02.05.1977
Neðri deild: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4155 í B-deild Alþingistíðinda. (3201)

21. mál, leiklistarlög

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég skal nú ekki eyða dýrmætum tíma á síðustu dögum þingsins til að orðlengja þetta, þó að þetta mál sé vissulega ekkert ómerkara en hvað annað sem við erum að fjalla um þessa dagana. Ég vil í stuttu máli segja það mína skoðun, að ég held að við ættum ekkert að vera að hrófla við þessu frá hví sem meiri hl. n., hv. menntmn., afgreiddi það.

Mér finnst að það hafi komið hér fram misskilningur varðandi rómverskan lið I í 4. gr., þar sem talað er um að hlutverk leiklistarráðs sé að vera vettvangur skoðanaskipta og um­ræðna um leiklistarmál og stuðla að stefnumótun á því sviði á hverjum tíma. Ég hefði ákaflega vel getað fellt mig við að fella út þetta orð: „skoðanaskipta“, það er nánast það sama og um­ræður. En hins vegar þetta um stefnumótunina, þá finnst mér það liggja nokkuð í augum uppi, að það er ekki verið að tala um stefnu­mótun í leiklist, eins og hér kom fram áðan. Það er sitt hvað, leiklist eða leiklistarmál. Og ég tek undir það sem hæstv. menntmrh. sagði, að fyrir mér þýðir þetta nánast það, að rætt er um og reynt að móta stefnuna í framkvæmd og skipulagi leiklistarmála um allt landið. Og ég held að það sé frekar af því góða heldur en hinu gagnstæða. Ég vil líka benda á að þetta leik­listarráð, þótt ég játi að mér finnist það nokkuð fjölmennt, þá gæti það komið ýmsu góðu til leiðar, þ. á m. því, að þarna hefur áhugafólk í leiklist tækifæri til að komast í snertingu við fagmenntaða aðila: leikritahöfunda, tónskáld, lærða leikara, og ég held að fólki úti um landið, sem er að basla við að setja leikrit á svið, oft með undraverðum árangri, væri fengur í því að komast í snertingu og samvinnu við þessa aðila. Það er plús í frv., að þessu ráði er ætlað að koma bara einu sinni saman á ári og það er ólaunað. Að vísu er þarna talað um þriggja manna framkvæmdastjórn, sem vafalaust verður launuð, a. m. k. framkvæmdastjórinn sjálfur, þannig að þarna er vafalaust um einhvern kostnað af hálfu ríkissjóðs að ræða.

Ég rek hér augun í einn aðila sem á að vera aðili að leiklistarráði, en það eru einmitt sam­tök félagsheimilanna, og það er einmitt það sem ég átti við, samtök félagsheimilanna úti um landsbyggðina, sem yrði gagn að því að hafa sam­ráð og samneyti við fagmenntað leikhúsfólk.

Með tilliti til þess, að við viljum koma þessu áfram, þá fyndist mér að við ættum að stefna að því að afgreiða það eins og það kom frá meiri hl. menntmn.