30.04.1977
Neðri deild: 82. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4043 í B-deild Alþingistíðinda. (3080)

165. mál, póst- og símamál

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Á þskj. 575 flyt ég ásamt hv. þm. Benedikt Gröndal brtt. við frv. Tel ég rétt að lesa þessa brtt., með leyfi hæstv. forseta. Hún er um að 1. gr. frv. orðist þannig:

„Sameinað Alþ. kýs á fjögurra ára fresti 7 menn í stjórn Póst- og símamálastofnunarinnar og aðra sjö til vara. Enn fremur skipar starfsmannaráð tvo menn í stjórnina úr hópi starfs­manna og aðra tvo til vara. Ráðh. skipar formann og varaformann stjórnarinnar úr hópi aðalmanna.

Stjórn stofnunarinnar skal hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi stofnunarinnar og gæta þess, að hún starfi í samræmi við lög og reglugerðir á hverjum tíma. Skal endurskoðunardeild starfa við stofnunina undir eftirliti hinnar þinskjörnu stjórnar.“

Hér er fyrst og fremst um það að ræða, að lagt er til að það verði ákveðið í löggjöfinni að Alþ. kjósi þessari stóru og þýðingarmiklu stofnun stjórn. Ég vil vekja athygli á því, að talið er að stofnunin Póstur og sími sé stærsta fyrirtæki sem rekið er á Íslandi, og það er það eflaust. Ég tel alveg fráleitt að halda því fyrirkomulagi lengur, að slíkt fyrirtæki sé rekið á þann hátt sem gert er, að það sé ekki kosin sérstök rekstrarstjórn yfir slíkt fyrirtæki af hálfu Alþingis. Og ég vil um leið segja það, að ég tel að það eigi í ýmsum fleiri tilfellum að breyta þessu gamla fyrirkomulagi, þetta eigi að verða hin almenna regla, að Alþ. hafi aðstöðu til þess að kjósa rekstrarstjórn yfir öll meiri háttar fyrir­tæki, sem hafa verulegan rekstur með höndum í umboði ríkisins. Á þann hátt er verið að tryggja hið lýðræðislega eftirlit og hið pólitíska eftirlit með slíkum rekstri. Það er alveg fráleitt að mínum dómi að koma þessu fyrir á þann hátt sem enn er hjá okkur frá gömlum tíma, þar sem embættismenn aðeins undir yfirstjórn ráðh. hafa slík þýðingarmikil mál með höndum. Við höf­um því flutt þessa till. Því miður lítur nú þannig út að það sé ekki beint líklegt að hún fáist samþykkt hér. A. m. k. fékkst ekki nokkuð hliðstæð till., að vísu dálítið á annan veg, samþykkt í hv. Ed. En ég tel alveg nauðsynlegt að vekja athygli á þessu máli, því að að því hlýtur að koma að meiri hl. alþm. viðurkenni að það eigi að gera breytingu í þessum efnum. Það fyrir­komulag, sem þarna er ríkjandi, er alveg fráleitt.

Ég vil vænta þess, að hv. þdm. geti fallist á þetta sjónarmið og samþykki þessa till. Það gæti orðið nokkur stefnumörkun varðandi þessi mál.

Að öðru leyti ræði ég svo ekki um þetta frv. Það hefur fengið tiltölulega litla athugun í n. hér í Nd., það er augljóst, en væntanlega allgóða athugun í Ed. En sem sagt, ég sé ekki ástæðu til að fara að hefja neinar umr. hér um málið almennt, heldur eingöngu þessa till. sem ég hef hér nú talað fyrir.