02.05.1977
Neðri deild: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4150 í B-deild Alþingistíðinda. (3192)
21. mál, leiklistarlög
Svava Jakobsdóttir:
Hæstv. forseti. Af því að ég heyri að hæstv. menntmrh. er mjög í mun að þetta mál tefjist ekki vegna atkvgr. og hugsanlegrar meðferðar í Ed., og eftir þær yfirlýsingar sem hann hefur gefið hér um þetta atriði, þá mun ég fyrir mitt leyti draga þessa till. til baka, og ég held að ég geti mælt fyrir munn meðflm. Við höfðum pata af því fyrr í dag, að hæstv. menntmrh. hefði af þessu áhyggjur, svo að við vorum búin að bera saman bækur okkar og vildum gjarnan létta einhverjum áhyggjum af önnum kafinni ríkisstj. En ég vil þó ítreka það, að það er mín skoðun að þetta eigi ekki að standa svona í lögum til frambúðar. Ég held að þetta þurfi endurskoðunar við. Ég er ekki sammála hæstv. ráðh. um að það eigi að festa í lögum atriði sem eru alveg sjálfsögð og liggja í hlutarins eðli. Ég veit t. d. ekki hvað leiklistarráð ætti að gera, áður en það tekur ákvörðun um ráðgjöf, annað en ræða um leiklistarmál. En ef þarf að skylda það til þess með lögum, þá er kannske rétt að gera það. En í trausti þess, að þetta ákvæði verði ekki misnotað, drögum við þessa till. til baka.