08.11.1976
Neðri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. nóv. 1976, Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Þorleifur K. Kristmundsson sóknarprestur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Tómas Árnason,

4. þm. Austurl.“

Þorleifur K. Kristmundsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því ekki rannsókn kjörbréfs. Býð ég hann velkominn til starfa hér í deildinni.

Mér hefur borist annað bréf, svo hljóðandi:

„Reykjavík, 4. nóv. 1976.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Guðrún Benediktsdóttir húsfreyja, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Ólafur Jóhannesson,

1. þm. Norðurl. v.“

Guðrún Benediktsdóttir hefur áður átt sæti á Alþingi, var á þinginu í vetur, og býð ég hana velkomna aftur til starfa hér í deildinni.