heimiluð fyrning megi miðast við fasteignamat sem var í gildi í ársbyrjun 1976, en ekki fasteignamatið sem tók gildi um áramót 1976–1977. Í 2. gr. frv. eru svo breytingar frá gildandi lögum og varða álagningu eignarskatts. Annars vegar er breyting á skattstiga og skatthlutfalli einstaklinga. Skattstiginn hefur verið 0.6% af fyrstu 1500 þús. umfram 2.7 millj. og 1% af því sem þar er fram yfir. Núna verður skattstiginn 0.8% af þeirri eign sem umfram er 6 millj. hjá einstaklingum og 9 millj. hjá hjónum, en hjón voru áður skattlögð eins og einstaklingar. Svo er breytt eignarskattstiga félaga, sem verið hefur 1.4%, en verður 0.8% eins og hjá einstaklingum. Er ætlað að skattbyrði félaga verði óbreytt frá því sem gert var ráð fyrir í fjárl., en eignarskattsbyrði einstaklinga mun heldur minnka. Og það er áætlað, að eignarskattsgreiðendum muni fækka um allt að 10 þús.
Það er ekki ástæða til að hafa um þetta fleiri orð, en n. leggur til að frv. verði samþykkt.