30.04.1977
Neðri deild: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4042 í B-deild Alþingistíðinda. (3078)

165. mál, póst- og símamál

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. frsm., 4. þm. Vesturl., hafa þrír af nm. samgn. Nd. skrifað undir með fyrir­vara, og ég tel hlýða að ég geri í örstuttu máli grein fyrir í hverju minn fyrirvari er fólginn.

Það er rétt að okkur þótti slæmt, nm. í sam­gn. Nd., hve skammur tími var til stefnu til að taka afstöðu til þessa máls endanlega, enda þótt við hefðum áður, á fyrra stigi málsins, verið á sameiginlegum fundum með samgn. Ed. og þá með höfundum frv. og nokkrum starfsmönnum Pósts og síma. En það er nú svo, að þegar til kastanna kemur og á að skrifa undir, þá kemur ýmislegt upp úr kafinu sem maður gjarnan vildi taka til betri athugunar.

Ég fyrir mitt leyti tel til hins verra, en þetta er að sjálfsögðu aukaatriði, að breyta nafni stofnunarinnar Pósts og síma í Póst- og símamála­stofnun. Ég hef frá upphafi talið að þetta nafn á þessari stofnun, Póstur og sími, væri þjált og liðugt í meðförum. Við höfum nógu margt af maraþonnöfnum meðal okkar mörgu stofnana og Póstur og sími finnst mér sóma sér vel. En ég tek það fram, að þetta tel ég þó aukaatriði.

Það, sem ég hefði viljað fá tóm til að athuga betur og hugsanlega koma á framfæri sem brtt. er að það væri eðlilegt að Alþ. ætti hlutdeild í stjórn stofnunarinnar. Ég tel auk þess að breytingin, sem kom frá Ed. í þá átt að komið yrði á fullkominni jöfnun símgjalda, hefði mátt vera ákveðnari. Þar segir að stefnt skuli að því að sömu gjöld gildi innan hvers svæðisnúmers. Þar stendur og að ráðh. sé heimilt að ákveða að sama gjald skuli krafið fyrir símtal við helstu stjórn­sýslustofnanir ríkisins í Reykjavík hvaðan sem er af landinu, að því skal stefnt að tekjur samkv. gjaldskrá nægi til að rekstrarjöfnuður náist o. s. frv.

Það voru þessi tvö atriði, sem þarna eru orðuð, sem ég tel vissulega til bóta, að þetta er þó tekið til athugunar og að þessu skuli stefnt. Ég hefði viljað orða þetta sterkar og koma fram með brtt. samkv. því. En að athuguðu máli, vegna þess að ég veit, að það er mikið kapp á það lagt að ná þessu mikla frv. fram núna, þá geri ég það ekki, vænti þess, að þessi atriði stefni í rétta átt. Og með það í huga, að að sjálfsögðu má bera fram brtt. við þessi lög síðar meir, þótt samþykkt verði nú, þá ætla ég ekki, til þess að hindra ekki framgang málsins, að fara lengra en gera þessar aths. við afgreiðslu málsins.