08.11.1976
Efri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

57. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Á þskj. 59 er flutt frv. til l. um staðfestingu á brbl. sem út voru gefin s.l. sumar. Brbl. þessi fólu í sér að skattgjaldseign, sem engan skatt skyldi af greiða, var hækkuð úr 2 millj. í 2 millj. 700 þús. kr. til þess að ná fram samræmi við margföldun fasteignamatsins, sem var 2.7 eins og fram kemur. Við breyt. á skattalögunum frá 1975 var gert ráð fyrir að 2 millj. yrði sú tala sem ekki greiddist af skattur og hefði því útkoman orðið óhagstæðari skattgreiðendum en áður, en þessi tala var sett inn vegna varkárni. Þegar útkoman kom svo í ljós við endurmat á tekjum ríkisins, þá þótti eðlilegt og rétt að ná fram þessari lagfæringu og þess vegna voru þessi brbl. sett.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um frv., það skýrir sig sjálft. Ég legg til, herra forseti, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.