03.05.1977
Sameinað þing: 84. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4174 í B-deild Alþingistíðinda. (3238)

214. mál, endurskoðun á opinberri atvinnu- og þjónustustarfsemi

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Eins og hér hefur komið fram, þá er vitanlega engin aðstaða hér í fsp.-tíma að ræða það mál, sem hæstv. fjmrh. hóf hér umr. um. En í því sambandi vil ég minna á að það voru gefin fyrirheit um það hér á hv. Alþ. fyrir jól, að það yrði gefinn kostur á því síðar á þinginu að ræða lánsfjár­áætlun ríkisstj. og stefnuna í fjárhagsmálum, og þá gert beinlínis ráð fyrir að það yrði gert um leið og hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir afkomu ríkissjóðs fyrir liðið ár. Ég tel að það sé úti­lokað með öllu að standa þannig að málum að koma með umr. um þetta mál hér inn í fsp.-tíma, og vil nú vænta þess að hæstv. ráðh. og ríkisstj. sjái sér fært að ætla nokkurn tíma til umr. um þá skýrslu sem hæstv. ráðh. gerði hér að umtalsefni, því að margt er í henni sem kallar á umr., þó ekki væri nema það, að þær tölur, sem hér var verið að vitna til og láta í það skína að það hefði heldur dregið úr skattheimtu ríkis­ins borið saman við það sem áður var í hlut­falli við þjóðarframleiðslu, þá sýna einmitt þær skýrslur, sem hér liggja fyrir, okkur alveg öfugt. Þær sýna að skattheimta ríkisins á árinu 1916 varð hærra hlutfall af þjóðarframleiðslu en nokkru sinni áður, eða 35.2%, borið saman við að á hinum mikla þjóðnýtingartíma, 1971–1974, var þetta 31–32%. En sem sagt, ég ætla ekki að fara að ræða þessa skýrslu frekar, en inni enn eftir því, að það verði gefinn hér kostur á því að ræða þessi mál á eðlilegan hátt, ekki í þessum dagskrártíma, heldur á eðlilegan hátt í umr. síðar í dag eða á morgun.