08.11.1976
Neðri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (327)
44. mál, skólakostnaður
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir það, að það er mikið nauðsynjamál að byggðar verði sundlaugar í landinu. En ég er hins vegar andvigur þessu frv. og það eru einkum tvö atriði sem ráða þeirri afstöðu minni. Í fyrsta lagi get ég ekki fellt mig við að það sé verið að mismuna sveitarfélögum eftir því hver íbúatala þeirra er, en svo er gert með þessu frv. Það er ætlast til að sveitarfélög með innan við 4000 íbúa skuli njóta sérstakra fríðinda, en þó því aðeins að þaðan sé stunduð útgerð. Ég er andvigur því að það sé verið að draga sveitarfélög í dilka eftir landfræðilegri legu þeirra eða eftir atvinnuháttum, eins og þarna er gert, hvort nm er að ræða sjávarþorp eða landbúnaðarhéruð.
Í öðru lagi nefni ég það, að þótt einhverjar sveitarstjórnir standi sig ekki sem skyldi, sinni ekki þeim verkefnum sem þeim ber að hafa frumkvæði að, þá á ekki að koma hlaupandi til ríkisins og biðja um hjálp. Hvorki eiga sveitastjórnarmenn að gera það né þm. Ég held að segja megi líka að framlög ríkisins til framkvæmda sem þessara séu vafasamur hvati og það í meira lagi vafasamur hvati til framkvæmdaaukningar. Það má e.t.v. segja að slík framlög séu að vísu til þess fallin að hvetja sveitarstjórnir til þess að hefja framkvæmdir í trausti þess að ríkisframlög fáist, og raunar er samþykki ríkisins skilyrði fyrir leyfi til framkvæmda. En ég held að það sé staðreynd, að þessi framlög frá ríkinu verða aldrei fullnægjandi, og þess vegna er það ríkið sem í raun ræður framkvæmdahraðanum. Ég fullyrði að í mörgum tilvikum eru þessi afskipti ríkisins beinlínis til þess að tefja fyrir framkvæmdum.
Ég þarf ekki að segja miklu meira. Ég efast ekkert um að það verður snúið út úr þessari afstöðu minni, ég sé með þessu að tefja fyrir þessum nauðsynlegu framkvæmdum. En ég hef áður sagt, að ég er vissulega sammála um að þær eru hinar nauðsynlegustu. Ég mundi heldur óska eftir að við sameinuðumst um að afla sveitarfélögunum rýmri tekjustofna til þess að þau verði betur fær um að sinna þeim verkefnum sem þeim ber samkv. lögum. Það er mun verðugra verkefni en þetta sífellda kvabb um auknu framlög ríkissjóðs til þessara og hinna verkefnanna. En það er þó einkum leiðinlegt að heyra þessar kröfur af munni þeirra sem í sömu andránni hneykslast á hinni miklu skattheimtu ríkisins. Ef þessir sömu menn geta hins vegar ekki með nokkru móti treyst sveitarstjórnum fyrir verkefnum sem þessum, þá sýnist mér að það væri til muna hreinlegra að leggja til að ríkið annist eitt byggingu og rekstur sundlauga. Þá kæmist væntanlega lag á þetta og miðstýringin yrði fullkomin til ánægju fyrir alla þá sem róa öllum árum að sem mestum afskiptum ríkisins á sem flestum sviðum, um leið og þeir berjast svo fyrir lækkun skatta.