03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4215 í B-deild Alþingistíðinda. (3275)
174. mál, atvinnumál öryrkja
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Atvmn. fékk til meðferðar till. til þál. um atvinnumál öryrkja. N. hefur skilað áliti á þskj. 583 og leggur hún til að tillgr. verði samþykkt með þeirri breytingu að tillgr. orðist svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta útbúa og leggja fram á Alþ. frv. til l. um atvinnumál öryrkja. Skal frv. miða að því að fólk með skerta starfsgetu fái tækifæri til vinnu við sitt hæfi, annaðhvort á sérstökum vinnustöðum á vegum ríkis og sveitarfélaga eða með því að opna því aðgang að hinum almenna vinnumarkaði með sérstökum ráðstöfunum.“
Jón G. Sólnes tók ekki þátt í afgreiðslu málsins. Sverrir Hermannsson var fjarstaddur.