08.11.1976
Neðri deild: 9. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
44. mál, skólakostnaður
Ingvar Gíslason:
Herra forseti: Þetta eru nú orðnar býsna langar umræður og kannske ekki mikil ástæða til þess að taka þátt í þeim. En mér þykir þó rétt að minna enn á það, sem raunar hefur komið fram, að hér er ekki um nýtt mál að ræða. Þetta mál var flutt í fyrra af að ég hygg sömu flm., a.m.k. var 1. flm. sá sami og nú. Og ég er ekki í nokkrum vafa um að það liggur góður tilgangur á bak við flutning þessa máls. En hins vegar held ég, að hv. flm. verði að hafa þolinmæði til þess að hlusta á rök sem fara e.t.v. gegn því sem þeir hafa sjálfir fram að færa. Og því er alls ekki að leyna, að það hafa komið fram í meðferð þessa máls bæði í fyrra og nú ýmis atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga þegar þessi mál eru rædd og þegar þetta mál er afgr.
Ég á sæti í menntmn. og við tókum þetta frv. til mjög vinsamlegrar skoðunar í fyrra og ræddum það á fundum okkar ýmsum, og við leituðum umsagna aðila sem þetta mál snerti sérstaklega að okkar dómi, fengum umsagnir a.m.k. tveggja aðila, bæði ÍSÍ og íþróttafulltrúa, og það kom fram í umsögnum þessara aðila, beinlínis, að leggja gegn samþykkt frv., og íþróttafulltrúi taldi að það orkaði mjög tvímælis að það væri rétt að mismuna sveitarfélögum hvað snerti þessa hundraðstölu. Ég held að hv. 1. flm., sem hefur af dugnaði sínum flutt þetta mál öðru sinni og mælt rösklega fyrir því, megi vel hlusta á þessi rök og hann ætti ekkert að vera að gera okkur hinum það upp að við höfum ekki fullan skilning á þessu eða við höfum fengið eitthvert meingallað uppeldi og slitnað kannske úr samlandi við þjóðlífið o.s.frv., eins og hann ber okkur hér á brýn. Ég verð að segja það um sjálfan mig, — ég er líklega nokkrum árum eldri en hann, ég veit ekki hvað mörgum, — en það stendur nú þannig á með mig, að ég er beinlínis fæddur í sjávarmálinu, og ég held að segja megi að sjórinn hafi bókstaflega gutlað um vöggu mína og bernskuheimill og þannig stóð á um mig og fleiri, sem ólust upp í því sjávarþorpi þar sem .ég er fæddur, að við lærðum að synda, hreinlega, í þessum sama sjó sem gutlaði um húsin okkar. Ég frábið mér það nú alveg að vera að bera okkur það á brýn að við séum eitthvað slitnir úr tengslum við uppruna okkar og að við þekkjum ekki þau vandamál sem hér er um að ræða. Það er fjarri því. Við vitum það vel að sundkunnáttan er öllum nauðsyn og þá ekki síst sjómönnum.
En það er eitt atriði sem kom fram hjá hv. 1. flm. í ræðu hans áðan, og undir það langar mig mjög að taka, og það er það sem hann minnti á um það óhóf sem er í hönnun og gerð íþróttamannvirkja. Um þetta er ég honum sammála. Ég hygg nú að við í menntmn. höfum rætt þetta í fyrra og við höfum gert okkur m.a. grein fyrir því, að það er eitt af stærstu og erfiðustu verkefnunum í opinberum framkvæmdum að koma því fram að byggja íþróttamannvirki sem víðast og þannig að við hóf sé. Við gerum okkur þetta fyllilega ljóst, og ég veit að hv. 1. flm. þessa frv. gerir það líka. Ég held að það væri mál sem við hér í þinginu ættum að taka til sérstakrar skoðunar, hvernig við getum komið okkur niður á jörðina hvað snertir gerð íþróttamannvirkja. Við þekkjum það allir, þm., að það berast að óskir um gerð íþróttamannvirkja mjög víða úr kjördæmum okkar, en hins vegar er mjög erfitt að fullnægja þessum umsóknum. Ég held, sem sagt, að það þurfi að taka þessi mál til rækilegrar skoðunar og gera sér grein fyrir því hvernig þessi mál standa í heild sinni. Og þá finnst mér að megi fylgja með til athugunar bað sérstaka málefni sem þetta frv. fjallar um. En þetta mál fer nú trúlega aftur til menntmn. Ég ætla ekki að gefa neinar yfirlýsingar um það, hvernig n. að lokum lítur á þetta mál eða afgr. þetta mál, en hitt er jafnljóst, að við munum auðvitað taka það til umræðu eins og okkur ber, og trúlegt er að við afgr. það með einhverjum hætti áður en þessu þingi lýkur.