08.11.1976
Neðri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 519 í B-deild Alþingistíðinda. (325)
44. mál, skólakostnaður
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Eins og ég sagði, þá kannast ég ekki við að hafa kvatt mér hljóðs þegar þetta mál var til umr. fyrir nokkrum dögum, en alla vega er þetta gott mál og mál sem ég hef áhuga á, þannig að ég skal gjarnan verða við ítrekuðum ábendingum um að ég hafi kvatt mér hljóðs áður.
Þetta mál er hér lagt fram í annað skipti, eins og hv. dm. mun kunnugt um, og að því er mig minnir, þá fékk það þá afgreiðslu s.l. ár að því var vísað til ríkisstj. Flm. hafa engu að síður freistað þess að leggja það fram hér aftur, og þar sem ég á sæti í hv. menntmn. Nd. sem mun fá það til umfjöllunar, þá mun mér gefast tækifæri til að athuga allar hliðar málsins upp á nýtt.
Ég þarf ekki að taka undir það frekar nú en ég gerði s.l. ár, að þetta er mikið nauðsynjamál. Þá vil ég sérstaklega benda á það atriði, að það er ekki fullnægjandi fyrir sjómenn að geta lært að synda, þegar þeir eru á barnsaldri, og hafa svo enga aðstöðu til þess að þjálfa sína sundkunnáttu. Ég lít á þetta mál frá það alvarlegu sjónarmiði, að það geti verið um björgun mannslífs úr lífsháska að ræða, og það segir sig sjálft að svo fremi sem ekki sé aðstaða til sundiðkunar fyrir sjómenn, þá er hitt, sundkunnáttan, harla lítils virði.
Það, sem ég vildi einnig benda hv. flm. á. er þetta, að þeim hefur hér eins og stundum áður orðið það á að leggja fram góð mál sem kosta fjármuni, en ekki gert neina grein fyrir því hvernig fjármuna til framkvæmdarinnar skuli aflað. Ég hefði talið eðlilegt að við framlagningu málsins í annað skipti fylgdi þessu nánari rökstuðningur fyrir því, hvernig mætti fjármagna þessar sundlaugar sem um er rætt. Hv. 1. flm., Karvel Pálmason, gat þess, að hann væri til viðtals um að taka eitthvað frá öðrum liðum innan fræðslukerfisins til að láta það ganga til þessa máls. Honum láðist auðvitað að minnast á hvaða liði úr fræðslukerfinu hann vildi taka út. Þetta er að sjálfsögðu peningaspursmál, hvernig við eigum að finna fé til að bæta við útgjöld ríkissjóðs 25% til viðbótar við 50% sem lögum samkv. eru veitt til sundlauga nú. Ég mun þegar við fjöllum um þetta í menntmn. gera könnun á því eða afla upplýsinga frá viðkomandi rn. um það hve mikill kostnaður er þarna annast vegar. Ég býst við að það muni hægt að finna það með nokkurri vissu, þó ekki nákvæmlega tölu, hvað þetta mundi þýða í reynd.
Ég er nokkuð vongóð um að þetta mál muni siðar fá þá afgreiðslu sem það á skilið, að það verði gerðar sérstakar ráðstafanir til handa útgerðarstöðum þar sem annar hver maður þarf ár hvert að hætta líf: sínu við sjósókn á hafi úti, þannig að ég þarf ekki að fjölyrða frekar um það. Ég held að þetta mál sé allrar athygli veri, og sú viðbára, sem við var höfð, að það væri slæmt að taka þarna út úr þessa staði sem um er talað, útgerðarstaði með innan við 4000 íbúa, — ég held að sú viðbára sé ekki nógu haldgóð. Við vitum hvers virði okkar sjómannastétt er, við getum gert okkur í hugarlund hvaða áhætta það er fyrir ósyndan mann að stunda sjóróðra í hvaða veðrum sem er og geta ekki bjargað sér ef svo vill til að hann tekur út af skipi eða fellur út með einhverjum hætti, þannig að alveg augljóst er að koma þyrfti til móts við þessa fámennu staði sem eru þess ekki megnugir, nema þá á löngu árabili, að koma upp þessari aðstöðu fyrir sjómenn.