03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4207 í B-deild Alþingistíðinda. (3269)

Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Eins og öllum hv. þm. er kunnugt voru gerðar verulegar breytingar á lögum um Framkvæmda­stofnun ríkisins á síðasta ári, eins og kvað á um í málefnasamningi ríkisstj. Í kjölfar þessara breytinga var ákveðið að stofna byggðadeild við Fram­kvæmdastofnunina sem tók formlega til starfa 1. sept. s. l. Þótt skörp skil séu enn eigi milli einstakra starfsþátta áætlanadeildar og byggðadeildar hefur stjórn stofnunarinnar markað starfsvettvang deildanna í höfuðdráttum þannig, að áætlanadeildin hefur með höndum atvinnuvegaáætlanir og aðrar þær áætlanir sem ná til alls landsins, svo sem mannafla- og mannfjöldaspár og samgönguáætlanir, en byggðadeildin vinnur sérstaklega að áætlunum hinna einstöku byggða.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara mjög nákvæmlega í efnisinnihald þeirrar ársskýrslu sem hér liggur fyrir. Ég vil þó láta það koma fram, að í sambandi við starfsemi Framkvæmdasjóðs og samvinnu hans við aðra fjárfestingarlánasjóði kemur fram í skýrslunni, með leyfi hæstv. forseta:

„Eins og segir í lögum um Framkvæmdastofnunina er hlutverk Framkvæmdasjóðs að beina fjármagni til aðkallandi framkvæmda sem æski­legar eru taldar fyrir þjóðarbúið að dómi stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar. Þessu hlutverki gegnir sjóðurinn fyrst og fremst með því að veita fé til helstu fjárfestingarlánasjóða atvinnu­veganna sem síðan veita lán til einstakra fram­kvæmda. Samskipti Framkvæmdasjóðs við þessa fjárfestingarlánasjóði eru því allnáin og varða áætlanir um fjármögnun og útlán sjóðanna og lánveitingar Framkvæmdasjóðs til þeirra.

Sú skipan hefur nú komist á, að gerð áætlunar um fjáröflun og lánveitingar Framkvæmdasjóðs fyrir komandi ár er að fullu lokið í desembermánuði og þá jafnframt tekin inn í hina árlegu lánsfjáráætlun ríkisstj. Til þess að koma þessu í kring þurfa fjárfestingarlánasjóðirnir að hefja undirbúning áætlana sinna síðla sumars til að meta eigið ráðstöfunarfé næsta árs og þarfir fyrir lánsfé til þess að unnt sé að sinna brýnustu verkefnum. Augljóst hagræði er að því að ljúka gerð áætlunar Framkvæmdasjóðs og fjárfestingarlána­sjóðanna fyrir áramót, því að með þeim er út­lánastefna mörkuð í megindráttum, auk þess sem þessar áætlanir eru veigamikill þáttur í lánsfjáráætlun ríkisstj. sem ætlað er að taka til allrar lánastarfsemi í landinu.

Stjórn Framkvæmdastofnunarinnar samþykkti áætlun um fjáröflun og lánveitingar Framkvæmdasjóðs fyrir árið 1917 á fundi sínum 17. des. 1976. Niðurstöðutala þeirrar áætlunar er 6000 millj. kr. og eru áætluð lán til fjárfestingarlánasjóða 5700 millj. kr. og 300 millj. kr. til annarra aðila.

Lánveitingar Framkvæmdasjóðs til fjárfestingarlánasjóða árið 1976 námu 4559 millj. kr., en höfðu numið 4035 millj. kr. árið áður, en heildar­lánveitingar þessara sjóða námu hins vegar 8893 millj. kr. á árinu 1976 samanborið við 7663 millj. kr. árið áður.“

Það er ástæða til þess að fara nokkrum orðum um lánakjörin, en aðalefni þess máls er að fjárfestingarlánasjóðir endurláni það fé, sem þeir fá til ráðstöfunar, með sambærilegum kjörum og þeir sæta sjálfir samkv. 1. nr. 13 frá 1975. Samkv. þessum lögum gerðu Framkvæmdastofnunin og Seðlabankinn till. til ríkisstj. um meginreglur um lánakjör sjóðanna, en sjóðirnir gera síðan till. um lánakjör innan þessara meginreglna. Má segja að á síðasta ári hafi lánakjör sjóðanna verið færð til samræmis bæði innbyrðis og við þau kjör sem þeir sæta sjálfir. Þó vantar enn á að svo sé að öllu leyti hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins þótt verulega hafi miðað í áttina.

Í sambandi við Byggðasjóð er rétt að láta það koma fram, að á árinu 1976 námu hreinar tekjur Byggðasjóðs 225.6 millj. kr. auk framlags ríkissjóðs sem nam 1123 millj. kr., eða samtals 1348.6 millj. kr. Eiginfjárreikningur Byggðasjóðs er þannig í árslok yfir 3000 millj. kr. og hafði hækkað á árinu um 1228 millj. kr. Á yfirstandandi ári er, eins og kunnugt er, gert ráð fyrir 1630 millj. kr. framlagi til Byggðasjóðs á fjárl. fyrir árið 1977, og er það í samræmi við ákvæði málefnasamnings ríkisstj.

Í sambandi við skýrslu um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins vil ég svo að lokum minna á að hið háa Alþ. samþykkti á dögunum ályktun þess efnis, að athugun skyldi gerð á áhrifum af starfsemi stofnunarinnar og einkum lánveitingum Byggðasjóðs á atvinnu- og byggða­þróun í landinu. Ég tel mikilvægt að hv. þm. geri sér á hverjum tíma sem gleggsta grein fyrir áhrifum af starfsemi svo sterkra þátta í þjóðar­búskapnum. Fram hefur komið að hinn öflugi Byggðasjóður kunni með starfsemi sinni að efna til misvægis í þjóðfélaginu. Um það skal ég ekki dæma. En allir geta væntanlega verið sammála um að rannsaka áhrif sjóðsins sem við í dag vitum þó með vissu að mjög mörgu góðu hefur komið til leiðar. Í þessu sambandi vil ég geta þess, að Framkvæmdastofnunin beitti sér fyrir því á síð­asta ári að rannsaka sérstaklega ástand í fiskiðnaði á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu, en til þeirra kjördæma hefur lánastarfsemi Byggðasjóðs ekki náð að öðru leyti en að lána til skipakaupa og nýsmíði fiskiskipa. Fyrstu niðurstöður þessarar könnunar sýna að þessi mikilvægi þáttur atvinnulífsins á svæðinu hefur dregist mjög aftur úr öðrum landshlutum um alla aðstöðu og vinnsluhæfni. Hér er eðlilegt að snúa við blaðinu og hefur stjórn Framkvæmdastofnunarinnar stigið fyrstu skrefin með því að veita aukalán á þessu ári til fiskiðnaðar í þessum kjördæmum að fjárhæð 100 millj. kr. Þess er að vænta að færi gefist á að auka þessa fyrirgreiðslu svo að fiskiðnaður þessa landshluta fari ekki var­hluta af eðlilegri fyrirgreiðslu.

Að öðru leyti en því, sem ég hef nú sagt um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins, leyfi ég mér að vísa til skýrslu stofnunarinnar sem allir hv. þm. hafa fengið í hendur.