03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4204 í B-deild Alþingistíðinda. (3264)
220. mál, skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Hvort tveggja er, að tími til þingstarfa gerist nú naumur og ég tel mig nú þegar hafa sagt flest það sem ég hef að segja um þetta mál og þarf því ekki að verða langorð hér. Þegar málið nú kemur frá hv. fjvn. liggja fyrir þrjár till. um meðferð þess.
Sú fyrsta, sem ég vil nefna svo, er brtt. frá okkur sex þm. sem gengur í þá átt, að í stað þess að stofna sérstakan Þjóðhátíðarsjóð verði þessar 300 millj., sem um ræðir, ágóði af útgáfu þjóðhátíðarmyntar, látnar ganga til þjóðarbókhlöðu að 2/3 hlutum og til Húsafriðunarsjóðs að 1/3.
Önnur brtt. liggur fyrir frá meiri hl. fjvn. um að samþykkja till. eins og hún liggur fyrir, óbreytta að öðru leyti en því að bæta verðtryggingarákvæði aftan við 2. gr. skipulagsskrár sjóðsins sem sjóðsstjórn hafi svo í valdi sínu að fara með að vild.
Þriðja till. er svo sú sem frsm. minni hl. hv. fjvn. hefur nýlega gert grein fyrir, að málinu verði vísað til ríkisstj. og frekari athugunar þingflokka í sumar í von um að ná samstöðu um málið.
Hv. 8. landsk, þm., Sighvatur Björgvinsson, gerði allmikið úr þeirri staðreynd, að hér væri um að ræða síðustu tengsl við þjóðhátíð 1974. Það er að vísu rétt, að þetta er í beinum tengslum við þjóðhátíð, að mínu áliti nokkurs konar eftirmáli sem ég hefði vissulega talið að mætti vera með öðrum hætti. Það var bjart yfir allri þjóðhátíðinni 1974 og framkvæmd hennar sem var öll til fyrirmyndar. En það verður því miður ekki sagt, finnst mér, að sama heiðríkjan eins og á þeim fögru sumardögum hvíli yfir þessu máli sem við erum að fjalla um hér.
Ég þarf ekki að ítreka mína afstöðu, ég er búin að reyna að rökstyðja hana áður, ástæðuna fyrir því að ég geri hér og við fleiri ágreining í máli sem við hefðum gjarnan viljað hafa samstöðu Alþ. um. En hún er í sem allra stystu máli sú í fyrsta lagi, að ég tel að utanaðkomandi stofnun, utan Alþ., hafi af allmiklu ráðríki og framhleypni reynt a. m. k, að segja Alþ. fyrir verkum. Ég held að þetta mál sé nokkuð gott dæmi og um leið viðvörun til okkar alþm. að vera á verði gegn því að láta utanaðkomandi áhrif ráða um of gerðum þingsins, þannig að svo geti farið að lokum, ef við göngum of langt í þeirri lítilþægni okkar, að við verðum beinlínis viljalaust verkfæri í höndum allt annarra aðila en til stendur.
Það liggja fyrir yfirlýsingar beggja foringja stjórnarflokkanna um að þetta sé ekki flokksmál og það vildi ég undirstrika mjög rækilega, þ. e. a. s. þm. hafa nú á þessu lokastigi málsins frjálsar hendur um að taka þá afstöðu til málsins sem mér finnst enn að sómi Alþ. liggi við að sé í fullu samræmi við þessa yfirlýsingu og þær vonir sem við gerum okkur um hlutverk okkar hér, að við séum frjálsir að því að fara að okkar vilja og sannfæringu, og að niðurstaðan í þessu máli verði í samræmi við athugun hv. þm. á málinu og íhugun sem það hlýtur að hafa gefið okkur tilefni til.
Ég mun ekki draga dul á það hér, að af þessum þremur till., sem fyrir liggja um meðferð málsins, tel ég brtt. okkar sexmenninganna snöggt um besta, en ég mun samt sem áður fylgja till. minni hl. um að fresta málinu nái brtt. ekki fram að ganga.