03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4218 í B-deild Alþingistíðinda. (3283)

189. mál, launakjör hreppstjóra

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég vil þakka n. fyrir skjóta afgreiðslu á þessu máli, og ég vil ekki síður þakka ágætar undirtektir hv. 4. þm. Vesturl. Ég sagði við 1. umr. að mér þætti vænt um það, að hann vildi athuga þessi mál af sinni þekkingu þar á, og gæti vel fallist á brtt. frá honum. En ég felli mig ekki síður við þann úrskurð sem hann hefur nú kveðið upp. Ég vil vona að þessi athugun verði framkvæmd fljótt og vel og lagfæring gerð á kjörum hreppstjóra.