03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4185 í B-deild Alþingistíðinda. (3252)
Umræður utan dagskrár
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. skýrði frá því, að hann hefði átt tal við formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar fyrir um það bil einum mánuði og skýrt þar frá því sem ég greindi frá, að ríkisstj. hefði í huga að ljúka þinghaldi um næstu mánaðamót, þ. e. a. s. mánaðamótin apríl og maí. Það var engu líkara en hæstv. forsrh. vildi nokkuð úr því gera, að af hálfu stjórnarandstöðunnar hefðu þá ekki komið fram nein mótmæli gegn þessum áformum ríkisstj. í sambandi við þinghald. Ég vil benda á að það hefði blátt áfram verið óeðlilegt ef stjórnarandstaðan hefði á þessum tíma farið að mótmæla því að þingi yrði lokið eftir einn mánuð. Vitanlega lá þá ekkert fyrir um að þessi mánuður yrði látinn líða þannig að það gerðist nær ekkert í hinum alvarlegu kaupgjaldssamningum. Nú hins vegar standa mál þannig, að það liggur fyrir að þessi tími hefur farið til lítils.
Eins og ég sagði í mínum fyrri orðum er viðurkennt að það er á valdi hæstv. ríkisstj. og þess meiri hl. Alþ., sem hún styðst við, að ákveða þinghaldið. En það er að sjálfsögðu á valdi minni hl. að láta það koma skýrt fram, hvort hann álítur að ákvörðun stjórnarinnar um þinghald sé eðlileg eða ekki, og það er það sem við viljum undirstrika hér, að við teljum að það sé óeðlilegt að senda þingið heim við þær aðstæður sem nú ríkja.
Það er auðvitað fráleitt hjá hæstv. forsrh. að tala um að mótmæli okkar gegn því, að þingi verði slitið nú og þingið sent heim við þessar aðstæður, séu of seint fram komnar. Vitanlega er eðlilegt að þessi mótmæli okkar komi fram þegar við sjáum hvað á að gerast, þar sem ríkisstj. er að losa sig við þingið og vill vera ein um að taka ákvarðanir í þeim mikilvægu málum sem geta orðið jafnörlagaríkar og flestir gera sér grein fyrir.
Það er alveg ljóst af því, sem hér hefur komið fram, bæði af hálfu stjórnarandstöðunnar og einnig því, sem hæstv. forsrh. sagði, að það er ríkisstj. ein sem tekið hefur ákvörðun um að ætla að slíta Alþ. nú og senda þingið heim. Um þá ákvörðun er ekkert samkomulag við stjórnarandstöðuna. Það er þvert á móti vilji stjórnarandstöðunnar að þingið sitji áfram. Það er alveg ljóst, að það hafði verið gert ráð fyrir að þingið fengi til meðferðar nokkur atriði sem snerta þá kjaradeilu sem nú er yfirvofandi. Þannig kom það fram fyrir ekki löngu hjá hæstv. fjmrh., þegar hann talaði hér fyrir ákveðnu frv. um breytingar á skattalögum, að hann gerði jafnvel ráð fyrir því, að það gætu komið ákvæði inn í það frv. í meðferð frv. hér á Alþ. sem snertu þá kjarasamninga sem í gangi eru. Hér er því spurningin um það, hvort þannig á að standa að málum að það eigi að setja brbl. um breytingar í skattamálum, brbl. um hugsanlegar breytingar varðandi lífeyrissjóðamál, brbl. um ráðstafanir í vinnuverndarmálum og brbl. um önnur þau ákvæði sem ýmist atvinnurekendur eða launþegar hafa sett kröfur fram um. Það liggur líka alveg ljóst fyrir, að atvinnurekendur hafa sett fram sínar kröfur. Þeir hafa sett fram há kröfu að launaskatti yrði aflétt. Þeir hafa líka sett fram kröfur um að rekstrarleg aðstaða þeirra yrði bætt verulega til þess að þeir gætu mætt þeim auknu launagreiðslum sem þeir gera ráð fyrir. En það hefur ekki komið fram á hv. Alþ. enn þá hvað ríkisstj. hugsar sér í þessum efnum. Svör hennar liggja ekki fyrir. Og ég hygg að allir hafi veitt því athygli, að hæstv. forsrh. vék sér undan því að svara spurningu sem hér kom fram um það, hver væri afstaða ríkisstj. sem slíkrar til höfuðkröfunnar sem nú liggur fyrir í þessum kjarasamningum. Það á ekki að að standa lengur á svari ríkisstj. í þessum efnum.
Það er skoðun mín, að það hefði verið miklu affarasælla, eins og þessi mál liggja nú fyrir, að ríkisstj. hefði beitt sér fyrir því að leggja fyrir Alþ. ákveðnar till. sem fara í þá átt sem aðilar vinnumarkaðarins hafa sett fram óskir um. Þar hefur verið óskað eftir leiðréttingu í skattamálum. Þar hefur verið óskað eftir því að afnema a. m. k. hluta af launaskatti. Þar hefur verið óskað eftir því, að ríkið félli frá nokkru af skattheimtu í óbeinum sköttum sem lagðir hafa verið á að undanförnu. Það hefði verið miklu affarasælla, að ríkisstj. legði fyrir Alþ. till. til að mæta þessum óskum, en að halda þannig á málum að slíta þingi og senda þm. heim áður en afstaða hefur verið tekin á Alþ. til þessara mála.
Ég verð að segja það, að mér þótti svar hæstv. forsrh. um þátttöku hans í svonefndum efnahagsmálafundi í Bretlandi nú fyrir stuttu býsna einkennilegt. Hann sagði að hann hefði tekið þátt í svipuðum fundum áður sem borgarstjóri og nú sem ráðh. Það er einmitt þetta sem hann hefur gert. Hann hefur tekið þátt í þessum fundi sem ráðh., sem forsrh. Íslands. Og hann hefur metið þennan fund svo mikils, að einmitt þegar launamálin hér á Íslandi stóðu sem verst, þá gat hann tekið sig á loft frá þingstörfum á Alþ. og frá því margþætta verkefni, sem hann hefur með höndum í sambandi við kjarasamninga, til þess að sækja þennan fund. Hann hefur því greinilega lagt mikla áherslu á að geta mætt þarna. Ég á mjög erfitt með að skilja þátttöku í þessum fundi af hálfu forsrh. landsins, nema hér sé um lið í hans starfi að ræða sem forsrh. og hann geri hæstv. ríkisstj. grein fyrir þátttöku sinni í fundinum og einnig hv. Alþ. Það er það sem er eðlilegt. En það liggur sem sagt fyrir, að hæstv. ráðh. hugsar sér ekki að gera grein fyrir þessum fundi hér og vill því að gleymskan geymi það sem þarna fór fram, að öðru leyti en því sem hann kann að geyma með sjálfum sér.
Ég vil svo aðeins að lokum endurtaka það sem ég hef sagt hér áður, að það er skoðun okkar alþb.-manna að best færi á því að hæstv. ríkisstj. félli frá því að slíta þingi á morgun og senda þingið heim, en gerði annað af tvennu: að halda áfram störfum þingsins um sinn, þannig að þingið geti tekist á við þau verkefni sem þarf að leysa, eða að fundum þingsins verði frestað nú um sinn, svo að það sé auðvelt að kalla þingið saman til að fjalla um þau mál sem kjarasamningana varða og þurfa að koma undir ákvörðunarvald Alþ. fyrr eða síðar.