02.05.1977
Neðri deild: 83. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4080 í B-deild Alþingistíðinda. (3115)

168. mál, samvinnufélög

Frsm. meiri hl. (Gunnlaugur Finnsson):

Hæstv. forseti. N. hefur fjallað um þetta frv. og sent það út til umsagnar og hefur síðan unnið úr þeim umsögnum. Hér er um ekki stórfelldar, en þó á vissan hátt stefnumarkandi breytingar að ræða á samvinnulögum, og meiri hl. n., sbr. nál., mælir með því að frv. verði samþykkt óbreytt. Jóhann Hafstein var ekki viðstaddur afgreiðslu málsins. Ólafur G. Einarsson og Ellert B. Schram tóku ekki þátt í afgreiðslu þess.

Ég sé ekki ástæðu til að fjalla frekar um málið hér, vísa til ítarlegrar ræðu frsm. við 1. umr. og vænti þess að málið fái greiðan gang í gegn­um deildina.